Sagnir - 01.06.2007, Blaðsíða 69
Hugmyndafræði að verki
ijárfesting til framtíðar en einangrunarstefna. Með þátttöku í breytingum
álfunnar og þá sér í lagi aðildar að EES-samningnum hafa íslenskir
stjómmálamenn gengist viljugir undir lagaþróun undangenginna ára
en í dag er innan við helmingur reglna innan ríkja Evrópusambandsins
upprunnar innan þjóðríkjanna sjálfra. Má jafnvel tala um nýja túlkun
á fullveldishugtakinu í þessu samhengi.15 Fyrst þátttaka Islands er
staðreynd, á hvaða forsendum gat þá ríki með óumdeilanlegt sjálfstæði
réttlætt þátttöku í slíku ferli?
Spumingar um hvaða þýðingu þessi Evrópuþróun hefði fyrir sjálfstæði
landsins og stöðu þess sem fullvalda rikis vöknuðu óhjákvæmilega
innan íslensks samfélags. Hámarki náðu deilur um Evrópusamþættingu
með aðildarviðræðum íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, samnings
sem fól óhjákvæmilega í sér erlent yfirvald í einhverjum skilningi.16
Alþjóðastjómmál íslands telur Guðmundur Hálfdanarson þannig byggð
á praktískum lausnum á vandkvæðum smáríkja, lausnum sem fela í sér
verulegt alþjóðlegt samstarf án þess að viðurkenna að hugmyndin um
fullveldi þjóða hafi breyst verulega síðan Island gekk í klúbbinn. Þar
sem markmið pólitískra ákvarðana telst vera að vemda og varðveita
sjálfstæði og fullveldi landsins hefur sú staðreynd orsakað ákveðinn
tvískinnung. Þannig snúast umdeild efni - hvort heldur sem er um
vamarmál eða umhverfismál - nær undantekningarlaust um þemu
tengd þjóðemishyggju. íslenskir stjómmálamenn hafa þar af leiðandi
ekki notað þjóðaratkvæði í málefnum sem snerta ímyndir þjóðarinnar
nema það sé algerlega á hreinu að með atkvæðagreiðslunni sé fullveldi
og sjálfstæði landsins styrkt og ömggur sigur tryggður, líkt og við
stofnun lýðveldisins eða fyrstu stjómarskrá. Málefni sem þjóðin hefur
ekki verið spurð álits á hafa þó síst verið lítilvægari svo sem NATO
aðild, vamarsamningurinn við Bandaríkin, EFTA og nú síðast EES
samningurinn.17 Amar Guðmundsson bendir hins vegar á að átök
um utanríkisstefnu og Evrópusammna hafi laðað fram undirliggjandi
hugmyndir um þjóð og þjóðríki. Þegar breytingar líkt og þær fyrmefndu
séu yfirvofandi verði tekist á um „gildi hugtaka á borð við þjóðríki og
fullveldi“ og þannig birtist söguskilningur þjóðarinnar ljóslifandi. I
því samhengi sé einnig mikilvægt að undirstrika að þjóðemismýtur og
samfélagsleg söguskoðun em „hvorki óumbreytanlegar né óumdeildar."
Amar telur þannig að þjóðemismýtur breytist í kjölfar breyttra
aðstæðna þar sem þær verði „fyrir áhrifum ffá stjómmálabaráttu
samtímans, sem snýst öðmm þræði um yfirráð yfir túlkun sögunnar."
