Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.05.1967, Síða 57
er runnaheiði með grávíði (S. glauca) og krummalyngi (Empetrum
hermafroditum).
Blettur XXXIII. 2. Fróðárdalur á Kili, ltæð um 480 m. Fróðárdal-
urinn er að rnestu flatt mýrlendi. Undan brekkunum umhverfis dal-
inn spretta víða fram lindir, en meðfram þeim ofanvert er að kalla
óslitið nokkurra metra breitt víðikjarr belti. Að ofan mætir það víð-
ast gróðursnauðum skriðum og melum. Kjarrið er 50—75 sm hátt. Auk
einkennistegundanna er mikið af klóelftingu (Equisetum arvense) og
ilmreyr (A. odoratum).
Blettur XXXIII. 3. Sellandagróf inn af Mývatni, hæð um 380 m.
Jarðvegur er þar mun þurrari en á hinum stöðunum. Hins vegar er þar
allsnjóþungt og raki helzt þar alllengi fram eftir sumri. Kjarrið er 50—
60 sm hátt. Fjalldrapa (B. nana) gætir verulega. Tegundir eru færri en
á hinum stöðunum og A% áberandi liátt.
81. Gulvíði-mýrastarar hverfi (S. phylicifolia-Carex Goodenoughii soc.).
(Tab. XXXIII. A-B 4).
Aðeins ein athugun er hér fyrir hendi og er hún gerð við Leirtjörn
á Fljótsheiði við Bárðardal, hæð urn 380 m. LJm þær slóðir er gulvíði-
kjarrið útbreitt. Það er allmiklu liávaxnara en á hinum stöðunum, víð-
ast livar um og yfir einn metra (hæst mælt 111 sm, lægst 80 srn), það er
hins vegar allmiklu gisnara. Jarðvegur er rakur, svo að hann nálgast
mýrlendi. Undirgróður er mikill og þéttur. Mest ber á mýrastör (C.
Goodenoughii), en annars gætir eftirtalinna tegunda allmikið: brjósta-
gras (Thalictrum alpinum), kornsúra (Polygonum viviparum), klukku-
blóm (Pyrola minor), fjallapuntur (Deschampsia alpma), túnvingull
(Festuca rubra) og engjarós (Comarum palustris). Þess skal þó getið, að
þessara tegunda gætir meira í tíðni en fleti. Tegundir eru margar. A- og
E-flokkarnir eru nær jafnir, en H% miklu hæst af lífmyndunum. Frá
undanfarandi liverfi skilur þetta hverfi sig í því fremur öðru, að bugðu-
puntur sést þar ekki en mýrastör er drottnandi tegund. Hreyfing vatns-
ins í jarðveginum, og rakaskilyrðin líkust og í lítið hallandi mýri. Eftir
því sem mér er síðar kunnugt mun þetta gróðurhverfi eða annað skylt
því vera einna algengast í gulvíðikjarrinu.
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÚra 55