Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Side 3

Sagnir - 01.10.1983, Side 3
SAGNIR Blaö sagnfræöinema viö Háskóla íslands, 4. árg. 1983. Ritnefnd: Barði Valdimarsson, Bjarni Guömarsson, Bjarni Harðarson, Gísli Kristjánsson, Halldór Bjarnason, Ingólfur Á. Jóhannesson, Ólafur Ásgeirsson, Ragnheiður Mósesdóttir, Sigur- geir Þorgrimsson og Valdimar Unnar Valdimarsson. Setning, umbrotog prentun: ísafoldarprentsmiöja h.f. FRA RITNEFND Við sagnfræðinemar látum ekki deigan síga og gefum nú Sagnir út í fjórða sinn. Væntum við þess að viðtökurnar verði ekki síðri en undanfarin ár. Hver árgangur verður hinum vandaðri að ytra frágangi og vonandi stendur innihaldið einnig fyrir sínu. Með vandaðri frágangi eykst kostn- aðurinn við útgáfuna töluvert - og það á þessum árans krepputímum. Vonandi höfum við þó ekki reist okkur hurðarás um öxl. Eins og undanfarin ár eru Sagnir að þessu sinni helgaðar ákveðnum viðfangs- efnum eða þemum. Þau eru nú tvö: sögu- kennsla og ísland og umheimurinn. Sögukennsla er sígilt viðfangsefni, eðlis síns vegna. Hún hefur breyst mikið síð- ustu áratugi og er enn í stöðugri endur- skoðun. Til að forvitnast um stöðu þessara mála í dag og fá fram skoðanir manna á til- gangi og aðferðum við sögukennslu, lögðum við nokkrar spurningar fyrir kennara og aðra er starfa að þessum málum. Samskipti íslendinga við umheiminn hafa frá alda öðli verið margvísleg og vafa- laust meiri en ýmsa rennir í grun. í Sögn- um verða að þessu sinni birt nokkur dæmi um það hvernig samskiptum íslendinga við umheiminn hefur verið háttað á hinum ýmsu tímum. Hér er vitanlega á engan hátt um einhverja allsherjar úttekt að ræða heldur er ætlunin einungis að gefa örlitla hugmynd um það hvernig saga íslendinga, félagsleg, pólitísk, efnahags- leg og menningarleg svo eitthvað sé nefnt, hefur með ýmsu móti dregið dám að tengslum við aðrar þjóðir. Þegar þessi orð eru fest á blað er þegar hafinn undirbúningur að 5. árgangi Sagna. Væntum við þess að þetta rit sagnfræði- nema fái að dafna á komandi árum. Slíkt er þó vitanlega komið undir viðtökum þínum, lesandi góður. Reykjavík, október 1983 EFNIS YFIRLIT: Frá ritnefnd ...................................... 1 SÖGUKENNSLA-Inngangur ............................. 2 Pátttakendur ísögukennsluþema SAGNA 1983 .. 3 Mismunandi sjónarmið um kennslufrœði sögu . 4 Staða sögunnar gagnvart öðrum námsgreinum í skólakerfinu................................. 8 Er einhver munur á sögukennslu eftir aldri og skólastigi? .................................. 13 Þekkingaröflun og gagnrýnin vinnubrögð ... 17 Hugtakakennsla................................. 19 Hvernig á góð sögukennslubók að vera? .... 21 Erik Rudeng: Kennslufrœði sögu ................ 23 Hvernig á að kenna sögu? ...................... 25 Sagnfrœði og félagsvísindi ....................... 26 Halldór Bjarnason: Er sagnfrceði nytsamleg? . . 27 ÍSLAND OG UMHEIMURINN ............................ 35 Björn Þorsteinsson: Af íslenskum diplomötum og leyniþjónustumönnum - Um íslensk utan- ríkismál fyrir 1100 .......................... 37 Helgi Þorláksson: Útflutningur íslenskra barna til Englands á miðöldum ...................... 47 Þorvaldur Bragason: „. . . erþjóðveldi á hyggi- legum grundvelli manninum samboðnast stjórnarform . . .“- Hugmyndir Jóns Ólafs- sonar ritstjóra (1850-1916) um vald, frelsi og framfarir..................................... 54 Gísli Ágúst Gunnlaugsson: Hugleiðingar um landhelgissamninginn 1901 61 Sumarliði R. ísleifsson: Afdrifarík mistök eða eðlileg ráðstöfun? - Um lokun íslandsbanka árið 1930 .................................... 66 Ólafur Ásgeirsson: Lögskilnaðarmenn og lýð- veldið........................................ 74 „. . . ekki hœgt að rœða málin lengur á þeim grundvelli, að saga íslands sé landráðasaga. “ - Rætt við Þór Whitehead prófessor ........... 78 Í.AM53CKASAFN 373149

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.