Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Síða 77

Sagnir - 01.10.1983, Síða 77
Sigurður Nordal, Gylfi P. Gíslason, Halldór Laxness og Tómas Guðmundsson voru meðal þeirra sem undirrituðu áskorun til Alþingis um að stofna ekki lýðveldi meðan Danmörk vœri hernumin afnasistum. stutt lögskilnaðarmenn að nokkru leyti (fjölmargir kratar skrifuðu t.d. undir áskoranir lögskilnaðarmanna)þó ekki verði sagt að flokkurinn hafi lagt mikla áherslu á þetta mál. Enda verður að taka skýrt fram að lögskilnaðarmenn voru ekki andvígir stofnun íslensks lýðveldis, vildu aðeins fresta henni. Svo vikið sé að röksemdum lögskilnað- armanna í sjálfstæðismálinu. í því efni verður stuðst við greinar í bæklingi þeirra sem áður er nefndur, auk þess sem vitnað verður til greina sem birtust í tímaritinu Helgafell um þetta efni. túlkun Bjarna Benediktssonar sem hélt því fram að íslendingar gætu rift samningnum þar sem Danir fullnægðu ekki skilmálum hans. Jón sagði hins vegar að neyðarástand meinaði Dönum að fullnægja skyldum sínum og samkvæmt þjóðarétti teldist það ekki saknæmt af hálfu Dana þegar svo stæði á.5> Túlkun Jóns var studd af öllum þeim sem fylgdu lögskilnaði á annað borð. Þeir sáu þá hættu fólgna í einhliða riftun laganna að Danir yrðu hinir þverustu í viðskiptum við íslendinga í framtíðinni. T.d. benti Ingimar Jónsson skólastjóri á að erfitt kynni að reynast að semja við Dani um afhendingu menningarminja ýmiskonar eins og kom reyndar á daginn varðandi handritin.6) Það verður víst seint komist að endan- legri niðurstöðu um lagalegu hlið þessa máls, enda vissu lögskilnaðarmenn að laga- flækjur dygðu skammt. Þeir skutu því fleiri stoðum undir málstað sinn. Hin siðferðilega hlið Það var áberandi í málflutningi lögskiln- aðarmanna að Danir, dönsk yfirvöld og danska pressan væru jákvæð gagnvart hug- myndum um íslenskt lýðveldi, að því til- skildu að íslendingar færu að lögum. Ef við riftum sambandslögunum einhliða myndi það kalla á önnur og verri viðhorf frá hendi Dana. Þeir myndu líta á slíkt sem fjand- skaparyfirlýsingu og stefnt yrði í voða 75 Sambandslögin - lykillinn að lýðveldi íslendinga Einn veigamesti þátturinn í rökum lög- skilnaðarmanna var sá að sambandslögin frá 1918 tryggðu íslendingum rétt til að stofna lýðveldi, þegar þau gengju úr gildi. Þau væru uppsegjanleg 25 árum eftir gildis- töku þeirra (eftir árslok 1940) og skyldi samið um endurskoðun laganna að þeim tíma liðnum. Ef ekki yrði komist að sam- komulagi að 3 árum liðnum frá uppsögn samningsins gæti Alþingi fellt hann einhliða úr gildi.4' Lögskilnaðarmenn bentu á að sakir her- náms Danmerkur gætu Danir ekki samið um endurskoðun sambandslaganna. Því væri það brot á lögunum að fella þau úr gildi. Jón Ólafsson lögfræðingur deildi á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.