Sveitarstjórnarmál - 01.03.1997, Síða 22
HEILBRIGÐISMÁL
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í fíkniefna-,
áfengis- og tóbaksvörnum
Dögg Pálsdóttir hrl.
1. Inngangur
Hún var ófögur myndin sem fjölmiðlar
landsins drógu upp af ástandinu í fíkniefna-
neyslu unglinga í ársbyrjun 1996. Upplýs-
ingamar um fíkniefnavandann komu eins og
sprengja inn í íslenskt samfélag og það var
eins og þjóðin hefði vaknað upp við vondan
draunt. Margir héldu að neysla fíkniefna
væri bundin við þröngan hóp vandræðaungl-
inga. 1 ljós kom að vandinn fylgir hvorki
stétt né stöðu og að venjulegir unglingar frá
góðum heimilum hafa ieiðst út í neyslu efna af þessu
tagi.
Engin allsherjarlausn er til á þessum vanda. Jafnframt
er nauðsynlegt að minnast þess að ötullega hefur verið
unnið að forvamastatfi á þessu sviði, t.d. hjá löggæslu
og tollgæslu og fjölmörgum öðrum aðilum. En betur má
ef duga skal.
Stjómvöldum var Ijóst að við þessum tíðindum yrði
að bregðast. Ríkisstjómin setti á laggirnar nefnd ráðu-
neyta um samræmingu aðgerða vegna átaks í ávana- og
fíkniefnavömum. Þá skipaði dómsmálaráðherra sérstaka
verkefnisstjórn til að vinna að þessum málum að því
leyti sem þau heyra undir dómsmálaráðuneytið.
Verkefnisstjóm dómsmálaráðherra skilaði tillögum
sínum í júní 1996. Hún lagði m.a. til að ríkisstjórnin
markaði sér stefnu í þessum nrálaflokki og að stofnað
yrði sérstakt áfengis- og vímuvamaráð. Sérstök áhersla
var lögð á samstarf við foreldra í tillögum verkefnis-
stjómarinnar. Þá var lagt til að starf fíkniefnadeildar lög-
gæslunnar yrði eflt bæði með fjölgun stöðugilda og
bættum tækjabúnaði auk þess sern samvinna milli lög-
gæslu og tollyfirvalda yrði aukin. Loks lagði verkefnis-
stjómin til ýmsar lagabreytingar og að fíkniefnasamn-
ingur Sameinuðu þjóðanna frá 1988 yrði staðfestur.
Ríkisstjórnin ákvað að fela nefnd ráðuneyta að útfæra
nokkrar tillögur verkefnisstjómarinnar sem leiddi síðan
til þess að hinn 3. desember 1996 kynnti ríkisstjórnin
heildstæða áætlun í fíkniefna-, áfengis- og tóbaksvöm-
um.
Helstu þættir í aðgerðum ríkisstjómarinnar eru:
1. Stefna ríkisstjómarinnar í fíkniefna-, áfengis- og tó-
baksvömum.
2. Stofnun áfengis- og vímuvamaráðs.
3. Auknir fjármunir til forvama.
4. Efling löggæslu og tollgæslu með aukn-
um fjárveitingum.
5. Fjárveiting til stuðnings við ungmenni í
áhættuhópum gagnvart notkun fíkniefna og
áfengis.
6. Samstarf ríkisins, Reykjavíkurborgar og
Samtaka Evrópuborga gegn eiturlyfjum
(ECAD - European Cities Against Drugs)
um áætlunina Island án eiturlyfja 2002.
7. Fullgilding Islands á samningi Samein-
uðu þjóðanna gegn ólöglegri verslun með fikniefni og
skynvilluefni frá 20. desember 1988 og samningi frá 8.
nóvember 1990 sem gerður var á vettvangi Evrópuráðs-
ins um þvætti, leit, hald og upptöku ávinnings af afbrot-
um.
Verður nú vikið nánar að einstökum þáttum þessara
aðgerða.
2. Stefna ríkisstjórnarinnar ífíkniefna-, áfengis- og
tóbaksvörnum
í stefnu ríkisstjómarinnar felst að hún hefur ákveðið
að beita sér markvisst fyrir því að ráðuneyti og stofnanir,
löggæsla og tollgæsla, í samvinnu við sveitarfélög, for-
eldrafélög, félagasamtök og aðra, taki höndum saman og
samhæfi viðbrögð, aðgerðir og samstarf með það fyrir
augum að uppræta fíkniefnaneyslu bama og ungmenna
og draga stórlega úr áfengis- og tóbaksnotkun þeirra.
Áhersluatriði stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum mála-
flokki fram til ársins 2000 eru:
• Að efla forvamir, einkum þær sem beint er að ein-
staklingum sem eru í áhættuhópum gagnvart notkun
fíkniefna, áfengis og tóbaks.
• Að hefta aðgengi bama og ungmenna að fíkniefn-
um, áfengi og tóbaki.
• Að auka öryggi almennings með fækkun fíkniefna-
tengdra brota.
• Að efla andstöðu í þjóðfélaginu gegn notkun bama
og ungmenna á fikniefnum, áfengi og tóbaki.
• Að efla meðferðarúrræði fyrir ungmenni sem orðið
hafa fíkninni að bráð.
Stefnan gerir ráð fyrir að ráðuneyti og undirstofnanir