Sagnir - 01.06.2007, Side 84

Sagnir - 01.06.2007, Side 84
íslenzkar Gramóphón-plötur óska samstarfs yðar til þess að ná sem hagkvæmustum samningum við félagið um útgáfu slíkra platna, öflun gjaldeyris til innflutnings etc. Þann 31. október 1949 gerðu útvarpið og Fálkinn svo með sér samning um útgáfu á plötunum. Meginefni hans er að Fálkinn má velja þær upptökur sem hann telur vænlegar til útgáfu að því tilskildu að hann greiði helming af útlögðum kostnaði varðandi upptökumar. Útvarpið fær ennfremur 10 eintök af hverri plötu til afnota án endurgjalds. Afrakstur þessa samstarfs var svo að 21 plata var gefin út með ýmsum flytjendum. Fyrstu átta plötumar komu á markað hér snemma árs 1951 en afgangurinn, 13 plötur, kom út í október árið eftir. „íslensk" hljómplötuútgáfa hefst Segja verður að íslensk plötuútgáfa í eiginlegum skilningi hefjist 1952 þegar farið var að gefa út plötur undir íslenskum merkjum án beinnar tengingar við erlend hljómplötufyrirtæki. Þótt ein plata hafi komið út á vegum íslenskra tóna 1948 var deilt um lögmæti þeirrar útgáfu sem síðar verður greint frá. Því er réttast að miða við árið 1952 þegar marka skal upphafið að endurreisninni í plötuútgáfú á íslandi. Stjómvöld flokkuðu hjómplötur sem munaðarvöm og því var lengi 80% innflutningstollur á öllum hljómplötum, nema málakennsluplötum. Til samanburðar bar tóbak lengi 10% toll. A þessu varð breyting árið 1952 þegar tollar á íslenskum hljómplötum vom lækkaðir. Það ár náðust samningar um lækkun tolla á íslenskum plötum og urðu þær þá 20% ódýrari en þær erlendu. Tollalækkanir og greiðari aðgangur að gjaldeyri ásamt hinni gríðarlegu eftirspum, sem hafði myndast eftir íslenskum plötum, hefúr eflaust valdið því hve mikil áhersla hljómplötuútgáfanna var á hina „íslensku" hljómplötu og íslensk lög og vom textamir á plötunum nær undantekningarlaust á íslensku. íslenskir tónar Árið 1947 fór 19 ára Reykvíkingur, Tage Ammendmp, að láta kveða að sér í tónlistarlífi Islendinga: ffann var áhugamaður um klassíska tónlist og hafði lært á fiðlu í mörg ár, auk þess sem hann lék á mandolin í Mandolinhljómsveit Reykjavíkur. Hann hafði einnig mikinn áhuga á jazz-tónlist og var opinn og áhugasamur um dægurtónlist. Árið 1947 stofnaði Tage Ammendmp fyrsta íslenska hljómplötuútgáfúf yrirtækið, íslenska tóna, og tók það til starfa 12. apríl. „Ástæða þess að Tage stofnaði plötuútgáfú var ekki síst að sárlega vantaði islenskar plötur eftir stríð." Hljóðver var sett upp í bakherbergi í Hljóðfæraversluninni Drangey að Laugavegi 58, sem var í eigu fjölskyldu Tage og hafði umboð fyrir útgáfúna. Hljóðverið var 3 sinnum 7 metrar að stærð og að sögn Alþýðublaðsins mátti koma þar fyrir allt að sex manna hljómsveit. Islenskir tónar var hljóðver rekið með sama sniði og almennt tíðkaðist síðar í hljóðvemm. Það var ætlað almenningi, bæði til útgáfú og einkanota. Tage hafði samstarf við norska hljómplötufýrirtækið „Norsk Telefúnken" um ffamleiðslu á þeim plötum sem gefa átti út en frumupptökumar („masterarnir") vom sendir til höfúðstöðvanna í Osló og pressaðir þar. Hljóðver Tage hefúr samt verið ófúllnægjandi til plötuútgáfú enda var aðeins ein plata gerð þar til útgáfú, plata Bjöms R. Einarssonar. Björn R. Einarsson og fyrsta plata íslenskra