Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.05.1967, Side 41

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.05.1967, Side 41
bington 1871); en þar sem ekkert eintak al tegunrlinni er til í söfnum er álitið, að hér hafi verið um ranga athugun eða ranga nafngreiningu að neða. Tegundina fann ég í ídeigu blómlendi, 50—60 m y. s. — Rétt austan við áðurnefndan bæ er hlaðinn túngarður úr grjóti. í norðaustur frá bænum ofan við garðinn og andspænis fjárrétt áfastri við hann er skjólsæl hvilft, cr snýr mót suðvestri. í þessari hvilft og umhverfis hana óx störin, og sums staðar allþétt. Allt vaxtarsvæðið hefur naumast verið meira en 100 m-'. í sunnanverðu túninu á Hrafnabjörgum sá ég tegundina einnig, en í smá- um stíl. Ekki heppnaðist mér að finna stör þessa annars staðar, en sennilega er hún víðar í Hörðudal. Er ég safnaði tegundinni í júlílok, var hún byrjuð að þroska aldini og hafði auðsjáanlega blómgazt prýðisvel. — Hér fer á eflir lýsing á störinni, er ég gerði eftir íslenzku eintaki.1) Strá og blaðsprotar í ljósgnenum toppum. Stráin 1—4 saman, beinvaxin eða íbogin, mjög grönn, snörp og hvassþrístrend. Bliiðin fremur slyttuleg, löng og flöt, með lítið eitt niðursveigðum röðum, hærð að minnsta kosti neðan til. Slíðrin hærð. Karlaxið I, leggstutt, um 10 mm langt, gulbrúnt að lit. Kvenöxin 2—3, þéttblóma, 1—1,3 cm löng, en 2 hin efri náin. Oll öxin leggjuð, upprétt í fyrstu, cn drúpa lítið eitt, er aldinin taka að þroskast. Neðsta stoðblaðið þroskalegt, miklu lengra en stráið. Næstneðsta stoðblaðið oftast þverhrukkólt neðst. Axhlífar kvenblómanna egglaga, mjög ljósbrúnar og með grænni miðtaug, yddar, lítið eitt styttri cn hulstrið. Hulstrið langsporlaga, trjónulaust, með greinilegum taugum, einkum við þurrkinn, gra’ngult og gljáandi í fyrstu, en verður íbrúnt með aldrin- um. Frænin 3. Hæð 15—40 ctn. C. pallesccns er útbreidd um mestan hluta Evrópu, alveg uorður fyrir 70. breiddarstig í Skandinavíu. I Ölpunum vex hún upp í 2200 m hæð y. s. I>ó cr lnin ekki kunn frá I’ýreneaskaga, Sikiley né frá Færeyjum eða eyjum í Norðursjó, og er fáséð í Grikklandi. Þá vex lnin í tempraða belti Norður- og Vestur-Asíu, svo og í Norður-Ameríku. Ofundin á Alaska og Grænlandi. Þessa nýfundnu stör hef ég nefnt gljástör á íslenzku.2) 69. C. vaginata Tausch, slíðrastör — Víða. Nót: Kvennabrekka, Gunnarsstaðir. 70. C. liinosa L., flóastör — Aðeins fundin á 1 stað. Sfn: Kvennabrekkumýrar (25/7). H. 28 cm. 71. C. rariflora (Wg.) Sm.. hengistör — Alg. Nót: Gunnarsstaðir. 72. C. rostrata Stokes, tjarnastör — Á n. st. Sfn: Satiðafell (24/7). H. 37 cm, með 3 karl- öxum og 3 kvenöxum. Nót: Kvennabrekka. 73. C. saxatilis L., hrafnastör — Á n. st. Sfn: Lækjarskógaflóinn (28/7). H. 34 cm. — Klömbrumýrar, hjá bænum Skarði (4/8). H. 32 cm. Nót: Brautarholt. 74. C. fusca All., inýrastör — Alg. Mjög breytilcg hér sem anuars staðar. Þar sem engin gagngerð rannsókn hefur farið fram á stör þessari og breytileik hennar hér á landi, verð ég að skipa afbrigðum hennar undir aðaltegund eins og verið hefur hingað til. Þó tel ég rétt að drepa á eitt dálítið sérkennilegt afbrigði, er óx í þurru mólendi skainmt frá Fcllsenda (Sfn: 1/8). Samkvæmt teknum eintökum leit plantan út á eftir- farandi hátt: Stöngullinn grannur og fremur læpulegur, oft eilítið S-boginn, lítið eitt snarpur uppi við axið. Blöðin mjög mjó og oddlöng. Kvenöxin 2, stutt og gild, eða nærri hnattlaga. Hulstrin allmiklu lengri en axhlífarnar — stundum 2-falt lengri, langsporlaga, odddregin, greinilega rifjuð. Renglur mjög stuttar. Hæð 20 cm. ') Lýsing þessi ásamt myndinni, sem hér fylgir og upplýsingum um vaxtarstað tcgund- arinnar, birtist í Náttúrufr., 19. árg. (1949), bls. 136. ") 10 árum eftir að ég fann gljástörina, rakst ég á cinlak af henni í óákvörðuðu jurta- safni. Eintak þelta hafði fundizt sumarið 1947 að Hvammi undir Eyjafjöllum. (Náttúrufr. 31. árg., 1961, bls. 143). TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÚra 39
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði
https://timarit.is/publication/1052

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.