Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Síða 68

Sagnir - 01.10.1983, Síða 68
Sumarliði R. ísleifsson: Afdrifarík mistök eða eðlileg ráðstöfun? Um lokun íslandsbanka árið 1930 í þessum greinarstubb er ætlunin að gera grein fyrir lokun íslandsbanka á árinu 1930, deilum um framhald bankastarfseminnar og hvernig beri að meta lokun bankans. Áður en það verður gert, er nauðsynlegt að gera í stuttu máli grein fyrir sögu bankans og erfiðleikum hans á 3. áratugnum. Lokun bankans var mikið deiluefni á sínum tíma og skiptust þing og þjóð í and- stæðar fylkingar í málinu. Deilunum fylgdi mikil harka og var það í fullu samræmi við stjórnmálabaráttuna að öðru leyti á þessum tíma. Geta má þess að það mál sem kom næst íslandsbanka sem helsta bitbein stjórnmálamanna og almennings á árinu 1930, var geðheilbrigði dómsmálaráðherr- ans Jónasar Jónssonar, eða „stóra bomban" sem margir kannast við. Menn hafa komist að ólíkum niðurstöð- um um það hvernig meta eigi lokun bank- ans. Þegar hún átti sér stað, voru sjónarmið- in allt frá því að hún væri mjög alvarleg mistök, til þess að lokun bankans væri hags- rnunum þjóðarinnar til hins mesta fram- dráttar. í seinni tíð hefur þessu ýmist verið svarað á þann hátt að lokunin væri eðlileg afleiðing af efnahagsörðugleikum 3. áratug- arins og mistökum forráðamanna bankans, eða þarna hafi verið um mistök að ræða. 66 Ólafur Björnsson prófessor tekur undir seinni afstöðuna í sögu íslandsbanka og Útvegsbankans, sem út kom 1981. í greininni verður lögð áhersla á að svara þessum spurningum. Rétt er þó að geta þess að það sem hér birtist er hluti stærra verks og því kunna ýmsar fullyrðingar sem hér koma fram að þykja lítt rökstuddar. En það verður að hafa það. Ágrip af sögu bankans til 1930 Islandsbanki starfaði í 26 ár eða frá 1904- 1930. Á þeim tíma urðu miklar breytingar í íslensku þjóðlífi, bæði stjórnmálalegar og efnahagslegar. Frá aldamótum og fram til fyrri heimsstyrjaldarinnar átti sér stað hröð atvinnuuppbygging, togaraútgerð hófst og náði þroska. Stórrekstur varð í fyrsta sinn til í íslenskri sögu. Fjármagn íslandsbanka, sem nánast eingöngu var erlent, skipti miklu máli í þessari uppbyggingu og bank- inn átti verulegan þátt í að fjármagna togara- kaupin, en þau voru mest á árunum 1905- 1912. Staða bankans var í aðalatriðum góð til , loka fyrri heimsstyrjaldarinnar en í lok hennar lentu útflutningsatvinnuvegirnir í miklum erfiðleikum og þar af leiðandi einn- ig íslandsbanki. Þessir erfiðleikar voru
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.