Sveitarstjórnarmál - 01.03.1997, Blaðsíða 39
SKI PULAGSMÁL
Með vaxandi umferð hafa menn gert sér æ betur ljós
óþægindi af umferðarhávaða og mikilvægi þess að
skipuleggja byggð með hann í huga. Yfirvöld hafa tekið
á þessu með ákvæðum í mengunarvamareglugerð og í
nágrannalöndum hafa ýmsar borgir sett sér það mark-
mið að minnka umferðarhávaða niður fyrir skilgreind
mörk á ákveðnu árabili.
f mengunarvamareglugerð nr. 48/1994 eru settar fram
reglur um umferðarhávaða og hvaða viðmiðunargildi
fyrir hljóðstig skuli miða við þegar skipulögð eru ný
hverfi.
Við nýskipulag íbúðarhverfa er viðmiðunargildi fyrir
mesta hljóðstig utan við glugga 55 dB(A), en leiðbein-
ingargildið er 45 dB(A). Viðmiðunargildi er skilgreint
sem það gildi sem verður að uppfylla til þess að ástandið
geti talist viðunandi. Ef þetta viðmiðunargildi er samt
sem áður ekki uppfyllt skal skilgreina hvernig hægt
verður að uppfylla það innan ákveðins tíma. Leiðbein-
ingargildi er skilgreint sem það gildi sem ákjósanlegt er
að uppfylla eða stefna að því að uppfylla sem langtíma-
markmið en leitast skal við að uppfylla það þar sem þess
er nokkur kostur.
í mengunarvamareglugerðinni eru einnig undanþágu-
ákvæði, þannig að viðkomandi heilbrigðisnefnd sveitar-
félags getur vegna sérstakra, óviðráðanlegra aðstæðna og
að höfðu samráði við Hollustuvemd ríkisins leyft að á
ákveðnum, afmörkuðum svæðum megi hljóðstig vera
yfír framangreindum viðmiðunarmörkum.
Á undanfömum missemm hefur Almenna verkfræði-
stofan hf. fengist við útreikning á umferðarhávaða vegna
skipulagsvinnu fyrir Reykjavíkurborg, Kópavog, Garða-
bæ, Hafnarfjörð og einnig fyrir framkvæmdaaðila og
Vegagerðina.
33