Sveitarstjórnarmál - 01.03.1997, Síða 31
FRÆÐSLUMÁL
Þátttakendur viö lok grunn-
námskeiðs í Reykjavík 1995
ásamt fræöslunefnd félags-
málaráöuneytisins.
grunnnámskeiði á ísaftrði.
Við skipulagningu námskeiða af
þessu tagi hefur að sjálfsögðu verið
leitast við að sníða námsefni og fyr-
irkomulag sem best að þörfum þátt-
takenda. Vegna þess að þeir stunda
vinnu með námi dreifist námið yfir
lengri tíma, allt upp í 4-5 mánuði,
en slíkt virðist gefast nokkuð vel. Þá
er hægt að hagnýta og prófa nýja
þekkingu í starfi og ræða um þá
reynslu sem þannig fæst.
Vart þarf að taka fram hversu
mikilvægt er að fá hæfa kennara til
starfa, fólk sem býr yfir mikilli
þekkingu og reynslu á sínu sviði og
býr jafnframt yfir hæftleikum til að
miðla henni á aðgengilegan og auð-
skilinn hátt. Fræðslunefndin lagði
strax í upphafi mjög mikla áherslu á
þennan þátt og leitaði til hinna fær-
ustu sérfræðinga hvers á sínu sviði.
Margir þeirra sem komu til starfa
á fyrstu námskeiðunum hafa síðan
kennt á öllum námskeiðunum.
Hvað viðvíkur námskeiðunum
utan höfuðborgarsvæðisins tókst
mjög góð samvinna milli fræðslu-
nefndarinnar við svæðisskrifstofur
málefna fatlaðra og forstöðumanna
farskóla á svæðunum, sem höfðu
umsjón og eftirlit með framkvæmd
þeirra. Kennsla fór fram í húsnæði
fjölbrautaskólanna þar sem þeir eru
og að sjálfsögðu var sömu námsskrá
fylgt alls staðar.
Auk þeirra grunnnámskeiða sem
að framan greinir var fyrsta fram-
haldsnámskeiðið haldið í Reykjavík
á síðastliðnu ári. Spannaði það yfir
80 klst. og voru þátttakendur um 30
talsins. Höfðu þeir allir lokið grunn-
námskeiði áður. Námsgreinar voru
að vonum nokkuð frábrugðnar þeim
sem kenndar höfðu verið á fyrri
námskeiðum, t.d. var mikil
áhersla lögð á fræðslu um geðsjúk-
dóma fullorðinna og bama, orsakir
þeirra og meðferðarúrræði.
Ennfremur má nefna námsgreinar
um forvamir og meðferðarstarf með
unglingum sem ánetjast hafa vímu-
efnum og eiturlyfjum. Þá var m.a.
tekið fyrir samstarf og samskipti
starfsmanna á vinnustað, starfsum-
hverfi og grundvallaratriði árang-
ursríkrar stjórnunar. Þá var einn
þáttur heimsóknir á stofnanir, þar
sem fram fór ítarleg kynning á starf-
seminni. Má í því sambandi nefna
heimsókn á Greiningarstöð ríkisins,
Bama- og unglingageðdeild, Starfs-
þjálfun fatlaðra o.fl.
Framhaldsnámskeiðið var metið
til eins launaflokks hækkunar.
Samanlagður fjöldi þeirra þátttak-
enda sem hafa lokið grunn- og
framhaldsnámskeiðum mun vera
um 270 manns; þar af eru konur í
miklum meiri hluta.
Kostnaður vegna námskeiðanna
hefur að öllu leyti verið greiddur
með styrkjum sem fræðslunefndin
hefur fengið frá Starfsmenntasjóði
félagsmálaráðuneytisins.
Þátttakendur hafa ekki þurft að
greiða námskeiðsgjöld né heldur
ýmis námsgögn sem þeim hafa ver-
ið í té látin endurgjaldslaust.
Sums staðar hafa stéttarfélög veitt
styrki vegna ferðakostnaðar þátttak-
enda.
Aformað er að næsta grunnnám-
skeið hefjist í Reykjavfk um miðjan
mars á þessu ári og ennfremur eru
uppi hugmyndir um námskeiðahald
annars staðar á landinu en endanleg-
ar ákvarðanir hafa þó ekki verið
teknar.
25