Sagnir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Sagnir - 01.10.1983, Qupperneq 51

Sagnir - 01.10.1983, Qupperneq 51
Var börnum rænt? Ekki kemur það skýrt fram. í Lönguréttarbót er talað um að út- lendingum séu gefin eða seld börn en ekki er þar beinlínis getið um barnarán. Ætlast er til að gefandi eða seljandi barns sé dæmdur skv. Jónsbók, líklega með því að „binda síðan á bak honum barn og láta sjálfan bera brott . . ,“13 Hvað var gert við börnin? Ljóst er að Englendingar höfðu áhuga á því að fá börn frá íslandi til þjónustustarfa, sumir íslendinganna 49 sem voru í Bristól árið 1484 kunna að hafa flust þangað börn að aldri. En af hverju sóttust Englendingar eftir börnum? Var ekki nægjanlegt að fá fullvaxna útlendinga til starfa? Heimild frá árinu 1536 veitir etv. vísbendingu um þetta, maður nokkur í Yarmouth fór þess á leit að verða forsjármaður 11 ára íslensks pilts og meistari hans í sjómennsku næstu 13 árin.14 Sagt er að alsiða hafi verið á Englandi og víðar fyrir iðnbyltingu að börn færu að heiman sjö til átta ára gömul og þjónuðu öðrum fjölskyldum og var mjög haldið til vinnu. Um 13 ára aldur voru þau svo stund- um send til nýrrar fjölskyldu og tekin þar í læri með formlegum hætti.15 Pau nefndust þá „apprentices“ en þetta námskerfi nefnd- ist „apprenticeship" og er lýst svo: Apprentices, therefore, and many other servants. were workers who were also children, extra sons or extra daughters (for girls could be apprenticed too), clothed and educated as well as fed, obliged to obedience and forbidden to marry, often unpaid and dependent until after the age of twenty-one. Lægsti aldur iærlinga var 11 ár og námstím- inn varaði oftast sjö ár. Lærlingarnir gátu verið tveir til þrír hjá meistara (smiði, bak- ara, kaupmanni . . .) og lærðir sveinar etv. tveir til þrír líka. Auk þess gátu verið tvær þjónustustúlkur hjá meistaranum.16 Eftir svartadauða um 1350 var vinnuafls- skortur í enskum sveitum og var þá brugðið á það ráð árið 1388 að banna 12 ára börnum og eldri í sveitum að fara í læri í bæjum. Árið 1406 var skipað svo fyrir að enginn mætti senda barn í læri eða í annað starf í bæ eða borg nema hann ætti 20 skildinga land. Þessu var fylgt vel eftir og voru borgirnar Lynn og Yarmouth td. ekki þegnar undan þeirri kvöð að hlíta þessu fyrr en árið 1523. Höfðu borgarar þá margoft beðið að þessu yrði a.flétt. Hins vegar gátu börn sjálf gert samninga án samþykkis eða vitundar for- eldra og mátti ekki rifta slíkum samningi nema meistari leyfði. Allir námssamningar urðu að fá staðfestingu bæjaryfirvalda og lærlingarnir skyldu skráðir í bæjarbækur en það vildi verða misbrestasamt.17 Maðurinn í Yarmouth sem sótti um leyfi að verða forsjármaður íslenska piltsins 11 ára og meistari hans í 13 ár hefur þá etv. verið að leita opinberrar staðfestingar. Námstíminn, 13 ár, virðist langur en margar hliðstæður voru til og var jafnvel reynt að koma á sem reglu að menn hættu ekki námi fyrr en þeir væru orðnir 24 ára. Hið sérkennilega enska námskerfi og vinnuaflsskortur á Englandi á 15. öld gætu þá etv. að einhverju leyti skýrt eftirsókn Englendinga eftir íslenskum börnum. Dýrir hundar en börn í kaupbæti Lærlingar voru ódýrt vinnuafl og á því var skortur á Englandi eftir tilskipunina 1406. En var ekki einmitt skortur vinnuafls á ís- landi eftir pláguna miklu (svarta dauða)? Hverjir gáfu eða seldu börn sín helst? Á frægu hnattlíkani Behaims frá 1492 stend- ur ma. um Islendinga:18 Hjá þeim er siður að selja hunda dýrt en börn sín gefa menn kaupmönnum og fela guði á vald svo að þeir fái brauð handa þeim sem eftir eru. Það eru hinir fátæku sem gefa börn sín skv. þessu. Peerse sem mun hafa verið á íslandi um 1555 og Blefken sem kom víst árið 1564 segja sömu sögu um hunda og börn en geta ekki um neyð gefenda.19 Þrástagast var á því, þar sem sagt var frá íslandi, að hundar væru seldir en börn gefin.20 Það er heldur líklegt að Englendingar hafi verið hættir að greiða fyrir börn þegar kom fram um 1500 og eitthvað hefur senni- 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.