Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Side 51

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Side 51
hinar mestu sökum aflabrests, sem verið hafði hér nokkur ár í röð. Nokkurs vonleysis gætti hjá fólki, og uppgjafar- tónn heyrðist úr mörgum áttum. Öllum var Ijós sú staðreynd, að Brimbrjóturinn var algert skilyrði þess, að Bolungarvík héldi áfram að vera byggilegur staður. Þá eygðu menn það ekki heldur, hvert þær 700 manneskjur, sem þá bjuggu hér, ættu að hverfa, sér til lífsbjargar, ef staðurinn legðist í auðn. En þannig töldu menn að hlyti að fara, ef bjargráð yrðu ekki þegar gerð. En svo fór, að þeir urðu fleiri, sem létu engan bilbug á sér finna og ótrauðir héldu barátt- unni áfram, heldur en þeir, sem kusu sér starfsvett- vagn annars staðar. Viðgerð stóð síðan næstu árin og var lokið við hana árið 1939, þótt á ýmsu gengi. Viðgerðin var framkvæmd m. a. á þann hátt, að steyptum kerjum var sökkt fremst við norðurhlið nökkvans og við enda hans, og er þar einmitt byrjunin á breikkun garðsins. Var Brimbrjóturinn nú orðinn 152 m langur og 12 m breiður fremst, en 8 m breiður ofar. Þegar hér var komið framkvæmdum, var bygg- ingarkostnaður ásamt viðgerðarkostnaði orðinn alls 524.000 krónur. Fyrstu árin var aðeins um styrki að ræða frá landssjóði, sem að fjárhæð voru óbundnir verk- kostnaði. Síðar var miðað við, að ríkissjóður greiddi ‘/3 byggingarkostnaðar, en síðustu árin helming kostnaðar. Viðgerðarkostnaður var í nokkrum til- fellum greiddur að fullu af ríkissjóði. Lenging brjótsins 1945 Næst var tekið til við lengingu brjótsins árið 1945 og var því verki haldið áfram árið 1946. Var Brjóturinn þá lengdur um 50 metra, og var það gert með steyptum kerjum. Voru steinkerin fyllt með grjóti svo og mikið bil, sem haft var milli kerjarað- anna. Áður en lokið var við að steypa þekjuna haustið 1946, skall á óveður með miklum sjógangi. Óveður þetta olli stórfelldum skaða á þessari ný- framkvæmd. Þekjan, sem búið var að steypa að mestu, brotnaði öll og sópaðist burt, kerin sprungu, skekktust og færðust til, og suðurhlið þeirra brotnaði öll, og mikill hluti grjótfyllingarinnar sópaðist inn fyrir brjótinn og myndaði rúst, sem nær stóð uppúr um flóð og náði langt upp með og inn frá honum. Þetta var að sjálfsögðu mjög mikið áfall, enda virtist mjög tvísýnt i fyrstu, hvort unnt yrði að halda uppi fiskiróðrum að óbreyttu ástandi. Það var og augljóst mál, að grjótrústin mundi torvelda mjög landtökuna í misjöfnum veðrum. Það fór þó svo, að sjósóknin lagðist ekki niður, þótt að- stæður allar væru mjög erfiðar. Nú höfðu orðið þau umskipti, frá því sem var árið 1936, að vonleysis og uppgjafar, sem þá varð svo vart, gætti ekki að þessu sinni, enda þótt ástandið væri slæmt og tjónið mikið. Trúin á framtíð staðar- ins hafði nú eflzt, og ibúum fækkaði ekki lengur; var heldur tekið að fjölga. Viðgerð var hafin árið eftir, grjótrústin hreinsuð Fundarmenn á ársfundinum virtu fyrir sér skuttogara Bol- víkinga, Dagrúnu ÍS 9, er skipið kom að bryggju daginn, sem ársfundur hafnasambandsins var haldinn. 45

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.