Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Page 63

Sagnir - 01.10.1983, Page 63
Hugleiðingar um landhelgis- samninginn 1901 Talsvert hefur verið ritað um fiskveiðideilu íslendinga og Breta í lok síðustu aldar og samning Dana og Breta um veiðar „utan landhelgi í hafinu umhverfis Færeyjar og ísland". Samningur þessi var undirritaður í Lundúnum 24. júní 1901 og birtur hérlendis með konunglegri auglýsingu 28. mars 1903. Með samningnum 1901 var endir bundinn á fiskveiðideilu íslendinga og Breta sem staðið hafði frá miðjum síðasta áratugi 19. aldar og varð einna hörðust árin 1896 og 1897, er Bretar sendu skólaflotadeild á íslandsmið, m.a. til að fylgjast með atburðum á miðunum, leita að samnings- grundvelli sem leitt gæti til bráðabirgðasam- komulags og til að sýna veldi Bretlands á höfunum.1 Athuganir á samskiptum íslands og Bret- lands undanfarnar aldir hafa verið næsta snar og áhugaverður þáttur í íslenskum sagnfræðirannsóknum síðari ára.2 Hvað samskipti þjóðanna vegna fiskveiða áhrærir hefur Björn Þorsteinsson öðrum fremur lagt grundvöll að umræðu og frekari rann- sóknum á einstökum þáttum þessarar sögu.3 Fyrri rit um fiskveiðideilu íslendinga og Breta 1896 og 1897 og landhelgissamning- inn 1901 einkenndust af býsna þjóðernis- sinnuðum viðhorfum.4 Gunnlaugur Þórðar- son sagði t.d. landhelgissamninginn 1901 „allt að því nauðungarsamning“, sem ætti sér að forsendu „eins konar nauðungarlög- gjöf“, sem „Bretar með nauðung og svikum þvinguðu Alþingi til að koma á.“5 Hér á Gunnlaugur væntanlega við að Bretar hafi „þvingað Alþingi" með herskipavaldi til að milda lög um bann við botnvörpuveiðum sem sett voru 1894, jafnframt því að svíkja gefin fyrirheit um friðun afmarkaðs hluta Faxaflóa (8 mílur til hafs frá Reykjavík), þegar landhelgissamningurinn var gerður. Röksemdafærslan að baki þessara og svip- aðra fullyrðinga á sér þó litla stoð í veruleik- anum, eins og ég ræddi nokkuð í ritgerð í tímaritinu Sögu 1980. Landhelgissamning- urinn 1901 hefur verið nefndur „svínakjöts- samningurinn" eða „flesksamningurinn", og því verið haldið fram að Bretar hafi knúið Dani til samninga með efnahags- þvingunum.6 Því hefur enn verið haldið á lofti að samningurinn hafi verið gerður í trássi við vitund og vilja íslenskra þingm- anna og er erfitt að mæla gegn þeirri rök- semd.7 Á hinn bóginn var Alþingi fullkunn- ugt um tilvist samningsins þegar árið 1901 og a.m.k. einn þingmaður fagnaði honum í þingræðu það ár, þegar samþykkt voru lög 61 k

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.