Sagnir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Sagnir - 01.10.1983, Qupperneq 28

Sagnir - 01.10.1983, Qupperneq 28
Sagnfræði og félagsvísindi í 1. árgangi Sagna (1980) varð nokkur umræða um tilgang sagnfræðinnar og stöðu hennar og meðal annars voru þrír menn spurðir að því hvort tengsl sagnfræði og fél- agsfræði væru svo mikil að réttara væri að kenna sagnfræði í félagsvísindadeild. Sagnir 1983 spurðu Sveinbjörn Rafnsson og Gísla Gunnarsson að því hvort sagnfræð- in hefði einhverja sérstöðu meðal félagsvís- indagreina. Sveinbjörn svaraði því þannig að sagnfræði væri ekki félagsvísindagrein. Svar Gísla fer hér á eftir: Sagnfræðin er vísindin um samfélagsbreyt- ingar, hvernig aðstæður voru og hvernig þær urðu. Áherslan á tímavíddina, breyting- arnar og margbreytileikann í samfélagsgerð skapar sérstöðu sagnfræðinnar innan félags- vísinda. En það er ekki erfitt að afmá þessi sérkenni úr sagnfræðinni með slælegum vinnubrögð- um. Stundum hafa sagnfræðingar forðast alhæfingar og skýringar og litið á sig fyrst og fremst sem heimildasafnara; þá verða þeir í besta tilfelli gagnrýnir sagnritarar og yfirgefa sagnfræðina. Þessi tilhneiging er á vissu undanhaldi vegna áhrifa frá öðrum greinum félagsvísinda en þá hefur komið upp önnur tegund afneitunar á sagnfræðivísindum: Sem svar við goðsögninni um litla „nytsemi" sagn- fræðinnar hafa margir stúdentar/fræðimenn aðeins viljað fjalla um svonefnd „nærtæk" viðfangsefni, t.d. þá stjórnmálasögu nútím- ans, sem ótvírætt tengist atburðum líðandi stundar. Sögu fyrri alda er afneitað og yfir- leitt er reynt að leiða hjá sér vandamál, sem ekki tengjast beint „hagnýtri" ákvarðanatekt samkvæmt ríkjandi skilgreiningu á hagnýtu gildi. Árangur þessarar „nytsemishyggju“ er framleiðsla annars flokks stjórnmálafræð- inga, félagsfræðinga, hagfræðinga o.s.frv., sem lítið hafa með sagnfræði að gera. Til að hindra þessa þróun og viðhalda sér- kennum sagnfræðinnar innan félagsvísind- anna ber að leggja áherslu á eftirtalin grund- vallaratriði. 1. Sagnfræðin þarf að fjalla um sem víð- tækast svið bæði í tíma og rúmi til að fjöl- breytileikinn í mannlegum samskiptum komi sem skýrast í Ijós. 2. Sagnfræðingar mega ekki láta gildismat líðandi stundar, og/eða þess samfélags sem þeir lifa í, móta mjög mikið dóma sína um lið- inn tíma. Samfélög fyrri alda á sem mest að dæma út frá forsendum viðkomandi tíma. 3. Af reglum 1 og 2 leiðir sú þriðja: Sagn- fræðingurinn verður að vera vel meðvitaður um afstæðni fyrirbæra og hve hæpnar „algild- ar reglur“ eru. Hann verður að vera umburð- arlyndur ogopinn fyrir nýjungum og fús til að endurskoða stöðugt fyrri hugmyndir. 4. Sagnfræðingur þarf að fá sem besta heildarsýn yfir það samfélag sem hann er að lýsa og getur ekki leyft sér eins mikla sérhæf- ingu og hagfræðingur/félagsfræðingur/stjórn- málafræðingur gerir. Samtímis þarf hann helst að öðlast þekkingu á vinnubrögðum í öðrum greinum félagsvísinda. 5. Sagnfræðingur verður að sýna fyllstu nákvæmni í meðferð sinni á heimildum og getur ekki leyft sér svipaða lausung í þeim efnum og tíðkast í sumum félagsvísindagrein- um. En þar hafa margir kenninga-og líkana- smiðir komist upp með að meðhöndla aðeins þau brot af heimildum sem falla inn í fyrir- fram ákveðið mynstur. (Þetta á þó alls ekki við allar félagsvísindagreinar, t. d. er lögfræð- in mjög ströng í kröfum um réttmæta heim- ildanotkun.) Þessar grundvallarreglur eru sem sagt um það hvernig styrkja megi sérkenni sagnfræð- innar sem rannsóknagreinar samfélagslegs breytileika innan félagsvísinda. Það liggur í augum uppi að með þær að leiðarljósi verður sagnfræðin erfiðust allra greina félagsvísinda, en um leið sú sem er notadrýgst (og skemmti- legustl). Þótt erfitt sé fyrir hvern einstakan sagnfræðing að fylgja hverri reglu til hlítar, breytir það engu um réttmæti þeirra við stefnumótun greinarinnar. 26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.