Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.05.1967, Blaðsíða 9
fræði nieð grasafræði að höfuðnámsgrein. Aðalkennari hans í þeim
fræðum var Eug. Warming, sem stóð nú í blóma líl's síns og frægðar
sem einn fremsti grasafræðingur um norðanverða Evrópu og einn af
brautryðjendunum í fræðigrein
sinni, einkum um félagsfræði
plantnanna. Ekki var orðstír hans
minni sem kennara og kennslubóka-
höfundar. Þar við bættist einnig, að
hann lét sér mjög annt um allan
hag lærisveina sinna, ekki einungis
meðan þeir voru undir hans hand-
arjaðri, heldur einnig eftir að þeir
höfðu lokið námi og voru teknir til
starfa. Skapaðist náið vináttusam-
band milli hans og þeirra, sem ent-
ist ævina út. Enda þótt áhrifa frá
Warming gæti víða í ritum Helga,
og aðdáun hans á þessum gamla
kennara komi ljóst fram í minning-
argrein um Warming látinn, valdi
hann sér þó ekki sérgrein á svæði
lærimeistarans heldur sneri sér að
sæþörungum. En þess ber þá að
geta, að annar kennari lians við háskólann, hin síðari ár að minnsta
kosti, var L. Kolderup Rosenvinge, sem var þá orðinn framarlega í hópi
þarafræðinga á Norðurlöndum. Munu náin kynni með lionum og Helga
hafa tekizt snemma, og hélzt vinátta með þeim meðan báðir lifðu.
Heyrði ég Rosenvinge oft minnast Helga Jónssonar með virðingu og
hlýju. Var og aldursmunur þeirra ekki meiri en svo, að náin kynni
máttu takast af þeim sökum.
A háskólaárum sínum tók Helgi allmikinn þátt í félagsskap ís-
lenzkra Hafnarstúdenta. Bjarni bróðir lians var einn af forgöngumönn-
unurn um að stofna Félag íslenzkra stúdenta, sem enn lifir við góða
heilsu. Var Helgi meðal stofnendanna, og í stjórn þess um skeið og
flutti þar fyrirlestra. Var liann félagsmaður góður, gamansamur og
samvinnuþýður. Eitthvað fékkst hann við skáldskap á þeim árum, og
eru tvö kvæði, bæði fyrir minni Islands, birt eftir hann í Sunnanfara.
Minnist ég þess, að dr. Sigfús Blöndal lét hans við getið sent höfundar
ýmissa gamansamra kviðlinga, er urðu til í hópi stúdenta á þeim árum.
Árni Thorsteinsson getur þess í endurminningum sínum, að Helgi
TÍMARIT UM Í.SLENZKA GKASAERÆÐI - FlÓra 7