Sveitarstjórnarmál - 01.03.1997, Síða 30
FRÆÐSLUMÁL
Fræðslunámskeið fyrir stuðnings-
fulltrúa og fólk í líkum störfiim
Margrét Margeirsdóttir, deildarstjóri ífélagsmálaráðuneytinu
Eins og kunnugt er voru nýlega
samþykkt á Alþingi lög þess efnis
að flytja málefni fatlaðra frá ríki til
sveitarfélaga eftir tvö ár. Gert er ráð
fyrir að undirbúningur að slíkum
breytingum hefjist innan tíðar og er
stefnt að því að breytingin öðlist
gildi þann 1. janúar 1999.
Mikilvægt er að sú þekking og
reynsla, sem hefur orðið til á undan-
förnum áratugum varðandi málefni
fatlaðra, verði sem aðgengilegust
fyrir sveitarstjórnarmenn og starfs-
menn þeirra, en það ætti að auð-
velda þeim að takast á við væntan-
legt verkefni.
Ritið „Sveitarstjórnarmál“ er
kjörinn vettvangur fyrir miðlun upp-
lýsinga og fræðslu af því tagi sem
að framan er nefnt.
I eftirfarandi pistli verður greint
frá starfsemi fræðslunefndar félags-
málaráðuneytisins sem hefur staðið
fyrir umfangsmiklu námskeiðahaldi
nokkur undanfarin ár fyrir meðferð-
ar- og uppeldisfulltrúa og fólk í lfk-
um störfum.
Fræðslunefnd félagsmálaráðu-
neytis var skipuð í byrjun mars
1993 og hefur starfað óslitið síðan. í
nefndinni eiga sæti Margrét Mar-
geirsdóttir deildarstjóri sem er for-
maður nefndarinnar, Arni Stefán
Jónsson, framkvæmdastjóri Starfs-
mannafélags ríkisstofnana, og Þór
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu ntálefna fatlaðra á
Reykjanessvæði.
Aður en fræðslunefndin hóf störf
höfðu ráðuneytinu borist eindregin
tilmæli bæði frá starfsfólki ýmissa
stofnana svo og félagasamtökum
um að koma á fót starfsnámi í því
skyni að efla færni og þekkingu
starfsfólks á heimilum og stofnun-
um fyrir fatlaða og stofnunum fyrir
börn og unglinga í vanda. Með
starfsnámi af þessu tagi yrði hægt
að styrkja ófaglærða í starfi og
stuðla þannig að markvissari vinnu-
brögðum og betri árangri.
Nokkur undirbúningsvinna á
þessum vettvangi hafði raunar átt
sér stað þegar fræðslunefndin tók til
starfa, þannig lágu fyrir drög að
námskeiði fyrir ófaglært fólk sem
starfaði á Barna- og unglingageð-
deild, Unglingaheimili ríkisins og á
heimilum og stofnunum fatlaðra.
Fræðslunefndin hóf fljótlega að
skipuleggja fyrsta grunnnámskeiðið
og var námsskrá tilbúin í september
1993. Jafnframt voru gerð drög að
framhaldsnámskeiði sem greindust í
tvo þætti: annan fyrir starfsfólk í
þjónustu við fatlaða og hinn fyrir
starfsfólk á sviði bama og unglinga
sem þarfnast sérstakrar meðferðar.
Fræðslunefndin réð til starfa Þór-
arin Eyfjörð til að annast undirbún-
ing og hafa umsjón með námskeið-
unum.
Fyrsta grunnnámskeiðið hófst í
Reykjavík í byrjun nóvember 1993
og varð strax mikil aðsókn.
Fræðslunefndin taldi ekki unnt að
taka við fleiri þátttakendum en 30
manns á hvert námskeið en rúmlega
70 umsóknir bárust á þetta fyrsta
námskeið.
Kennsla fór fram í húsnæði
BSRB að Grettisgötu 89 í Reykja-
vík og var kennt fjórar klst. daglega,
í vikulotum með vikuhléum, en allir
þátttakendur voru jafnframt í vinnu
með náminu.
Námsgreinar voru almenn stjóm-
sýsla, s.s. lög og reglugerðir um
málefni fatlaðra, þróun og uppbygg-
ing á þjónustu, lög um barnavemd,
lög um félagsþjónustu sveitarfélaga,
lög um réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna, uppeldisfræði, félags-
sálfræði, persónuleikasálfræði, sið-
fræði, lífeðlis- og erfðafræði, helstu
flokkar fötlunar, næringarfræði,
áfallakenningar, tómstundir, með-
ferðaráætlanir og samstarf við að-
standendur.
Námskeiðið spannaði yfir 160
klst. og því lauk í lok mars 1994
með formlegri útskrift 28 þátttak-
enda, en tveir heltust úr lestinni.
Námskeiðið var metið til tveggja
launaflokka hækkunar samkvæmt
kjarasamningum ríkisins og Starfs-
mannafélags ríkisstofnana.
Segja má að með þessu fyrsta
námskeiði hafi brautin verið rudd
og línurnar lagðar fyrir þau nám-
skeið sem fylgt hafa í kjölfarið.
Alls hefur fræðslunefndin haldið
átta slík grunnnámskeið síðan, þar
af fimm í Reykjavík, og hafa þátt-
takendur komið frá höfuðborgar-
svæðinu, Suðumesjum, Selfossi og
víðar.
Þá hafa verið haldin þrjú grunn-
námskeið annars staðar á landinu.
Eitt var haldið á Akranesi 1995 en
þátttakendur komu frá Vesturlands-
svæði, annað var haldið á Sauðár-
króki fyrir starfsfólk á Norðurlandi
vestra og komu þátttakendur frá
Siglufirði og allt vestur í Flúna-
vatnssýslur. 1 maí 1996 lauk síðan