Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Síða 11

Sagnir - 01.10.1983, Síða 11
mun vera að nemandi taki 12 einingar í sögu. Stórt stökk er frá samfélagsfræði- kennslu grunnskólanna til sögukennslu í framhaldsskólum. Ber þar margt til, eink- um telja framhaldsskólakennarar að al- menn söguþekking nemenda sé takmörkuð þótt kunnátta í ýmsum vinnubrögðum sé betri. Gallinn er oft sá að framhaldsskóla- kennarar þekkja lítið til vinnubragða grunnskólans og kunria því ekki að nota þá þekkingu sem nemendur koma með þaðan sem grundvöll áframhaldandi sögunáms. Sú skoðun hefur komið fram hjá fram- haldsskólakennurum að sagan sé á undan- haldi og í Sögnuni 1980 segir Sigurður Ragnarsson að sagan hafi verið í varnar- stöðu, einkum gagnvart öðrum félagsgrein- um. Það mætti hugsa sér að mótvægi slíks undanhalds væri aukin samvinna félags- greinanna og sameiginleg sókn þeirra innan skólakerfisins. En snúum okkur þá að viðmælendum okkar. Skoðanir þeirra á þessum málum eru mismunandi, en allir virðast þeir sammála um nauðsyn sögukennslu í skólum, hvort sem það er á eigin spýtur eða í samvinnu við aðrar greinar. A. Ef það er rétt að saga/samfélags- greinar sé annars flokks grein í grunnskóla hvernig má breyta því? Ingvar Sigurgeirsson: í svari við þessari spurningu verð ég að gera greinarmun á þá sögu annars vegar og samfél- agsfræði hins vegar. Ég hygg að leiða megi rök að því að saga eigi undir högg að sækja í grunnskólum. í fyrsta lagi má nefna að við kennsluna verða kennarar að styðjast við námsefni sem að flestra dómi er löngu úrelt, bæði hvað varðar efni og framsetningu. I öðru lagi má nefna að það er haft fyrir satt að í mörgum skólum sé sagan hornreka og sé hún látin mæta afgangi þegar verið er að úthluta kennurum kennslu- greinum að vori eða hausti. Ég treysti ntér þó til að fullyrða að þetta sé nokkuð mismunandi eftir skólum og þekki dæmi um skóla þar sem saga er í miklum metum. Hinu er ekki að leyna að oft er fullyrt að greinar eins og saga, landafræði, kristinfræði og félagsfræði séu látnar mæta afgangi og notaðar til að „fylla upp í“ kennsluskyldu. I þriðja lagi gengur sá orðrómur að það séu einkum duglitlir nem- endur í 9. bekk sem velji samfélagsgreinar (sögu, landafræði og félagsfræði) en þar er þeim gert að velja á milli samfélags- og raun- greina (geta raunar einnig valið að leggja stund á hvort tveggja). Freistandi er að svara spurningunni um það hvernig breyta megi stöðu sögunnar og ann- arra samfélagsgreina innan grunnskólans með því að gefa út nýtt og betra námsefni sem svarar betur en gamla efnið þörfum barna nú á tímum; með því að stórefla kennaramennt- unina, bæði grunn-og endurmenntun og ekki síst með því að vinna fylgi nýjum kennsluað- ferðum og viðfangsefnum. Að þessu er unnið en betur má ef duga skal. Hér þurfa viðhorf að breytast. Nú á tímum virðist ekki blása byrlega fyrir samfélagsgreinum, bókmennt- um og listgreinum. Húmanisminn stendur að mínum dómi höllum fæti í skólakerfinu. A þcssum vettvangi tel ég ástæðu til að vekja athygli á því hversu mikilvægt er að þeir sem fást við rannsóknir í félagsvísindum leggi sitt af mörkum með því að kynna almenningi rannsóknir sínar, glæða áhuga og skapa umræðu. Ekki er síður áríðandi að fræði- menn á þessu sviði og kennarar á grunnskóla- og framhaldsskólastigi taki höndum saman við að auka veg samfélagsgreinanna. Erla Kristjánsdóttir: Ég geri ráð fyrir því að hér sé einkum átt við efri bekki grunnskólans (þegar áhrifa samræmdu prófanna fer að gæta) og svara því þessari spurningu játandi. Það er freist- andi að setja fram staðhæfingu um að þessu megi breyta með því að breyta kennslu- háttum og þá um leið viðhorfum til sögu- kennslu og sögunáms. Þá er nauðsynlegt að glöggva sig á því hvaða möguleikar gætu verið fyrir hendi í sögunámi og má þá nefna sem dæmi: 1) Nemendur rannsaka fortíðina á sama hátt og sagnfræðingar. 2) Nemendur læra það sem sagnfræðingar hafa skrifað um fortíðina (einkum í kennslu- bókum). 3) Nemendur fjalla um sögu sem fræðigrein og læra vinnuaðferðir sagnfræðinga. 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.