Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.05.1967, Qupperneq 5
MILLI ALDARAFMÆLA
Arið 1963 var minnst aldarajmœlis Stefdns Stefánssonar skólameist-
ara. Að pví tilefni ákvdðu þrir grasafrœðingar, er þá störfuðu á Akur-
eyri, að hefja útgáfu tímarits, er eingöngu fjallaði utn islenzka grasa-
frœði. Þetta timarit er Flóra, og kom fyrsta hefti hennar út á þvi sama
ári, helgað minningu Stefáns.
Á þessu ári (1967) höldum við aftur upþ á aldarafmœli antiars braut-
ryðjanda og höfuðskörungs islenzkrar grasafrœði, Helga Jónssonar dokt-
ors, og minnumst um leið fimm ára afmælis Flóru.
Dr. Helgi varð aldrei þjóðkunnur maður, eins og Stefán, enda tók
hann litinn þátt í opinberum málarekstri. Hanti kaus að vinna störf
sin i kyrrþey, með nákvœmni og gerhygli visindamannsins. Hann valdi
sér þann plöntuflokk, að meginviðfangsefni, sem lítt var kunnur eða
virtur af almenningi, þ. e. sæþörungana, og varð því fyrstur islenzkra
manna til að leggja út i hinn torfæra myrkvið islenzkra lágplantna, sem
svo erti kallaðar.
En hvert er þá starf yðar orðið; má vera að þeir tirœðu spyrji, og
sjálfir getum vér spurt okkur: höfum vér ávaxtað arfinn, svo sem vert
væri? Það kann að vefjast fyrir okkur að svara þessu. Þó hygg ég, að
þau fimm Flóruhefti, sem út liafa komið milli hinna tveggja aldaraf-
mæla, beri þess nokktmt vott, að islenzk grasafræði eigi sér enn góða
formælendur.
Þvi verður að visu ekki neitað, að meginhluti efnisins i þessum fimm
heftum Flóru er nokkuð komið til ára sinna, og unglingarnir i grasa-
fræðingastéttinni eiga þar tiltölulega litinn hlut. Þetta á sér sínar eðli-
legti ástæðtir. 1 fyrsta lagi höfðti islenzkir grasafræðingar átt í erfiðleik-
um með birtingti rannsókna sinna, um alllangt skeið, þegar Flóra var
stofnuð. Handrit þeirra höfðu flest hafnað i skjalageymslum Ménning-
arsjóðs, eða á Náttúrugripasafninu i Reykjavik, og urðu því fáum ein-
um að gagni. Ég tel, að Flóra hafi þegar gegnt mjög mikilvægu hlut-
verki, með þvi að koma þessu gamla efni á framfæri. I öðru lagi eru
flestir hinna yngri. grasafræðinga, annað livort enn i tiámi, eða ný-
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓfa 3