tóna Tónlistarlífið fyrst eftir stríð einkenndist mjög mikið af djassi og var enda mikil djassvakning í gangi á þeim ámm. Menn reyndu að spila mikinn djass og kom það til vegna áhrifa ffá bandarísku hermönnunum sem vom hérlendis. Bandaríski herinn flutti með sér hljómplötur hingað til lands, á plötunum var oft djass og vinsæl amerísk dægurlög. Margar af þessum plötum komust í hendur almennings. Þessar plötur hlýddu Bjöm R. Einarsson og félagar á og reyndu að stæla þær og læra ný lög. Djassblað Tage var einnig afkvæmi jassvakningarinnar. I nóvemberblaði Jazz 1947 segir í leiðara að tímaritið hafi gengist fyrir útgáfu á fyrstu íslensku djassplötunni sem eigi að koma út eftir áramótin og var hún leikin af Bimi R. Einarssyni og hljómsveit. Þessi fyrstahljómplataíslenskratónabarútgáfúnúmeriðlM 1 og innihélt lögin „Christofer Columbus“ og „Summertime.“ Upphaflega hafði einungis verið ætlunin að syngja fyrra lagið „Christofer Columbus" til pmfú en til að nýta báðar plötuhliðamar söng Bjöm inn lagið „Summertime" sem hann var nýbúinn að fá. Bjöm var einmitt kjörinn besti sögvarinn árið 1947 samkvæmt Jazz og hljómsveit hans sú besta. Nokkmm mánuðum síðar fékk Bjöm að heyra reynslueintak af laginu „Christofer Columbus" og honum tilkynnt að þá væm í ffamleiðslu á fjórða hundrað eintök af plötunni sem ættu svo að fara í sölu. Þetta þvertók Bjöm fyrir, þar sem alls ekki hafði verið gert ráð fyrir slíku auk þess var platan óhæf til sölu vegna algjörlega ófúllnægjandi plötuupptöku, og svo var leikur hljómsveitarinnar ekki sem beztur. Þegar Tage Ammendmp sagði að búið væri að pressa plötuna og upplagið yrði ekki afturkallað bauðst Bjöm til að kaupa allt upplagið en því varhafnað. Plötuupplagið kom svo fráNoregi í nóvember 1948, 338 eintök, og fór í sölu föstudaginn 3. desember, „fyrir okurverð.“ Bjöm fékk sett sölubann á plötuna mánudaginn 6. desember og olli hún síðan málaferlum sem stóðu fram til ársins 1952 þegar Hæstiréttur staðfesti endanlegt bann við sölu á plötunni. Þjóðsagan segir að plötumar hafi einungis verið í sölu fyrir hádegi einn dag en eftir hádegi hafi lögbannið verið komið á og þeir sem hafi náð að kaupa plötuna þá séu þeir einu sem eigi eintök. Þetta er líklega ekki rétt ef marka má ffétt Jazzblaðsins ffá 1950 eftir að málið hafði verið tekið fyrir á fyrsta dómstigi: Dómsúrskurður i undirrétti féll þó þannig, nú fyrir stuttu, að leyft var að selja það sem eftir var (meiri partinn) af upplagi plötunnar, þar sem Bjöm hafði ekki tekið nógu strangt ffam í upphafi að ekki kæmi til mála að selja plötuna. Fæðing fyrstu íslensku útgáfú hljómplötunnar var því erfið og virtist sem fmmraun Tage Ammendrup væri litin homauga, a.m.k. af kollegum Bjöms R. Einarssonar, ef marka má grein Svavars Gests í Jazzblaðinu ffá 1950 en þar endaði grein sem fjallaði um plötuna svo: Leitt er að svo illa skildi hafa farið með fyrstu plötuna, sem íslenzk danshljómsveit leikur á. Þó fúrðar sennilega enginn sig á slíku, og síst hljómlistarmenn, því að afskipti Ammendrap af tónlistarmálum hér á landi munu ætíð verða honum til háðungar, meðan hugur hans er aðeins bundinn við að græða peninga á kostnað tónlistarinnar. 8o - Sagnir Að lokum

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.