Sveitarstjórnarmál - 01.03.1997, Qupperneq 13
HEIÐURSBORGARAR
Friðgeir Þorsteinsson heiðursborgari
Stöðvarhrepps
Friögeir Þorsteinsson, heiöursborgari Stöövarhrepps, Guöríöur dóttir hans og Vil-
hjálmur Hjálmarsson, fv. oddviti og alþingismaöur frá Brekku í Mjóafirði. Ljósm. Al-
bert Ó. Geirsson.
I tilefni þess að 100 ár voru liðin
frá því að verslunarrekstur hófst í
byggðinni og að 90 ár voru frá því
að Stöðvarhreppur varð sérstakt
sveitarfélag samþykkti hrepps-
nefndin einróma að kjósa Friðgeir
Þorsteinsson heiðursborgara hrepps-
ins.
„Þegar litið er yfir sögu Stöðvar-
fjarðar er nafn Friðgeirs Þorsteins-
sonar í Árbæ áberandi,“ sagði Al-
bert Omar Geirsson, sveitarstjóri
Stöðvarhrepps, er hann afhenti hon-
um heiðursborgarabréf því til stað-
festingar á hátíðinni í júlí. „Hann
var einn af 28 manna hópi sem kom
saman til fundar á vordögum 1931
til þess að stofna kaupfélag á staðn-
um. Var Friðgeir kjörinn fundar-
stjóri þess fundar, aðeins 21 árs að
aldri. Frá þeim tíma hefur kaupfélag
verið rekið á Stöðvarfirði," sagði
Albert.
Friðgeir í Árbæ er fæddur á
Stöðvarfirði 15. febrúar 1910 og var
því 86 ára gamall á sl. ári. Hann átti
sæti í hreppsnefnd Stöðvarhrepps
frá árinu 1937 til ársins 1970, eða í
33 ár, og var oddviti frá árinu 1940
til ársins 1970, eða í þrjátíu ár.
Næsta kjörtímabil á eftir,
1970-1974, var hann formaður
hafnarnefndar, eins og hann hafði
löngum verið, og var annar tveggja
endurskoðenda hreppsins sama
kjörtímabil. Þá sat hann fyrir hrepp-
inn í sýslunefnd Suður-Múlasýslu
1944-1970.
„I marga áratugi er nafn Friðgeirs
Þorsteinssonar samofið nafni Stöðv-
arhrepps. Það má segja að fram-
kvæmdir og framfarir í byggðarlag-
inu hafi verið að miklu leyti undir
hans stjóm eða fyrir hans tilverkn-
að,“ sagði sveitarstjórinn.
Á starfsárum hans var unnið að
hafnargerð, skólamálum og öðrum
menntamálum, að samgöngubótum,
byggingu frystihúss, að rafvæðingu
og fleiru. Hann vann að uppbygg-
ingu Samvinnubankaútibús, sem
síðar varð útibú Landsbanka ís-
lands. Þá var Friðgeir umboðsmaður
Brunabótafélags Islands, sá um
sjúkrasamlagið og sat á Fiskiþingi í
FRÁ STJÓRN SAM-
BANDSINS
Sigríður Stefánsdóttir
varaformaður
Á fundi stjórnarinnar hinn 21.
nóvember sl. var Sigríður Stefáns-
dóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, kos-
in varaformaður sambandsins til
eins árs.
Jafnframt voru Valgarði Hilmars-
syni þökkuð störf hans sem varafor-
manns síðasta starfsár.
þrjá áratugi. Auk starfs í þágu sveit-
arfélagsins sótti Friðgeir sjó og
stundaði landbúnað til heimilisnota.
Eiginkona Friðgeirs var Elsa Jóna
Sveinsdóttir frá Bæjarstöðum í
Stöðvarfirði, er lést síðla árs 1978.
Þau eignuðust 6 böm.
Sveitarfélög
Getum útvegað erlendis
frá, bœði notað og nýtt,
allar gerðir vinnuvéla,
vörubíla og traktora
svo og heyvinnuvélar.
Helgi Harðarson
Uppl. í síma 565 4162
7