Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1931, Qupperneq 85
Stefnir]
Spámaðurinn Jósep Smith.
483
ist flest af því fólki til nýrrar trú-
ar. Það hafði alltaf sagt þetta,
að það ætti eitthvað mikið að
ligg.ia fyrir þessari ætt.
Megináherzlan var í upphafi
lögð á það, að koma Mormónsbók
út. Móróní engill hafði verðlagt
hana á 1 dal og 75 sent. En þær
fregnir bárust hvaðanæfa að, að
verðið væri allt of hátt. Þá vildi
svo heppilega til, eins og oftar,
að Jósep Smith vitraðist það, að
honum væri bezt að lækka verð-
ið í 1,25.
Bókin fór nú að breiðast út, og
varð til þess, að ýmsir snerust til
mormónatrúar í öðrum bæjum.
Einhver helzti þeirra hét Brig-
ham Young. Hann var maður
hygginn og fylginn sér. Hann
hafði í æsku verið eigi ólíkur Jó-
sep Smith, en síðar gerst alvöru-
maður meiri og hug:sað mikið um
trúmál. — Ekki gatst honum að
neinni kirkjudeild, en fann sárt
til þess, hve hann langaði til að
siá guð sjálfan, eða að minnsta
kosti einhvern af spámönnum
Eans. Einn af trúboðum Mor-
^óna, Samúel Smith, lét hann
hafa Mormónsbók með þessum
°rðum: „Þetta er nýja fagnaðar-
€^indið um hjálpræðið. Þetta er
sú opinberun, sem mun frelsa
Israel“. Og Brigham Young svar-
a^i: „Gott og vel! Það er bezt
að sjá, hvað í þessari bók stend-
ur! Eg gjjai jesa hana vel og
vandlega“. Hann þaul-las bókina
um tveggja ára bil, sannfærðist
lullkomlega og tók Mormóna-
skirn.
í mörgum bæjum fór nú að
myndast Mormóna-söfnuður. —
Mest kvað að því í bænum Kirt-
land í Ohio. Varð Jósep Smith
þar svo mikið ágengt, að hann
tók sig upp og flutti aðalbækstöð
Mormónskunnar þangað.
Þegar hann var nýlega kominn
til Kirtlands, fekk hann mikla
vitrun um það, hvað Mormónar
ættu að gera. Þar segir svo: „Eg
segi yður, eg býð yður að reisa
hús handa þjóni mínum, Jósep
Smith, til þess að hann geti bú-
ið þar í ró og næði og birt mönn-
um vilja minn“.
Dálítil óþægindi voru að því,
hvað Emma, kona spámannsins,
var skammt á veg komin í trúnni.
Hún stagaðist jafnan á því, að
það væri ófært, að gera ekkert
annað en spá. Það væri náuðsyn-
legt að verja einhverju af tíma
sínum til arðvænlegrar atvinnu.
En þá fekk Jósep vitrun, og var
frúin þar ávörpuð á þessa leið:
„Emma, eg kýs þig hér með til
þess að vera ein af mínum út-
völdu. óttastu ekkert! Maður-
inn þinn á heimting á því, að
láta þig hafa allt sem þú þarft
af efnum kirkjunnar“. Þá kom
og sú skipun af himnum, að
Emma ætti að vera einkaritari
spámannsins.
Fyrirheit þau, sem spámannin-
um voru gefin af himnum, tóku
nú óðum að rætast. Trúin breidd-
ist út hraðfara. Líf frumbyggj-
anna var svo fábreytilegt, að hin-
um nýju spámönnum var tekið
opnum örmum, hvar sem þeir
31*