Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Side 39

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Side 39
Útlitsmynd af Hrafnistu DAS í Hafnarfirði, eins og heimilið iítur út fullgert. Teiknistofan hf., Ármúla 6 teiknar heimilið. þeir aflað sér upplýsinga um og kynnt sér margt hið nýjasta í byggingum aldraðra, bæði í Bandaríkjun- um og í Vestur-Evrópu, aðallega á Norðurlöndun- um. Sérstaklega kynntu þeir sér þróun, sem orðið hafði í byggingarmálum aldraðra meðal nágranna okkar, hvað viðkom búnaði, fyrirkomulagi og starfi slíkra heimila. Auk þess var rekstrarhliðin sérstak- lega könnuð með tilliti til stærðar og nýtingar vinnuafls og búnaðar. Var allur undirbúningur mjög ítarlegur, áður en teikningar hófust og voru fullgerðar. Fyrsti áfangi, sem er þegar risinn, er 1176 fer- metrar að stærð auk svala og er um 22.000 rúm- metrar. Byggingarsamningur að 1. áfanga af þremur var undirritaður þanp 12. mai árið 1975. Byggingar- framkvæmdir hófust í september 1975. Byggingin var vígð á sjómanpadaginn í júní árið 1977. Fyrsta ibúðarhæðin var tekin í notkun þann 11. nóvember 1977, önnur íbúðarhæð þann 10. des. 1977 og þriðja ibúðarhæð þann 12. janúar 1978. Rými á hverri visthæð er fyrir 28 vistmenn, en þar eru 10 einsmannsíbúðir u. þ. b. 24 fermetrar, með sér W.C. og baði og 9 tveggja manna íbúðir u. þ. b. 48 fermetrar, einnig með W.C. og baði. Tvær setustofur eru á hverri íbúðarhæð. Svalahurð er á öllum íbúðarherbergjum. Tómstunda-, samkomu- og borðsalir voru tilbúnir í nóvember ásamt eldhúsi, kalda-eldhúsi, frysti- og kæligeymslum og matar- vinnslu. Ennfremur hvíldaraðstaða dagheimilis og heilsugæzluaðstaða á jarðhæð í febrúar 1978. Þar eru læknastofa, skoðunarstofa, skrifstofa hjúkrunar- konu, lyfjabúr, æfingasalur með nudd- og ljósaað- stöðu, hydrocollator, göngubrú, trissum og rimlum, þrekhjóli, baði og sjúkrabaði. Ennfremur er hár- og fótsnyrting í sérsal. Fyrsti vinnusalur á jarðhæð var tilbúinn í byrjun marz árið 1978. Heildarkostnaður við byggingu þessa 1. áfanga ásamt öllum búnaði til byrjunarstarfs var rúmlega 500 milljónir króna við úttekt eru brunabótamat tæpar 800 milljónir króna. Á jarðhæð og fyrstu hæð er aðstaða til dagheimilis og skammtímavistunar, þ. á m. sumarvistunar. Þá koma þessar hæðir að fullum notum fyrir næsta áfanga, sem verður hjúkrunarheimili fyrir u. þ. b. 75 vistmenn ásamt margháttaðri þjónustuaðstöðu. Bvggingarframkvæmdir standa nú yfir við þennan síðari áfanga, sem verður yfir 20.000 m3 að stærð, og hver hæð verður 1080 m2, en þær verða fjórar auk jarðhæðar. Þar er gert ráð fyrir þvottahúsi, geymsl- um, sorpbrennslu, gæzlu- og vaktstöð fyrir íbúðir aldraðra, sem ætlað er, að rísi í nágrenninu, fata- geymslu, snyrtingu, matsal, setustofu starfsfólks, að- stöðu fvrir gæzlu barna þess og félagsaðstöðu starfs- mannafélags. Á 1. hæð eru skrifstofur lækna og læknaritara, rannsóknastofur, verzlun, skrifstofa prests og bæna- herbergi, almennar skrifstofur, endurhæfingarað- staða, s.s. ljós, nudd, böð og 5 X 12 m sundlaug. Á 2., 3. og 4. hæð eru svo íbúðarhæðir og hver þeirra ætluð fyrir 25 vistmenn, þar af 21 í eins manns íbúðum. Þeim, sem þarna vistast, er ætlað að hafa sín eigin húsgögn hjá sér, nema sérstök létt sjúkra- rúm fyrirslík heimili munu fylgja hverri íbúð. 33 SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.