Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 38

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 38
styrk til byggingarframkvæmda sinna fyrir aldrað fólk. Þessu fé hefur þó verið varið til góðra verkefna, til styrktar íbúðarbyggingum aldraðra víðs vegar um land. Nemur fjárhæð þessi á verðlagi í marz 1979 um 200 milljónum króna. Tekjur happdrættisins hafa minnkað mikið sem hlutfall í ráðstöfunarfé samtakanna hin síðari ár. Kemur þar auk framangreindrar ástæðu tvennt að- allega til: Mikill hluti vinninga er bundinn í vinn- ingaskrá, og kemur verðbólgan með fullum þunga þar á, stóraukinn launa- og auglýsingakostnaður og gífurlega aukin samkeppni margra happdrætta, sem nemur tugum, með sambærilega vinninga við happdrætti DAS. Tekjur Happdrættis DAS skiptast mjög misjafn- lega eftir landshlutum. Þannig komu í ársbyrjun um 54% tekna þess úr Reykjavíkurkjördæmi og 12% úr Reykjaneskjördæmi. Vistun á heimilin hefur ekki til þessa verið bundin búsetu í ákveðnum sveitarfélögum. Kvikmyndahús í Reykjavík og í Hafnarfiröi En tekjur samtaka þessara koma víðar frá. Sjó- mannadagurinn í Reykjavík rekur eitt umboða happdrættisins þar, „aðalumboðið“, og fara allar tekjur af því einnig til bygginga aldraðra á félags- svæðinu. Auk þess rekur Sjómannadagurinn Laug- arásbíó í Reykjavík og Bæjarbíó í Hafnarfirði. Allur ágóði af þeim rekstri fer einnig í þessa uppbyggingu. Þótt ágóði sá sé ekki mikill í krónum, er rétt að geta þess, að sú upphæð hefur farið vaxandi, sem sam- tökin hafa fengið til ráðstöfunar af skemmtanaskatti. En Laugarásbíó borgar alla skatta eins og þau kvik- myndahús, sem rekin eru í einkarekstri, og þ. á m. skemmtanaskatt eins og þau. Samtökin fá endurgreiddan skemmtanaskattinn að frádregnum 10%, sem renna til reksturs Sin- fóníuhljómsveitarinnar, og er þetta fé notað að öllu leyti til byggingar dvalarheimilanna. En að langmestu leyti hafa byggingar þessar, og þó sérstaklega hin nýja bygging í Hafnarfirði, verið fjármögnuð með lánsfé. Munar þar mestu um lán úr Byggingarsjóði ríkisins og frá Lífeyrissjóði sjómanna, sem aðildarfélög Sjómannadagsins byggðu fyrst og fremst upp, auk annarra lífeyrissjóða, sem samtök sjómanna eiga aðild að. Hafnarfjarðarkaupstaður og Garðabær leggja fram lóðir endurgjaldslaust og Grindavíkurbær, einn allra bæja, fjárupphæð til þess áfanga vistheimilisins, sem þegar er lokið. Þá hafa sveitarfélög, Lions-klúbbar og einstaklingar gefið verulegar fjárupphæðir. Einnig hafa borizt til Hrafnistu í Hafnarfirði, eins og í Reykjavík, mjög verðmætar bókagjafir. Á fjárlögum 1978 og 1979 voru veittar samtals 100 milljónir króna í styrk til þessarar byggingar. Var hann veittur með því skilyrði, að vistheimili þetta væri svo í stakk búið, að þar gæti dvalizt fólk, sem þyrfti á sérstakri umönnun, eftirliti og léttari hjúkrun að halda. Eru slíkir aðilar nú mikill meirihluti þeirra, sem á heimilinu dveljast. 200 manna starfsliö í Reykjavík Á Hrafnistu í Reykjavík eru nú eða voru um síð- ustu áramót u. þ. b. 200 stöðugildi, þ. e. heilsdags- störf, en starfsfólk í ársstarfi á launaskrá Hrafnistu i Reykjavík var nokkuð á þriðja hundrað. Með 407 vistrými á heimilinu þýðir þetta, að 1 starfsmaður sé fyrir 2.15 vistmenn og sjúklinga. Niðurstöðutölur á rekstrarreikningi Hrafnistu í Reykjavík voru um s. 1. áramót túml. 1403 milljónir króna. Heimilið greiddi í laun á þessu sama ári um kr. 854 milljónir. Brunabótamat Hrafnistu í Reykjavík og hjóna- íbúðanna við Jökulgrunn var 31/12’79 340 milljónir, en Hrafnistu i Hafnarfirði 1.575 milljónir króna. Bygging Hrafnistuheimilanna, þ. á m. teikn- ingar, búnaður, öll þjónusta o. fl. og hin síðari ár daggjöld fara eftir ákvæðum laga og reglugerða þar um, sem settar eru af viðkomandi stjórnvöldum. Hrafnista í Hafnarfiröi Áður en ráðizt var í byggingu Hrafnistu í Hafn- arfirði, höfðu forráðamenn samtakanna ekki aðeins eigin reynslu hér heima í veganesti, heldur höfðu SVEITARSTJORNARMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.