Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Side 72

Sagnir - 01.10.1983, Side 72
hálfu stuðningsmanna bankans. Hún fór fram á þann hátt að þess var farið á leit við sparifjáreigendur í bankanum að þeir breyttu innistæðum sínum, a.m.k. að hluta, í hlutafé. í þriðja lagi þurfti að leita mála- miðlunar innan Framsóknarflokksins, til að koma í veg fyrir klofning hans. Sú leit virð- ist hafa gengið treglega. Því til stuðnings má benda á að þann 22. febrúar neitaði fjár- málaráðherra, Einar Arnórsson, að hafa lofað nokkru um hlutafjárframlög af hálfu ríkisins, en á slíku vilyrði byggðist hluta- fjársöfnunin. Pann 27. febrúar tók „litla íhaldið", eins og Héðinn Valdimarsson kallaði 6-menn- ingana í Framsókn, af skarið, með frum- varpi Ásgeirs Ásgeirssonar um endurreisn íslandsbanka. Er trúlegt, að meiri hluti Framsóknarflokksins hafi þar með staðið frammi fyrir þeim valkosti, að gangast inná málamiðlun, eða láta stjórnina falla að öðrum kosti. Málamiðlun varð niðurstaðan og í samræmi við það lét fjármálaráðherra semja frumvarp um stofnun Útvegsbankans Sveinn Björnsson var sendiherra í Danmörku árið 1930 og hafði aðalforgöngu um að ná samningum við aðallánadrottna íslandsbanka erlendis. h/f og bætti því framan við áðurgreint frum- varp um skiptameðferð á íslandsbanka. í því formi var frumvarpið endanlega sam- þykkt þann 7. mars gegn atkvæðum Alþýðu- flokksins. Lögin um Útvegsbanka íslands h/f voru að verulegu leyti byggð á frumvarpi Ásgeirs Ásgeirssonar og samningsumleitunum Sveins Björnssonar. Helstu ákvæði laganna voru: Bankinn skyldi vera hlutafélagsbanki og átti hlutafé að nema 2,5 milljónum króna. Þar af skyldi ríkissjóður leggja fram 1,5 milljónir en 1 milljón kr. skyldi safna innanlands. Á hluthafafundum skyldu engar takmarkanir vera á atkvæðisrétti, aö því er varðaði hlutafé ríkissjóðs. Síðan voru ákvæði um að íslandsbanki skyldi renna inní Útvegsbankann og hætta að vera til sem sjálfstæð stofnun, að full- nægðum ákveðnum skilyrðum. Væri þeim hins vegar ekki fullnægt átti að taka bank- ann til skipta, samkvæmt upphaflega frum- varpinu. Helstu skilyrðin voru: Ríkissjóður lofaði að leggja fram sem forgangshlutafé í íslandsbanka, 3 milljónir króna og átti þetta fé að greiðast af skuld bankans við ríkissjóð vegna „enska lánsins.“ Gegn þessu varð að leggja fram a.m.k. 1,5 milljónir kr með hlutafjársöfnun innanlands og hagstæðir samningar urðu að nást við aðallánadrottna erlendis.4' Lögin gengu að því leyti lengra en frum- varp Ásgeirs, að gert var ráð fyrir að íslandsbanki yrði lagður niður og eignir hans og skuldir rynnu til Útvegsbankans. Hér var því um nýja stofnun að ræða. í frumvarpi Ásgeirs var hins vegar gert ráð fyrir að íslandsbanki héldi áfram starfsemi sinni, en breytti um nafn í árslok 1930, í Verslunar- og Útvegsbanka fslands. Auk þess gerði frumvarp Ásgeirs ráð fyrir að gömlu hlutabréfin yrðu niðurskrifuð sam- kvæmt mati, en með lögunum var ákveðið, að þau skyldu afskrifuð sem töpuð.5) Með þessum ákvæðum hefur verið reynt að koma til móts við hörðustu andstæðinga bankans, bæði í Framsóknarflokknum og Alþýðuflokknum. Stuðningur krata fékkst 70

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.