Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 46
Um borð í Fagranesi á sigllngu milli ísafjarðar og Bolungarvíkur í hinu fegursta
veðri. Bergsteinn Gizurarson, deildarverkfræðingur á Hafnamálastofnun, tók
myndina svo og myndina á næstu blaðsíðu.
Gunnar B. Guðmundsson, hafnar-
stjóri, gerði nokkra grein fyrir vörn-
um á bryggjum Reykjavíkurhafnar í
framhaldi af framsögu Erlendar.
Að morgni siðari fundardagsins
hófst fundur með almennum um-
ræðum um framsöguerindin.
Gísli Viggóssson, verkfræðingur á
Hafnamálastofnun, upplýsti, að
stofnunin ynni nú að rannsóknum á
hreyfingum skipa í höfnum. Enn-
fremur ræddi hann ljósabúnað við
innsiglingu í hafnir.
Að loknum nokkrum umræðum
almennt gerði Björgvin Guðmunds-
son, borgarfulltrúi, grein fyrir niður-
stöðum allsherjarnefndar fundarins.
Lagði nefndin til, að nokkrar til-
lögur yrðu samþykktar eins og stjórn
sambandsins hafði lagt þær fram, en
öðrum yrði nokkuð breytt.
Fara hér á eftir ályktanir þær, sem
gerðar voru að tillögu allsherjar-
nefndar fundarins.
Ellefti ársfundur Hafnasambands
sveitarfélaga skorar á vitamálastjóra
að láta þegar í stað fara fram könnun
á þessum þáttum og gera tillögur til
úrbóta, þannig að fé fáist á næstu
fjárlögum í því skyni.
Ennfremur beinir hafnasam-
bandið þeirri eindregnu ósk til sam-
gönguráðherra og Alþingis, að frum-
varp að vitalögum verði að nýju lagt
fram i haust og afgreitt frá Alþingi.
Einföldun á gjaldskrám
Fundurinn felur stjórn sambands-
ins að gera tillögur um einföldun á
gjaldskrám hafnanna. Skal stjórnin
leggja fram tillögur um málið á næsta
ársfundi hafnasambandsins.
arðsemi heildarfjárfestingar verði i
hámarki.
Fundurinn telur, að uppbygging
hafna, þar með talið innra skipulag,
hafi dregizt verulega aftur úr öðrum
þáttum í þessari keðju og orsakað
óhagkvæma nýtingu flota og
vinnslustöðva.
Jafnframt því að benda á ofan-
greindar staðreyndir, skorar fundur-
inn á stjórnvöld að láta fram fara
þjóðhagslegt mat á hagkvæmni verk-
efna og láta það ráða framkvæmda-
röð.
Þybbur
Ársfundurinn beinir þeim tilmæl-
um til hafnamálastjóra, að hann láti
vinna að tillögum að gerð á ódýrum
og hagkvæmum þybbum til notkun-
ar á bryggjum og hafnarbökkum.
Einkum er bent á nauðsyn þess, að
hentug lausn fáist á vörnum á
bryggjuhornum, þar eð reynslan hefir
sýnt, að stórtjón á skipum orsakast oft
af óvörðum hornum.
Væntanlegri stjórn er falið að
vinna að framgangi þessa máls.
Fjögurra ára áætlanir
um hafnargerðir
Fundurinn bendir á, að fjögurra
ára áætlanir um hafnargerðir skv. 10.
gr. hafnalaga frá 11. april 1973 hafa
aldrei fengið þá meðferð á Alþingi,
sem lögin gera ráð fyrir.
Fundurinn beinir þeirri áskorun til
samgönguráðherra, að hann beiti sér
fyrir því, að umræddu ákvæði lag-
anna verði framfylgt.
Hagkvæmni ráði verkefnaröó
Vita- og siglingamerki
Athygli hefir verið vakin á, að gerð
vita- og siglingaljósa með ströndum
landsins og innsiglingar að höfnum er
víða ábótavant.
Ársfundurinn bendir á þjóðhags-
legt mikilvægi vel búinna og vel
staðsettra fiskihafna umhverfis land-
ið og nauðsyn þess, að í hendur hald-
ist stærð og gerð fiskiflotans, hafnar-
aðstaða og vinnsluaðstaða, þannig að
Rannsóknir á hreyfingum
skipa í höfnum
Ársfundurinn þakkar forgöngu ís-
lenzku fulltrúanna I norrænni nefnd
um samgöngumál (NET) um, að
nefndin kosti vinnu að sameiginleg-
SVEITARSTJÖRNARMÁL