Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Side 84

Sagnir - 01.10.1983, Side 84
einmitt þess háttar breytingaskeið, því eru þau bæði forvitnileg og tímafrek til rann- sókna. Nú liggur fyrir að miðla rannsókn minni til þeirra, sem lifðu þessar breytingar og hinna, sem fæddust í það umhverfi, sem stríðið mótaði. Mér finnst þetta verkefni vel þess virði að vinna það. Ég hef haft áhuga á síðari heimsstyrjöldinni síðan ég man eftir mér. Ólík viðhorf — Nú ertu að skrifa um samskipti íslend- inga við aðrar þjóðir. Líta útlendingar ekki oft öðru vísi á hlutina en við eigum að venjast úr okkar sögubókum? — Jú, mikil ósköp. Það er oft skemmtilegt að kynnast ólíkum viðhorfum til sömu hlut- anna. Samkvæmt ýmsum íslenskum bókum mætti til dæmis halda, að önnur hver kona hafi verið í „ástandinu“ og hinar látið sig dreyma um að komast í það. í breskum og bandarískum gögnum er hins vegar dregin upp allt önnur mynd af þessu. Par kemur fram, að íslenskar konur hafi yfirleitt ekki viljað líta við hermönnum og sýnt þeim kulda og hroka. Annað sem kemur í hugann er það við- horf ýmissa íslendinga, að þjóðin hafi verið saklaus og óspillt, áður en landið var her- numið. Bretar og Bandaríkjamenn virðast hins vegar aldrei hafa séð þessa hlið á þjóð- inni. í þeirra gögnum er íslendingum iðu- lega lýst sem mestu viðsjálsgripum í við- Úr síðari heimsstyrjöld. Loftvarnarbyrgi við Lœkjargötu, á svipuðum slóðum og útitaflið er nú. skiptum og lauslátum í siðferðisefnum. Breskir prelátar höfðu jafnvel áhyggjur af því, að fjöllyndar ungmeyjar á íslandi kynnu að draga saklausa drengi í hernum á tálar. Það yrði að koma í veg fyrir þetta, því annars sneru þessir ungu menn heim spilltir á sál og líkama. Breskar dyggðir voru taldar í hættu hér á þessu synduga landi. — Hvað tekur við hjá þér þegar styrjald- arsögunni sleppir? — Á döfinni hjá mér er annað mikið verk- efni þar sem er ævisaga Thors Thors. Við það verkefni nýt ég m.a. dagbóka Thors, sem eru mjög merkilegar heimildir. Ég er líka með á prjónum rit um íslensk utanrík- ismál frá stríðslokum og fram til 1951 og hef lagt nokkur drög að því. t 82

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.