Sagnir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Sagnir - 01.10.1983, Qupperneq 31

Sagnir - 01.10.1983, Qupperneq 31
Helgi Skúli segir í bréfi til Gunnars Karls- sonar að hann efist um sögu sem námsgrein [... ] þó ekki vegna þess að hún geti ekki verið bæði réttmæt og gagnleg, heldur taldi ég eiga að gera til hennar þá kröfu að hún vœri í raun (eða væri nokkurn veginn fyrirsjáanlega að verða) réttmæt og gagnleg a.m.k. lil jafns við það námsefni sem trúlega yrði tekið upp í hennar stað ef hún legðist af.10 í grein sinni í Sögnum 1980 reynir Helgi Skúli að hrekja tvær mótbárursem andmæl- andi hans gæti borið fram í þessum dúr. Annars vegar gæti andmælandinn sagt að sagan sé gagnleg til að „flytja frá kynslóð til kynslóðar nokkurn veginn almenn eða viðurkennd gildi og sjónarmið eins og þau eru þar og þá; sagan sem skólafag getur verið sérlega hentug í þeim tilgangi.“" Og hins vegar gæti hann sagt að gott sé að nota sögu sem vopn í deilum, skoðanaágrein- ingi.12 Þessu svarar Helgi Skúli með þremur andmælum sem gilda um báðar mótbárur andmælandans:13 A. Saga sem námsgrein. 1) Má ekki ná betri eða jafngóðum árangri með einhverju öðru? 2) Af hverju ekki nota uppdiktaða sögu frekar en sanna, hana mætti sníða betur að hinu gefna markmiði? 3) Hvaða gagn er að því að halda áfram rannsóknum og finna nýja sögu ennþá sannari; enginn veit fyrirfram að hún þjóni tilganginum betur. kannski bara verr? B. Saga sem vopn í deilum. 1) Saga hvorki skilvirkasta leiðin til að koma skoðun á framfæri né best til þess fallin að glæða upplýsta og þroskandi umræðu. 2) Fáránlegt að fylgja venjum og reglum sagnfræðinnar um sannsögli, visst hlutleysi og dreifingu kraftanna á alls konar svið og tímabil, ef tilgangurinn er að þjóna fyrirfram gefinni skoðun eða málstað. 3) Því skyldu menn verja fé og fyrirhöfn til að afla nýrrar vitneskju og nýs skilnings? Torséð fyrirfram hvaða málstað slík endurskoðun þekkingar- innar myndi þjóna. Helgi Skúli segist aldrei hafa efast um að sagnfræðirannsóknir væru réttmætar, „en bara dregið í efa að þær séu það af þeim sökum sem sumir vilja vera láta, nefnilega þeim að þœr séu gagnlegar.“14 Efasemdir hans hafa því snúist í kringum það að gera mun á gagni þeirra og gœðum (traustleika). Mælikvarðinn á það hversu traust tiltekin þekking sé og hversu gagnleg hún sé, er ekki sá sami segir hann.15 Sjálfur segist þó Helgi Skúli sjá tvenn rök til þess að stunda megi sagnfræðirannsókn- ir: Annars vegar er eftirspurn eftir sannleik- anum sjálfs hans vegna. Sumir vilja stundum fremur vita en halda, þegar þeir hugsa um fortíðina. Kannski viljum við helst að niður- staðan verði einhver viss, en erum reiðubúnir að kaupa sannleikann [—] fyrir þá áhættu að hann verði óþægilegur. Og þá er jafn rétt- mætt að stunda framleiðslu fyrir þessa eftir- spurn eins og svo marga aðra. Hins vegar eru vísindin, þekkingartrúin og allt það svo mikilvæg á öðrum sviðum þjóð- félagsins og menningarinnar, að það er snyrtilegt, mér liggur við að segja heilbrigt, samræmi í því að láta þeirra mat gilda líka um hugsun okkar um fortíðina, þegar við hugsun um hana sjálfrar hennar vegna, úr því við höfum á annað borð áhuga á henni.16 Niðurstaða greinarinnar í Sögnum og skoðun Helga Skúla er því sú að söguþekk- ing hafi sjálfstætt menningarlegt gildi, hann hafi áhuga á fortíðinni, trúi á sannleikann sem siðferðilegt mæti og aðhyllist rann- sóknir og fræði sem leið til hans. „Þegar allt þetta er viðtekið fyrirfram, má gera sér ýmsar hugmyndir um nytsemi sagnfræðinn- ar. En einber nytjasjónarmið, án skírskot- unar til sjálfgildis söguþekkingarinnar, hrökkva, held ég, mjög skammt til að rétt- læta sagnfræði í þeirri mynd sem við þekkjum.“17 G.R. Elton, prófessor í Cambridge, er 29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.