Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 22
2. Hver aðili tilnefni einn fulltrúa í samstarfsnefnd
um málið, og skal samstarfsnefndin kjósa sér 3
manna framkvæmdastjórn.
3. Stefnt skal að því í upphafi, að hjúkrunar-
heimilið verði sjálfseignarstofnun starfrækt í
samvinnu við bæjar- og heilbrigðisyfirvöld.
4. Við skipulag og staðarval verði tekið tillit til þess,
að síðar gæti risið dvalarheimili fyrir aldraða í
nágrenni heimilisins.
Stofnframlag kr. 1 milljón fylgdi tillögunum frá
Rauða kross deildinni.
Eftir samjjykkt ofangreindra tillagna voru mál öll
könnuð nánar og samin stofnskrá fyrir hjúkrunar-
heimilið, sem siðar var staðfest af dómsmálaráðu-
neytinu og forseta Islands.
Og þar sem ljóst var, að dómi stofnaðila, að í
nánustu framtíð var hvorki bær né ríki eða þau
sameiginlega í aðstöðu til að leysa þetta vandamál,
ákváðu félögin að stofna formleg samtök um bygg-
ingu hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópavogi á
grundvelli framlagðrar stofnskrár og var það gert 17.
marz 1979.
Aðildarfélögin eru þessi: Junior Chamber Kópa-
vogur, Kirkjufélag Digranessóknar, Kiwanisklúbb-
urinn Eldey, Lionsklúbbur Kópavogs, Lionsklúbb-
urinn Muninn, Kvenfélag Kópavogs, Rotaryklúbb-
ur Kópavogs, Soroptimistaklúbbur Kópavogs og
Rauða kross deild Kópavogs.
Samtökin eru í formi sjálfseignarstofnunar, og í
stofnskrá segir meðal annars:
1. gr.
,, Tilgangur slofnunarinnar er og skal jafnan vera sá,
að veila öldruðum og sjúkum hcimilisvist og aðhlynningu
á hjúkrunarheimilinu og svo góða umönnun sem frekast er
unnt.
I þessu skyni veilir hún viðtöku gjöfum og hvers konar
styrktarfé öldruðum og sjúkurn til aðhlynningar
3. gr.
,,Hver stofnenda kýs einn fulltrúa í fulltrúaráð stofn-
unarinnar og einn til vara. Kosning fer fram á aðalfundi
eða aukafundi, sem boðaður er með sama hœtti og aðal-
fundur, enda þess getið i fundarboði, að kjósa eigi fulltrúa
þessa. Kosning gildir í 8 ár, eða til þess tíma, að full-
trúinn óskar að láta af störfum eða hœttir sannanlega að
sinna þeim. Þó skal helmingur fulltrúa kosinn til 4 ára í
fyrsta sinn samkvœmt hlutkesti. Þau félög, er ekki auglýsa
fundi, kjósa fulltrúann á sama tíma og fastanefndir eru
kosnar.
Fulltrúaráðið skal kvatt saman minnst tvisvar á ári.
Það kýs stjórn samkvæmt 4. gr., er tengiliður stjórnar og
stofnenda og fær skýrslu um rekstur liðins árs. Fundi skal
boða með ábyrgðarbréfi með einnar viku fyrirvara. Sérhver
löglega boðaður fundur er lögrnætur“.
8. gr.
„Konu að því, að fulltrúaráðið eða stjórnin, sbr. 9.
grein, sjái sér ekki fœrt að reka hjúkrunarheimilið áfram,
gefi hún bæjarstjórn Kóþavogs kost á því að taka að sér
heimilið og allan rekstur þess ogyrði þá stofn að sjúkra-
húsi í Kóþavogi, en hafni hún því boði, fellur hjúkrunar-
heimilið með öllum eignum þess til Ríkissþítalanna i
þágu þjónustu við aldraða og sjúka í Kóþavogi“.
Framkvæmdir undirbúnar
Eftir að stofnskráin hafði verið samþykkt af
stjórnvöldum og stjórn kosin, var hafizt handa um
undirbúning framkvæmda. Kynnti stjórnin sér
fyrirkomulag þessara mála á höfuðborgarsvæðinu
og víðar og naut ágætrar fyrirgreiðslu og hollra ráða
Gísla Sigurbjörnssonar, forstjóra Grundar, en Gísli
og kona hans Helga sýndu þá rausn að gefa lijúkr-
unarheimilinu þá söfnunarbauka, sem nú mala gull
fyrir byggingu hjúkrunarheimilisins á flestum
heimilum í Kópavogi, auk þess sem Gísli færði kr. 5
millj. að gjöf frá Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
er fyrsta skóflustungan var tekin að byggingu
heimilisins.
Eitt af fyrstu verkefnum var að finna góða lóð
undir hjúkrunarheimilið. Voru víða kannaðir staðir,
en samdóma álit stjórnarinnar var það, að hvergi
væri betri staður í Kópavogi en á landi Ríkisspítal-
anna við Kópavogsbraut. Var því leitað til stjórnar-
nefndar Rikisspítalanna og heilbrigðisráðherra um
lóð á þessum stað. Er skemmst frá því að segja, að
þótt margar stofnanir hins opinbera séu frægar fyrir
seinlæti í afgreiðslu mála, sem til þeirra berast, var
því ekki til að dreifa í þessu tilfelli. Skömmu eftir að
SVEITARSTJÖRNARMÁL