Sagnir - 01.06.2007, Síða 57
Kynleiðréttingar á íslandi
trans-sex-u-al...
1. a person having a strong desire to assume the physical
characteristics and gender role of the opposite sex.
2. a person who has undergone hormone treatment
and surgery to attain the physical characteristics of the
opposite sex.2
Samkvæmt þessum útskýringum er transsexúal einstaklingur ekki að
skipta um kyn, heldur hefiir hann lokið því ferli eða lifir í því kynhlutverki
sem samsvarar innri sannfæringu og skilgreinir sig út ffá því.
í íslenskri orðabók finnst heitið kynskiptingur og þýðir það:
Kyn|skipt|ingur... maður (karl eða kona) sem skiptir
um kyn (með læknisaðgerð).3
Hugtakið kynskiptingur á hins vegar illa við. Anna K. Kristjánsdóttir
útskýrir að orðið kynskiptingur eigi aðeins við um einstakling sem
er í þann mund, eða er í því ferli sem þarf til, að breyta eða leiðrétta
líkamlegt kyn. Þegar einstaklingurinn hefur lokið þessu ferli er hann
ekki lengur kynskiptingur heldur karl eða kona. Einnig hefur hún bent á
að það fólk, sem gengst undir slíkar aðgerðir, er að samræma líkama og
sál; líkaminn er því lagfærður eða leiðréttur.4 Þar með má frekar tala um
leiðréttingu kyns í stað kynskiptingar. Þar sem íslenskan býður ekki upp
á betra orð né hugtak að svo stöddu verða hugtökin transsexúalismi,
transsexúalisti og kynleiðrétting notuð í þessari ritgerð.
Kynáttunarvandi og kyngervisvandi
í handbók samtaka bandariskra geðlækna um geðræn vandamál
(American Psychiatric Association, DSM-IV-TR) er einkennum
kynáttunarvanda (e. gender identity disorder) og kyngervisvanda (e.
gender dysphoria) lýst á eftirfarandi hátt:
Sterk og þrálát samsvörun við andstætt kyn ásamt
óþægindum tengdum við eigið kyn. Kynáttunarvandi á
við sjálfskynjun einstaklings sem karl- eða kvenkyns.
Hugtakið kyngervisvandi gefur í skyn sterk og þrálát
óþægindi í sambandi við líkamlegt kyn, löngun til að
hafa líkama hins kynsins, og ósk um að aðrir sjái sig í
því kyni.5
Oft er kyngervisvandi og einkenni hans talið eiga við alla transsexúalista,
en í raun á kyngervisvandi meira skylt við sálræna erfiðleika sem
fylgja því að fæðast í röngu kynhlutverki, svo sem þunglyndi, depurð,
reiði, kvíði o.fl. Þessir erfiðleikar tengjast oftar en ekki líkamlegum
eiginleikum, sér í lagi kynfærum, og leiða þeir oft til þess að fólk skaði
sjálft sig, sem er ekki óalgengt meðal fólks með kyngervisvanda.6
Hvað er transsexúalismí?
Hér að ofan eru útskýringar á hugtökunum transsexúalismi og
kynáttunarvandi. Útskýringamar em nokkuð góðar og sýna í einfoldu
máli hvað það getur falið í sér að vera transsexúalisti. I dýpri merkingu
em transsexúalistar:
Einstaklingar sem hafa sterkar tilfinningar fyrir því að
þeir séu, eða ættu að tilheyra hinu kyninu. Líkaminn
sem þeir fæddust í samsvarar ekki sannfæringu þeirra
né hugmynd um hveijir þeir em eða vilja vera. Þeim
líður heldur ekki vel í því kynhlutverki sem samfélagið
ætlast til af þeim út ffá þessum líkama. Þetta ástand
skapar veraleg tilfinningaleg vandamál og kvíða, og
tmflar oft daglegt lif þeirra.7
Mikilvægt er að taka það fram að transsexúalismi hefur ekkert
með kynhneigð, kynlíf né kynhegðun að gera. Með leiðréttingu
á kyni skilgreinast „fyrmm“ gagnkynhneigðir einstaklingar sem
samkynhneigðir og öfugt, en hvorki er verið að styrkja, breyta né
leiðrétta kynhneigð fólks með kynleiðréttingu. Transsexúalismi snýst
um kyngervi og kynhlutverk.8
