Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Qupperneq 36

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Qupperneq 36
aldraðra sjómanna, Hrafnista í Reykjavík og svo fyrir tveimur árum DAS-Hrafnista í Hafnarfirði, og rekstur þessara heimila. A aðalfundi fulltrúaráðs Sjómannadagsins 1. marz 1942 var fyrst ákveðið að reisa hvíldar- og dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn og konur þeirra og hefjast handa um fjáröflun í því skyni. Þegar hornsteinninn að Hrafnistu í Reykjavík var lagður um 12 árum síðar, eða á sjómannadaginn 13. júní 1954, höfðu safnazt til þess dags peningar, sem nema með verðgildi krónunnar í dag hátt á sjöunda hundrað milljóna króna. Margir einstaklingar, sveitarfélög og félagasam- tök hafa frá byrjun gefið og gefa enn miklar og veglegar gjafir til framkvæmda sjómannadagsins. Eftirtektarvert er það þakklæti í garð hinna öldruðu, sem fram kemur strax í upphafi í gjafabréfum margra gefenda. Það þakklæti birtist í óskum út- gerðarfyrirtækja um forgangsvistun aldraðra skip- verja þeirra, sveitarfélaga vegna aldraðra íbúa sinna og einstaklinga vegna feðra, mæðra og annarra skyldmenna, en reynt hefur verið að koma á móti óskum sem flestra í þessu efni. Allar gjafir frá fyrstu tíð hafa verið skrásettar í sérstaka bók, sem er í vörzlu samtakanna. Þeir mörgu, sem á þennan hátt hafa lagt hönd á plóginn, eiga heiður og þökk skilið, hvort sem um er að ræða beinar gjafir eða stuðning með öðrum hætti. Hrafnista í Reykjavík var opnuð til afnota fyrir vistmenn á 20. sjómannadaginn 1957, en þar var skömmu síðar rými tilbúið fyrir 130 vistmenn. Síðan var byggt vandað samkomuhús undir rekstur Laug- arásbíós. Á 25. sjómannadaginn var tekin í notkun ný íbúðarálma ásamt tengiálmu og síðan þrjár íbúðarálmur ein af annarri, en síðasta stórfram- kvæmdin í Reykjavík var bygging hjónaíbúðanna á lóð Hrafnistu við Jökulgrunn, en þar búa 36 konur og karlar í 18 íbúðum. 1 lok ársins 1979 bjuggu á Hrafnistu i Reykjavík samtals 405 vistmenn og hefur verið fækkað um 45 til að auka ýmiss konar þjónustu á síðustu árum. Heimilinu, þótt undir einni stjórn sé og með margháttaða sameiginlega starfsemi, er skipt í þrjár deildir. Er það vistdeild, sem er þeirra stærst, og svo hjúkrunardeildir, mismunandi þungar í þjónustu, þ. á m. sjúkradeild. Á vistdeild eru vistmenn, sem eru við sæmilega heilsu. Þeir ganga í borðsal og fá fæði sitt þar, nema um veikindi sé að ræða, en þá er þeim að sjálfsögðu fært í herbergi sín. Þeir borga vistgjöld sín sjálfir, ef þeir eru færir þar um, en ef ekki, þá framfærsluaðili. Þeir fá alla þjónustu á heimilinu, þ. á m. læknis- þjónustu. Föt eru þvegin og herbergi þrifin, og öll lyf eru ókeypis. Á hjúkrunardeildum eru þeir, sem þurfa meiri umönnunar, hjúkrunar og eftirlits með, en á sjúkra- deild eru aftur þeir, sem meira veikir eru, og lang- legusjúklingar. Meginstefna samtakanna er sú, að sjúkt fólk og líkamlega veikt fólk sé á spítölum, þ. á m. langlegu- deildum, sem spítalarnir komi upp, eða skyldum deildum, en aldraðir og lasburða séu á elli- og hjúkrunarheimilum. Þótt á Hrafnistu séu hjúkruriardeildir af þyngstu gráðu, þá er það fyrst og fremst vegna þeirrar skoð- unar okkar, að við viljum ekki, láta okkar gamla fólk fara frá okkur, þótt það komist á slíkt hjúkrunarstig, heldur, að það sé hjá okkur til siðustu stundar. Enda erekki i önnur hús að venda fyrir þetta fólk. En meginástæðan er þó sú, að við viljum ekki slíta í sundur sambúð, ef um er að ræða t. d. hjón eða vináttu tveggja aðila eftir langa sambúð. Við teljum það ómanneskjulegt, þegar slíkir aðilar dveljast á dvalarheimili og annar aðilinn kemst á það stig að hafa þörf fyrir dvöl á langlegudeild, að hann sé þá slitinn frá hinum aðilanum og fluttur í burtu á annað heimili, svo að í raun er um slit að ræða á þeirra áratuga sambúð og vináttu, þótt dauðsfall hafi ekki komið til. 252 vistmenn I lok ársins 1979 dvöldust á vistheimilinu samtals 241 vistmenn. Þar af voru 119 karlar og 122 konur. Á sjúkradeild og hjúkrunardeildum voru á sama tima samtals 164 vistmenn, þar af 58 karlar og 106 konur. Á vistheimilinu var meðalaldur vistfólks 81 ár, en á sjúkra- og hjúkrunardeildum 84 ár. Það er eftir- tektarvert hafandi í huga, hve dýrt er að dveljast á bráða-sjúkrahúsum, að af 59.578 dvalardögum á hjúkrunardeildum Hrafnistu voru fjarvistir á SVEITARSTJÓRNARMÁL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.