Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.05.1967, Síða 8
öðruni fremur, en það voru kennarastöðurnar í Latínuskólanum og á
Möðruvöllum, livorugt vel launað og um þessar mundir setin af mönn-
um á bezta aldri, þeim Þorvaldi Tlioroddsen og Stefáni Stefánssyni.
Enda sýnir saga Helga Jónssonar það, að hve litlu var að liverfa fyrir
íslenzkan náttúrufræðing á þeim árum.
Æviatriði.
Helgi Jónsson fæddist að Miðmörk undir Eyjafjöllum 11. apr. 1867.
Foreldrar hans voru Jón Bjarnason prestur og kona lians Helga Árna-
dóttir. Skildu Jrau hjón samvistir skömmu síðar. Helgi var yngstur
fjögurra barna, sem upp komust, voru þau ein dóttir og tveir synir
aðrir, sem báðir urðu þjóðkunnir menn, síra Magnús Bl. Jónsson í
Vallanesi og Bjarni alþingismaður frá Vogi, en faðir þeirra hjó um
skeið í Vogi á Fellsströnd.
Síra Jón Bjarnason var talinn gáfumaður, en virðist hafa verið
nokkuð laus í rásinni. Skipti hann oft um dvalarstaði, Jrjónaði t. d. alls
5 prestaköllum í tveim landsfjórðungum, og var auk Jress hóndi um
skeið, en hjó seinast embættislaus í Reykjavík. Hann var áhugamaður
um stjórnmál og gaf út nokkra pólitíska pésa, og fékkst einnig við
skáldskap. En annt lét hann sér um menntun sona sinna, og má það
Jrrekvirki kallast af félitlum sveitapresti að kosta þrjá syni til embættis-
náms, einn á Prestaskólann en tvo til háskólans í Kaupmannahöfn.
Ekki er mér kunnugt um uppvaxtarár Helga Jónssonar, en þeim
mun liafa verið líkt farið og annarra sveitapilta um J^ær mundir. En
snemma mun menntabraut hans hafa verið ráðin, og 19 ára að aldri
settist hann í 3. hekk Latínuskólans í Reykjavík. Reyndist hann góður
námsmaður, en þó heilsuveill löngum, var oftast ofarlega í sínum bekk
og lauk stúdentsprófi með fyrstu einkunn 1890. Einkunnir lians eru
tiltölulega jafnar, nema ágætiseinkunn hlaut hann í eðlis- og stjarn-
fræði.
Námsgrein hans í háskóla mun hafa verið ráðin þegar á skólaárun-
um. Var hann þá jregar ötull að safna plöntum, og vekja áhuga skóla-
bræðra sinna á þeim fræðum, segir skólabróðir hans Árni Thorsteins-
son, að vegna samvistanna við Helga hafi hann tekið að safna plönt-
um í skóla og eignast þá fallegt plöntusafn. Á þessum árum var nátt-
úrufræðifélagið Mímir stofnað af nemendum Latínuskólans, og var
Helgi einn af forgöngumönnum Jress. Starfaði það síðan um langan
aldur.
Frá stúdentsprófi sigldi Helgi til Hafnar og hóf þar nám í náttúru-
6 Flóra - tímarit um ísi.enzka grasafræði