Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 44
38
Myndir 5 og 6. Fyrirmyndar uppsetning á bryggjudekkjum. Til vinstri er bryggja Eimskipafélags fslands hf. á Akureyri og til
hægri ytri viðlegukantur bryggjunnar á Stöðvarfirðl. Þar reynir mikið á dekkin bæði vegna hafróts og núnings skipa við þau.
Framhorn bryggjunnar er þó algertega óvarið. Betra væri að draga vír eða keðju gegnum dekkin til öryggis, ef burðarkeðja
slitnar. Myndirnar með greininni tók höfundur hennar, Erlendur Jónsson, skipstjóri.
Einnig væri til athugunar að fá
gamlar sverar olíuslöngur, þó ekki
með stálbarka, er oft falla til hjá
olíufélögunum, og setja stönsuðu
gúmmíhringina i slönguna og setja
þær svo lóðréttar i viðlegukantinn
með stuttu millibili. Þetta auðveldar
minni skipunum að liggja við slikar
bryggjur, þar sem þau renna upp og
niður á slöngunum eftir sjávarföllum
og hreyfingu, án þess að lunning eða
skjólborð lendi — fiski — undir
þybbuna eða dekkin, eins og stund-
um kemur fyrir. (Ljósmynd nr. 4).
Notið dekkin
Auðvelt er að fletta upp í
auglýsingabæklingum fyrirtækja i
Reykjavík, sem selja eða hafa umboð
fyrir sérhannaðar þybbur á bryggjur.
Þetta eru án efa albeztu þybburnar,
sem völ er á, enda hafa sérþjálfaðir
menn með margra ára tilraunastarf
að baki hannað þær. Þybbur þessar
(fendarar) eru á hinn bóginn mjög
dýrar, svo draga verður í efa, að fé-
litlir hafnarsjóðir hafi efni á að setja
upp slíkan útbúnað, og er út frá því
gengið, þegar hér er lagt til, að notað
sé það efni, sem nóg er af í öllum
byggðarlögum hér á landi og fáanlegt
er höfnunum að kostnaðarlausu, en
það eru hinar ýmsu tegundir hjól-
barða af bílum eða dráttarvélum, sem
notaðir hafa verið árum saman víða
um land með sæmilegum árangri.
Það er til fyrirmyndar, hvernig
sumir forráðamenn hafna hafa varið
bryggjur sínar. Má sjá dæmi um það
á ljósmyndum númer 5 og 6.
MikiU sparnaður
vona, að forráðamenn hafna
geri sér grein fyrir því, að það er mik-
ill sparnaður fyrir alþjóð, ef unnt er
að einhverju leyti að minnka þær
miklu skemmdir, sem verða á skipum
i höfn og á hafnarmannvirkjum.
Vona ég, að þessir sömu menn setji
sig í spor skipstjórnarmanna, er verða
oft að leggjast að illa vörðum bryggj-
um við erfið skilyrði.
Einnig gæti verið mjög mikið
öryggi fyrir hafnir og skip, ef hafnar-
verðir á erfiðum höfnum gætu haft til
taks góðar þybbur, ef skip verða ein-
hverra hluta vegna að liggja i mjög
slæmu veðri við bryggju, sem þau
annars myndu sigla frá. Einnig ber að
hafa í huga, að skip eru nú byggð með
meira fríborð en áður og í flestum
tilvikum með veikari efri síður.
Með þvi að Skipstjórafélag Islands
hefur nýverið sett á stofn hafnamála-
nefnd, væri mjög æskilegt, að
hafnarstjórnir hinna ýmsu hafna og
hin nýstofnaða nefnd skiptust á
skoðunum um hin ýmsu hafnarmál,
báðum aðilum til hagsbóta.
SVEITARSTJÖRNARMÁL