Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Page 45

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Page 45
11. ÁRSFUNDUR HAFNA- SAMBANDS SVEITARFÉLAGA Ellefti ársfundur Hafnasambands sveitarfélaga var haldinn i félags- heimilinu í Hnífsdal dagana 29. og 30. ágúst 1980. Formaður sambandsins, Gunnar B. Guðmundsson, setti fundinn og bauð fundarmenn og gesti velkomna. Guðmundur H. Ingólfsson, forseti bæjarstjórnar á Isafirði, var kjörinn fundarstjóri og Hálfdán Einarsson, bæjarfulltrúi í Bolungarvík, honum til aðstoðar. Ritari fundarins var Úlfar B. Thoroddsen, sveitarstjóri á Patreksfirði, og honum til aðstoðar Birgir L. Blöndal, aðalbókari á skrif- stofu Sambands íslenzkra sveitarfé- laga. Ávörp og kveðjur Bolli Kjartansson, bæjarstjóri á ísa- firði, flutti ávarp og bauð gesti vel- komna til starfa í kaupstaðnum. Ólafur Steinar Valdimarsson, skrif- stofustjóri í samgönguráðuneytinu, flutti ávarp og fjallaði um fram- kvæmdir við hafnir landsins á árinu 1980 og bar fundinum kveðjur sam- gönguráðherra. Skýrsla stjórnar Formaður hafnasambandsins flutti skýrslu um störf stjórnar þess undan- gengið starfsár. Sambandinu bættist ein aðildarhöfn, Hólmavíkurhöfn, og eru nú 57 hafnir í því. Þá sagði for- maður frá þátttöku sinni í norrænu hafnaþingi og ræddi samdrátt, sem orðið hefði á árinu í fjárveitingum ríkisins til hafnarframkvæmda. Sigurður Hjaltason, sveitarstjóri á Höfn í Hornafirði, gjaldkeri sam- bandsins, gerði grein fyrir ársreikn- ingi þess, og var hann síðar á fundin- um borinn undir atkvæði og sam- þykktur samhljóða. Niðurstöðutölur á rekstrarreikningi ársins 1979 voru kr. 6.015.000,- Fjárhagsáætlun fyrir árið 1980—1981 var einnig samþykkt á fundinum og voru niðurstöðutölur hennar kr. 8.853.000 krónur og ár- gjöld hafna til sambandsins þannig reiknuð, að sveitarfélög með 800 íbúa og færri greiði 53 þús. krónur, með 801—2000 íbúa 106 þús. kr., 2.001 —10.000 ib. greiði 330 þús. kr., sveitarfélög með 10.001—20.000 íb. greiði 420 þús. krónur og sveitarfélög með fleiri en 20.000 ibúa greiði 1.050. þús. gamlar krónur. Fjárhags- og gjaldskrár- mál hafna Gylfi fsaksson, verkfræðingur, hafði á fundinum framsögu um fjárhags- stöðu hafna árin 1979 og 1980 og lagði fram spá um rekstur þeirra á árinu 1981 og kynnti jafnframt til- lögu um gjaldskrárbreytingar, sem stjóm sambandsins lagði fyrir fundinn. Umræður urðu um skýrsl- una og m. a. ræddir möguleikar á að einfalda uppsetningu gjaldskráa og helzt að hafa eina samræmda gjald- skrá fyrir allar hafnir á landinu. Einnig voru í upphafi fundar kynntar nokkrar tillögur, sem stjórn hafnasambandsins lagði fram á fundinum, og var þeim vísað til alls- herjarnefndar fundarins, sem kosin var í fundarbyrjun ásamt kjörnefnd. Þjóðhagslegt gildi fiskihafna Bjarni Einarsson. framkvæmdastjóri byggðadeildar Framkvæmdastofn- unar ríkisins, flutti á fundinum framsöguerindi, er hann nefndi Þjóð- hagslegt gildi fiskihafna. Gerði hann þar grein fyrir nýrri tækni í fisklönd- un og við flutning á fiski. Taldi hann unnt að stytta löndunartíma fiski- skipa og að minnka kröfur um lengd viðlegukanta til löndunar vegna styttingar á löndunartíma. Samhliða bættri löndunartækni yrði að koma til betri tækni í fiskmóttökuhúsum og í vöruhúsum almennt. Fjögurra ára áætlun um hafnargerðir Bergsteinn Gizurarson, deildarverk- fræðingur á Hafnamálastofnun, flutti á fundinum erindi um stöðu fjögurra ára áætlunar um hafnargerðir, 1979—1982, sem unnið væri að. Gerði hann grein fyrir framkvæmd- um við einstakar hafnir. Kom fram í ræðu hans, að unnið yrði á árinu 1980 við hafnarframkvæmdir fyrir 2.8 milljarða króna, en það er til muna lægri fjárhæð heldur en gert hafði verið ráð fyrir í tillögu að fram- kvæmdaáætlun ársins. Þybbur á bryggjum Erlendur Jónsson, skipstj. hjá Eim- skipafélagi Islands, flutti á fundinum erindi um varnir á bryggjum, sem kallaðar eru nýyrðinu þybbur, en þær eru í daglegu tali kallaðar „fendarar“. Erlendur taldi, að með meiri fyrir- hyggju varðandi varnir á bryggju- köntum mætti minnka til mikilla muna hin miklu tjón, sem verða á skipakosti landsmanna í höfnum. Er- iendur hefur skrifað grein um þetta efni fyrir Sveitarstjórnarmál, og birt- ist hún framan við þessa frásögn. SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.