Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 50
44
Á árinu 1971. Unnið við staurarekstur í viðlegubryggju í
Bolungarvíkurhöfn á árinu 1971. Ljósmyndin er tekin 11.
september það ár.
Á árinu 1981. Ljósmyndin er tekin á sama stað og myndin
hér að ofan. Myndina tók Bergsteinn Gizurarson, verkfr. í
skoðunarferð um höfnina hinn 30. ágúst 1980, og sýnir hún
bátaflota Bolvíkinga við bryggjuna, sem verið er að byggja,
þegar Ijósmyndin að ofan var tekin.
Thoroddsen, fengið samþykkta styrkbeiðni til við-
gerðarinnar. Var svo tekið til við viðgerðina, og var
hún framkvæmd á árunum 1916—1919. Fremsti
hlutinn breikkaði nokkuð við endurbæturnar.
Drymluhöfn
Framhald þess ágreinings, sem upp kom og að
framan greinir, varð það, að hugmyndin um
Drymluhöfn fékk verulegan hljómgrunn. Það ýtti
svo ntjög mikið undir þessa hugmynd, að enn urðu
skemmdir á garðinum bæði árið 1922 og árið 1923.
Voru nú teknar upp athuganir í þessu sambandi,
könnuð var jarðvegsdýpt tjarnarinnar o. fl. Niður-
staðan varð sú, að þessi inngrafna höfn gæti orðið 56
x 170 m stór með 2.5 m dýpi við lægstu fjöru.
Aætlaði þáverandi vitamálastjóri, að sú höfn myndi
kosta 352.000 krónur. Átti höfnin að geta rúmað um
40 vélbáta. Víða kemur þó fram, að nokkurrar van-
trúar hafi ávallt gætt varðandi þessa inngröfnu höfn.
Enda var áfram unnið við byggingu Brimbrjótsins.
Drymluhöfnin var þó tekin upp á staðfestum
skipulagsuppdrætti árið 1929, og það varekki fyrren
árið 1943, að hugmyndin var formlega skrínlögð.
Steinnökkvinn
Nokkrar skemmdir urðu á Brimbrjótnum árin
1922 og 1923 og einnig árið 1925. Skemmdirnar
1922 voru þeirra mestar, og í sambandi við endur-
bætur á þeim lengdist Brjóturinn nokkuð, eða um
ca. 10 m.
Mesta lenging Brjótsins í einum áfanga var gerð
árið 1927, en þá var hann lengdur með steinnökkva,
sem fylltur var með grjóti og sökkt við enda hans.
Steinnökkvinn var 57 m langur og 9.5 m breiður.
Næstu árin var síðan smám saman steypt ofan á
nökkvann, og var það langt komið, þegar verulegar
skemmdir urðu á mannvirkinu veturinn
1934—1935. Brotnuðu þá stór steypustykki og
sópuðust inn fyrir garðinn ásamt grjótfyllingu úr
nökkvanum.
Þetta áfall var hið mesta, sem hent hafði til þessa,
og kom enda á þeim tíma, sem þrengingar voru hér