Hann bendir á kenningar Antonio Gramsci sem staðhæfði að ríkjandi
þjóðemishugmyndir væm „mikilvæg valdatæki"19 og að baráttan um
vald snerist um að „gera sína eigin túlkun, heimssýn eða söguskoðun að
ríkjandi skilningi í samfélaginu, einskonar „heilbrigðri skynsemi" sem
allar aðrar hugmyndir yrðu metnar út frá.“
Afstaða íslenskra stjómvalda er þannig afar flókin. Djúpstæð
hugmyndafræði um eilíft og ósnertanlegt fullveldi átti sér vafalaust
öraggan stað í hjarta íslenskra stjómmálamanna en um leið neyddust
þeir til að bregðast við breyttum aðstæðum handan við hafið. Þar sem
ókleift reyndist að fella þátttöku í Evrópusamþættingu við ríkjandi
hugmyndaffæði var gripið til þess ráðs að reka tvöfalda og afar
ósamstæða stefnu: 1) Hugmyndirum ævarandi og ósnertanlegt sjálfstæði
styrktust 2) á sama tíma og og de facto stefna ríkisins leiddi til aukinna
erlendra áhrifa og yfirráða. Þessi tvöfalda stefna virðist órökrétt við
fyrstu sýn en undirliggjandi ástæða hennar var jafn tvöföld og stefnan
sjálf. Stjómmálamenn urðu jafnt og aðrir landsmenn fyrir þjóðemislegri
skilyrðingu sem gerði þeim erfitt að yfirgefa rikjandi hugmyndafræði
en veigameira er að íslenskar þjóðemismýtur vom og era valdatæki
stjómmálamanna. Með því að styrkja þessi gildi styrktu stjómmálamenn
einnig tök sín á þjóðinni. Þjóðemismýtur em ekki óbreytanlegar, líkt
og Amar Guðmundsson benti á, og ef aðstæður landsins breyttust er
rökrétt að álykta að aðgerðir stjómvalda og valdatæki þeirra hafa orðið
að breytast í samræmi við það.
Evrópusinninn Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðhcrra og formaður Alþýðuflokks, var einn
ötulasti stuðningsmaður EES samningins. Hélt því
fram að ísland fengi „allt fyrir ekkert“ með undirritun
samningsins og vann að því öllum árum að koma honum
í höfn. Jón Baldvin hefur ekki skipt um skoðun varðandi
Evrópusamvinnu á síðari árum og telur í dag að ísland
ætti að „hætta í ruglinu“ og ganga í Evrópusambandið.
Túlkunarmöguleikar fullveldisins
Hinn 12. janúar 1993 var samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið
samþykktur á Alþingi með 33 atkvæðum gegn 23 en sjö þingmenn kusu
að sitja hjá. Af stuðningsmönnum samningsins gerðu 19 þingmenn
grein fyrir atkvæði sínu og af þeim hópi staðhæfðu 12 að atkvæðaval
þeirra væri afþjóðemislegum toga.20 Afþessarri tylft þjóðemissinnaðra
þingmanna tiltóku flestir sama hlutinn: að samningurinn styrkti eða
tryggði frekara sjálfstœði Islands. Allir þessarra þingmanna Sjálfstæðis-
og Alþýðuflokks vísuðu til markaða og atvinnulífs sem burðarstoða
sjálfstæðisins. Samkvæmt þessarri rökfærslu þingmannanna var
sjálfstæðið og fullveldið því eflt með því að styrkja þessar stoðir
sjálfstæðisins. Formaður Alþýðuflokks og utanríkisráðherra landsins,
Jón Baldvin Hannibalsson, taldist einn ötulasti stuðningsmaður
samningsins en hann hélt því fram að ísland hefði fengið „allt fyrir
ekkert“ með samningnum.21 En ef undirliggjandi ástæður fyrir gildistöku
EES vom efnahagslegar hvemig gátu stjómmálaflokkar og þingmenn
fellt gamalgrónar mýtur að þessari þróun? Af þeim fimm flokkum sem
sátu á þingi árið 1993 telur Amar Guðmundsson að Alþýðuflokkurinn
hafi verið eini stjómmálaflokkurinn sem hafði „ekki talið sig of „sér-
íslcnskan" til að taka þátt í alþjóðlegum samtökum"22 og ennfremur
gagnrýntþjóðemishyggju annarraflokka. Þrátt fyrirþessaalþjóðahyggju
notuðust flokksmenn Alþýðuflokks þó óspart við þjóðemishlaðna
orðræðu og hljótum við að spyrja okkur hvers vegna. Ef flokkurinn var
alþjóðasinnaður, hví notaðist hann við þjóðemissinnaða rökfærslu - líkt
og „komminn" Einar Olgeirsson gerði mörgum áratugum fyrr? Össur
Sagnir - 6S