Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 64
FELAGSMALASTJORI RAÐINN
Á SAUÐARKROKI
Hinn 1. nóvember 1979 tók til
starfa félagsmálastjóri á Sauöárkróki.
Félagsmálastjóri er framkvæmda-
stjóri félagsmálaráðs kaupstaöarins,
en það er skipað fimm fulltrúum, en
héraðslæknirinn, Friðrik J. Friðriks-
son, er formaður þess.
Undir félagsmálaráð hafa verið
sameinuð verkefni nokkurra nefnda,
sem fyrir voru s. s. íþrótta- og tóm-
stundanefndar og barnaverndar-
nefndar. Verkefni félagsmálastjóra
eru þar af leiðandi margvísleg, en fé-
lagsmálastjórar hafa áður verið ráðn-
ir á Akureyri, Akranesi og á Selfossi,
auk Reykjavíkur, Kópavogs og
Hafnarfjarðarkaupstaðar, þar sem
félagsmálastjórar hafa starfað um
árabil.
Auk framangreindra starfa annast
félagsmálastjóri vinnumiðlun og at-
vinnuleysisskráningu, auk þess sem
hann er starfsmaður öldrunarnefndar
og ferðamálanefndar kaupstaðarins.
Einnig er hann i nefnd þeirri, sem sett
hefur verið á stofn vegna alþjóðaárs
fatlaðra i kaupstaðnum.
Friðrik Á. Brekkan hefur verið
ráðinn í starf félagsmálastjóra.
Friðrik er fæddur 21. april árið 1951,
sonur hjónanna Ólafar Htílgu Sig-
urðardóttur, tannlæknis, og
Ásmundar Brekkan, yfirlæknis á
Röntgendeild Borgarspítalans i
Reykjavik.
—
Friðrik Á. Brekkan.
Friðrik lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum i Hamrahlið árið
1973, stundaði nám í enskum bók-
menntum í Háskóla Islands árið
1974 og rak i Reykjavik eigið inn-
flutningsfyrirtæki, Björgunartækni.
Flutti hann inn ýmis hjálpartæki auk
sjúkrabifreiða, og varð það visir að
Hjálpartækjabanka Rauða kross Is-
lands, sem hefur yfirtekið innflutning
slíkra tækja. Friðrik hefur starfað
mikið að ferðamálum og var búsettur
um árabil á Tenerife á Kanaríeyjum
sem fararstjóri fyrir islenzkar ferða-
skrifstofur.
Friðrik hefur unnið mikið við þýð-
ingar, og á árunum 1978—1979
stundaði hann nám i Háskólanum i
Gautaborg í sjúkrahúsrekstri og í al-
þjóðastjórnmálum. Samhliða námi
starfaði hann við innflytjendastofnun
Gautaborgar og var túlkur hennar í
spænsku, islenzku og í þýzku. Þar
vann Friðrik ýmis fyrirgreiðslustörf í
þágu hinna fjölmörgu Islendinga,
sem þangað fluttust fyrir nokkrum
árum.
FÉLAGSSTARF
ALDRAÐRA
Með tilkomu embættis félags-
málastjóra á Sauðárkróki hefur verið
bryddað upp á ýmsum nýjungum.
Meðal annars hefur verið stofnaður
félagsskapur aldraðs fólks, sem kemur
saman hálfsmánaðarlega með
skemmtidagskrá og veitingum. Enn-
fremur er á vegum þess félagsskapar
föndurstarf hálfsmánaðarlega. Þá er
einnig fyrirhugað að hefja létta leik-
fimi fyrir aldrað fólk.
DAGVISTARMÁL
Á Sauðárkróki er starfandi einn
tveggja deilda leikskóli, leikskólinn
við Viðigrund, og veitir Helga Sigur-
björnsdóttir honum forstöðu.
Þar starfa þrjár fóstrur í fullu starfi.
Biðlisti til að koma börnum þar
fyrir er langur, og er miklum fjölda
barna komið í gæzlu hjá s. k. „dag-
mömmurn".
Fyrir dyrum stendur stórátak i
dagvistarmálum, en það er bygging
nýs tveggja deilda leikskóla í nýja
íbúðarhverfinu, Hliðarhverfi. Búið er
að steypa upp grunnplötuna, og hef-
ur verið samið við Húseiningar hf. á
Siglufirði um, að þeir smiði húsið, og
er því verki nú lokið og aðeins beðið
eftir góðu veðri, svo hægt verði að
setja húsið upp.
Hönnun innréttinga og skipulag
lóðar hefur Kristin Sætran, híbýla-
fræðingur, haft með höndum, og
kennir þar ýmissa nýjunga. Að upp-
setningu hússins lokinni er eftir tölu-
vert starf við innréttingu, en það er
von allra, að takist að koma starf-
seminni af stað seint á þessu ári eða
snemma árs 1982.
HEIMILISÞJÓNUSTA
TEKIN UPP
Á SAUÐÁRKRÓKI
Snemma á seinasta ári var á Sauð-
árkróki tekin upp heimilisþjónusta.
Hún er fólgin í því, að kona hefur
verið ráðin til starfa hjá kaupstaðnum
i fullt starf og heimild hefur fengizt
fyrir annarri stúlku í hálft starf.
Störfin eru fólgin i aðstoð við heimil-
isstörf, einkum tiltekt.
SVEITARSTJÓRNARMÁL