Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Síða 62

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Síða 62
ÉSE FRÁ__Q_ VATNSVEITA íBÚÐARDAL Ein kostnaðarmesta framkvæmd hlutfallslega, sem sveitarfélag hefur lokið við á árinu 1981, er vafalaust lagning vatnsveitu til Búðardals, 22.3 km leið innan af Svínadal. Þar er vatnið tekið á vatnaskilum á mörkum Hvammshrepps og Saurbæjarhrepps. Lögnin liggur því um þveran Hvammshrepp. Áætlað er, að fram- kvæmdin kosti um 300 millj. króna. Er hún fólgin í pípulögn, sem kostar 150 millj. króna, að meðtöldum flutningskostnaði, samsetningu hennar, sem kostar um 10 millj. króna, jarðvinnu og frágangi, sem kostaði nálægt því um 75 millj. króna; virkjun vatnsbólsins kostar um 12 millj. króna, og sitthvað annað ófyrirséð, verkfræðileg þjónusta og fleira kostaði um 50 millj. króna. Lagning vatnsveitunnar hófst um mánaðamótin maí og júní, og var þá jafnframt hafizt handa um vinnu við virkjun vatnsbólsins. Vatnið kemur úr lind úr berghlaupi og er talið mjög gott til neyzlu. Pipurnar í vatnsveit- una framleiddi Vinnuheimilið að Reykjalundi. Þær eru 180 mm víðar að mestu leyti, en 800 metrar þó 225 mm viðir. Flutningur á pipunum var boðinn út, gekk hann vel, en þær voru framleiddar á tímabilinu frá miðjum maí til miðs júli. Voru þær fram- leiddar i tveimur vélasamstæðum fyrirtækisins, og er þetta i fyrsta skipti, sem sama pípuvídd er fram- leidd í tveimur vélum samtímis. Pípumar eru úr polyethylenplastefni. Vinnuheimilið lagði til suðumenn, og um miðjan júlí var búið að sjóða 10 km af lögninni saman í 300 m langar lengjur. Jöfnum höndum var grafinn skurður undir vatnslögnina en jarðvegur reyndist vera erfiður og mun torveldara að grafa heldur en gert var ráð fyrir. Grjót reyndist meira en reiknað var með, en lögnin ergrafin 1.10 m undir yfirborði. Marteinn Valdimarsson, sveitarstjóri Laxárdalshrepps. Jóhannes Benediktsson frá Búðar- dal tók að sér jarðvinnu við lögnina, „og það má taka fram, að öll vinna var unnin af heimamönum, að undanskilinni suðuvinnu einni,“ sagði Marteinn Valdimarsson, sveitarstjóri Laxárdalshrepps, er hann skýrði okkur frá vatnsveitu- framkvæmdinni. „Til þessa hefur vatnsból Búðar- dals verið í malarási í jökulurð, sem þakin er leir og vatninu dælt úr bor- holu. Jarðvatnsstaðan hefur á sein- ustu árum smám saman lækkað og holumar gefið minna og minna vatn á sama tíma og vatnsþörf hefur auk- izt. Fyrir tveimur árum var byggður 600 tonna miðlunargeymir, sem hef- ur fleytt okkur yfir seinustu misserin, en vatnsskortur verið tilfinnanlegur i sláturtíðinni á haustin. Algert örygg- isleysi um vatnsöflun hefur hrjáð okkur og lítilfjörleg bilun í dælu valdið vatnsleysi um lengri eða skemmri tima.“ „Unnið hefur verið að leit að vatni siðastliðin þrjú ár samfellt með mæl- ingum, og lá ljóst fyrir í ársbyrjun 1979, að ekki var unnt að fá full- nægjanlegt vatn fyrir byggðina i Búðardal nær en þetta. 1 Búðardal búa 310 manns. Þar er mjólkurbú, Vaini hleypt á veltuna og hún þar með vígð og tekin í notkun. Við stútinn stendur Kristinn Jónsson, oddviti Laxárdalshrepps, og ræðir við Sigurð Karlsson, for- mann stjórnar vatnsveitunnar, og er hann Kristni á vinstri hönd, þ. e. hægra megin á myndinni. SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.