Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 26
RUNÓLFUR GUÐMUNDSSON, hreppsnefndar-
maður í Hraungerðishreppi:
FÁTÆKRAMÁL FYRIR 100 ÁRUM
Nú fækkar óðum þeim íslendingum, sem muna
„hreppaflutninga“ og „niðursetninga“. En það voru þeir
kallaðir, sem ekki gátu séð fyrir sér sjálfir af heilsufars-
ástæðum eða sakirelli eða æsku.
Ritstjóri Sveitarstjórnarmála varð þess áskynja, að ég
hef lítilsháttar verið að grúska i gömlum hreppsbókum
aðeins frá einu sveitarfélagi, Hraungerðishreppi í Arnes-
sýslu. Hefur hann — ritstjórinn — beðið mig að segja
Sveitarstjórnarmálum svolítið frá þvi, sem ég hef orðið
vísari um þessa hluti frá fyrri árum.
Eg valdi mér fundargerðir úr Hraungerðishreppi far-
dagaárið 1871 — 72, í þeirri trú, að yngri kynslóðinni þætti
það forvitnilegt að sjá, hvernig fátækramálum var hagað
fyrir 100 árum. Og jafnvel i sumum tilvikum allt fram um
1920 eða lengur. Hér kemur svo uppskrift úr áðurnefndum
fundargerðum:
„Arið 1871 — 30. október voru presturinn og hrepp-
stjórinn i Hraungerðishreppi aftur til staðar í Hraungerði,
ásamt bændunum Gísla Guðmundssyni Bitru, Jóni
Eiríkssyni Stóra Armóti og Einari Sæmundssyni Sölfholti.
1. Til að niðurjafna það aukaútsvar er Hraungerðis-
hreppsins innbúar greiða þurfa i ár til fátækra. Og 2. Hag-
tæra þvi tillagi sem til sveitarinnar greiða á.c. Uppteiknun
yfir Hraungerðishrepps inntektarhagtæringu árið 1871.
Uppteiknun yfir ómaganna nöfn, aldur og ásigkomu-
lag, samastað og niðursetutíma, samt meðgjafarupphæð.
Fiskar
1. Helga Ásbjörnsdóttir 81 árs uppgefin
og munaðarlaus. Sett niður í Glóru 16
vikur, Þorleifskoti 20 vikur, Reykja-
völlum 10 vikur, Móakoti 6 vikur = 52
v. Meðgjöf 4'/> fiskur viku 234
2. Guðrún Þorvarðardóttir 9 ára, niður-
sett árlangt á Stóru Reykjum, 3'/2 fiskur
viku 182
3. Guðlaug Björnsdóttir 12 ára, niðursett
árlangt á Bollastöðum, 3 fiskar viku 156
4. Guðrún Jónsdóttir 37 ára, fáráðlingur
og heilsuveik. Niðursett árlangt i
Laugardælum 200
5. Guðrún Þóroddsdóttir 76 ára. Með
henni er lagt að Langholtsparti 60
6. Margrjet Þorvarðardóttir 12 ára, nið-
ursett árlangt að Oddgeirshólum.
Meðgjöf 3 fiskar viku 156
7. Þóra Þórðardóttir 14 ára, niðursett ár- l'iskar
langt hjá Sigurði í Langholti. Meðgjöf 108
8. Ingigerður Felixdóttir 62 ára, heilsu-
biluð og munaðarlaus. Niðursett
Arnastöðum 4 vikur, Króki 20 vikur,
Krókskoti lövikur, Bár 12vikur = 52v.
3 fiskar v 156
9. Bjarni Sigurðsson 76 ára heilsutæpur.
Með honum er lagt að Langholti 108
10. Jóhanna Gísladóttir 62 ára, heilsubiluð
og munaðarlaus. Niðursett Helli 8
vikur, Austurkoti 10 vikur, ölvesholti
20 vikur, Hrygg 14 vikur = 52, 3'/2 f.
viku 182
11. Guðleif Gunnarsdóttir 63 ára. Niður-
sett Bitru 26 vikur, Vesturkoti 26 vikur 108
12. Guðmundur Þorláksson 7 ára, niður-
settur árlangt í Túni, 4 fiskar viku 208
13. Magnús Þorláksson 5 ára, niðursettur
árlangt hjá Einari Sölfholti, 4 fiskar
viku 208
14. Sigríður Jónsdóttir 8 ára. Niðursett ár-
langt Laugum. 3'/2 fiskur v 182
15. Bergur Nikulásson 81 árs, uppgefinn og
munaðarlaus. Niðursettur árlangt
Stóra Ármóti. Meðgjöf 5 fiskar viku 260
16. Kristín Ölafsdóttir 36 ára, holdsveik og
munaðarlaus. Niðursett árlangt á Læk.
Meðgjöf 5 fiskar viku 260
17. Salbjörg Ólöf Jónsdóttir 8 ára, kom til
hreppsins 23. júlí 1871. Niðursett á
Langstöðum. Meðgjöf 4 fiskar viku 180
Þess má geta, að í gjaldatíð hreppsreiknings fyrir þetta
ár eru 16 skildingar fyrir stafrófskver handa Salbjörgu.
Þá kemur hér greinargerð, eða listi yfir, frá hverjum og
hve mikið framangreindir ómagar áttu að fá frá hinum
ýmsu gjaldendum i hreppnum. 1. Helgu Ásbjörnsdóttur leggist Fiskar
a) Allt útsvar Þorsteins Moshól 26
b) Allt útsvar Erlendar Svarfhóli 30
c) AHt útsvar Snorra Þorleifskoti 48
d) Allt útsvar Þórarins Þorleifskoti 4
e) Allt útsvar Lofts Reykjavöllum 36
SVEITARSTJÓRNARMÁL