Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 24
UMHVERFISMÁL
Dagskrá 21
Ríó-samningurinn og hlutverk sveitarfélaga í umhverfismálum
Birgir Þórðarson umhverfisskipulagsfræðingur
Á umhverfis- og þróunarþingi
Sameinuðu þjóðanna, sem haldið
var í Rio de Janeiro í Brasilíu í júní
1992, var samþykkt áætlun þjóð-
anna um umhverfis- og þróunarmál
fyrir 21. öldina. Áætlun þessi er
byggð á vinnu Brundtlandnefndar-
innar um helstu leiðir til lausnar á
vanda heimsins á 21. öldinni. Dag-
skrá 21 er viðamikið verk á um 700
blaðsíðum. Pað fjallar um helstu
umhverfisvandamál heimsins: haf-
og loftmengun, þróun í landbún-
aði, skógrækt og fjölbreytileika
tegundanna, vandamál vegna
aukins úrgangs, nýtingu auð- n
linda og orkumál, byggða- og
skipulagsmál. Bent er á nauð- *
synlegar aðgerðir á hinum ýmsu
sviðum til lausnar umhverfis-
vandamálum. Dagskrá 21 fjallar
ekki einungis um umhverfismál
heldur einnig um ýmis þróunarmál,
félagslega þætti og baráttu gegn fá-
tækt. Fjallað er um samhengi allra
þessara þátta og þörf á róttækum
breytingum á neysluvenjum. Dag-
skrá 21 er ekki lagalega bindandi
samningur en með undirritun áætl-
unarinnar hafa þjóðir heims, þ.m.t.
Islendingar, skuldbundið sig til að
móta ákveðna stjórnmálastefnu og
siðareglur í anda sjálfbærrar þróun-
ar. Þó að þessar skyldur hvíli mest á
herðum stjórnvalda þá snerta þær
einnig skyldur einstaklinga, heimila,
fyrirtækja, sveitarfélaga og annarra
opinberra aðila. Hlutverk sveitarfé-
laga er sérstaklega mikilvægt í
þessu samhengi, margar nauðsyn-
legar breytingar og framfarir eru
hluti af skyldum sveitarfélaganna og
þau eru sú stjórnsýslueining sem
stendur næst fólkinu og geta komið
hugmyndum og breytingum í verk.
Reynslan hefur einnig sýnt að sveit-
arfélögin geta komið á jákvæðum
breytingum, t.d. í umhverfismálum,
hraðar en t.d. stofnanir á vegum rík-
isins. Því er það nokkuð ljóst að stór
hluti af framkvæmd Dagskrár 21
verður aðeins unninn af sveitarfé-
lögum.
I 28. kafla í Dagskrá 21 er fjallað
um hlutverk sveitarfélaga f um-
hverfis- og þróunaráætlun Samein-
uðu þjóðanna. Hér eru öll sveitarfé-
lög heimsins hvött til að vinna
áætlun fyrir næstu öld um þessa
þætti í sinni heiinabyggð í anda
sjálfbærrar þróunar, umhverfis-
vemdar og réttlætis.
Eftirfarandi eru nokkur helstu at-
riði úr 28. kafla í Dagskrá 21:
Þar sem mörg vandamál og lausn-
ir þeirra, sem Dagskrá 21 fjallar um,
eru í höndum og á verksviði sveitar-
félaga, er samvinna við sveitarfé-
lögin lykilatriði til að ná markmið-
um. Sveitarfélög stýra, reka og við-
halda hagrænum, félagslegum og
umhverfisleguni þáttum, þau bera
ábyrgð á skipulagsmálum og úrbót-
um í umhverfismálum í sínu héraði
auk þess að hafa áhrif á þróun hnatt-
rænt. Vegna beinna tengsla sveitar-
félaga við íbúa er hlutverk sveitarfé-
laga mikilvægt til að fræða, virkja
og hlusta á skoðanir og óskir íbú-
anna til að vinna að framgangi sjálf-
bærrar þróunar.
Sveitarfélögin skulu, í samstarfi
við íbúa, vinna að gerð markmiða
fyrir sjálfbæra þróun.
Sveitarfélög skulu, í alþjóð-
legu samstarfi, vinna að sam-
ræmingu starfs til sjálfbærrar
þróunar.
1. Dagskrá 21 á að vera þró-
un þar sem samfélagið allt tek-
ur þátt í að koma í framkvæmd,
bæði með vinnu að markmiðs-
setningu og að koma markmiðum
í framkvæmd. Lögð er áhersla á
þátttöku kvenna, bama og unglinga.
2. Dagskrá 21 er leiðarljós til
framtíðarinnar. Hafa skal í huga
ekki einungis lausnir vandamála
næstu 5-10 árin, heldur einnig
hvemig samfélagið getur best unnið
að sjálfbæru samfélagi næstu
50-100 árin.
3. Dagskrá 21 fjallar um hvemig
sveitarfélögin og íbúar þeirra geta
lagt sitt fram til lausnar umhverfis-
og þróunarvandamálum hnattrænt.
Ekki er nóg að fjalla einungis unr
vandamál og lausnir þeirra á heima-
slóð, heldur ræða þær spurningar
sem varða hvernig íbúar í sveitarfé-
laginu geti lagt sitt af mörkum til að
minnka álag á umhverfíð hnattrænt
og hvemig þeir geti stuðlað að rétt-
látri nýtingu auðlinda heimsins.
4. Dagskrá 21 fjallar ekki einung-
is um umhverfið í víðri merkingu
þess orðs, heldur þróun heimsins
1 50