Þegar nánar er litið á transsexúalisma og hvað hann i raun merkir
sést að honum fylgir ofl áralöng barátta, fordómar, sjálfsvöm og
líkamlegar breytingar. Einstaklingar, sem gangast undir aðgerðir til
leiðréttingar á kyni, hafa oftar en ekki fundið fyrir löngun til að leika
annað kynhlutverk, eða óþægindum gagnvart eigin kynhlutverki, síðan
í bamæsku. Flestir transsexúalistar segja unglingsárin vera mjög erfið,
en á kynþroskaárunum breytist líkaminn í karl eða konu, andstætt við
innri sannfæringu einstaklinganna, og með því hverfa æskudraumar um
að þeir verða/i rétt kyn þegar ég verð stór.9 Þessar tilfinningar em í
mörgum tilfellum faldar eða bældar niður og koma ekki í ljós fyrr en á
fúllorðinsárum.'0
Ofitast nær fá þær manneskjur, sem sækjast eftir kynleiðréttingu,
aðstoð ffá læknum. Em það þá geðlæknar, sálffæðingar, kvenlæknar,
skurðlæknar og aðrir sem sérhæfa sig í kynleiðréttingum
Kynleiðréttingarferlinu fylgir oft langur undirbúningur, og í mörgum
löndum er hann skylda. Undirbúningurinn fer ffam með viðtölum við
lækna, viðtölum og meðferð hjá geðlæknum og tilraun til að lifa í réttu
kynhlutverki í nokkra mánuði eða ár. Undirbúningur fyrir það að vakna
í réttum líkama í fyrsta skipti á ævinni er nokkuð flókinn, spennandi og
getur valdið þeim sem ganga í gegnum hann kvíða."
Kynleiðréttingaraðgerðin sjálf er að sjálfsögðu áhættusöm, rétt
eins og allar læknisaðgerðir. Hjá einstaklingum sem fara í konu-í-karl
aðgerðir er myndaður gemaðarlimur ffá svæðinu sem umlýkur snípinn.
Það svæði er skorið og losað ffá til að mynda liminn og er taugaendum,
og þar með næmni, haldið við. Limurinn er hins vegar oftast það lítill
að ekki er hægt að stunda samfarir. Aðrar leiðir em mögulegar, en fela
í sér flóknar aðgerðir þar sem húð er tekin af öðrum hluta líkamans og
gemaðarlimur myndaður úr henni. Tvenns konar aðferðir em tíðkaðar,
með annarri er myndaður limur sem nær hvorki kynferðislegri örvun
né fúllnægingu og getur einstaklingurinn ekki staðið við þvaglosun.
Hin aðferðin gerir þessa hluti mögulega, þó með erfiðleikum. Báðar
aðgerðimar em mjög flóknar og erfiðar (og þarf að ffamkvæma fleiri
en eina til að fúllkomna liminn) og skilja eftir sig mikil ör. Hægt er að
mynda eistu úr húð sem þegar er til staðar og er gervieismm komið fyrir
í þeim.12
Hjá einstaklingum sem fara í karl-í-konu aðgerðir er húð
getnaðarlimsins nomð til að mynda leggöng, en búið er til op fyrir
þau sem þarf að viðhalda í nokkra mánuði eftir aðgerðina. Snípur
er myndaður úr taugaendum og húð ffá getnaðarlimnum. Flestir
einstaklingar, sem gangast undir slíka aðgerð, geta enn smndað
fúllnægjandi kynlíf og, ef skurðlæknum tekst vel til, þá geta kynfærin
litið eins út og á líffræðilegum konum eftir slíka aðgerð.13 Karl-í-konu
aðgerðir heppnast oftast betur en konu-í-karl aðgerðir.
Auk þessara aðgerða, sem snúa aðeins að kynfærum, er einnig hægt
að fara í margs konar aðgerðir til að fjarlægja eða koma fyrir btjósmrn,
strekkja raddbönd, fjarlægja hár og ýmsar aðrar lýtaaðgerðir.14
Að lokinni aðgerð er effir mikil breyting hjá þeim einstaklingum
sem loks hafa eignast líkama sem samsvarar innri persónu þeirra.
Nafnabreyting, breyting á skólaskrám, vegabréfi, ökuskírteini,
fæðingarvottorði og þess háttar þarf að fylgja í kjölfarið og síðast en
ekki síst þarf að horfast í augu við fjölskyldu, vini og vinnuveitanda,
en eins og áður kom fram þurfa transsexúalistar að mæta margvíslegum
Sagnir - 53