Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 35
FRÆÐSLUMÁL
sinni. Við lögðum þunga áherslu á að inngangar skólans
væru skýrir, opnir og í beinum tengslum við aðliggjandi
stígakerfi og aðkomu akandi.
Hugmyndin
Hugmyndin að byggingunni sjálfri byggist á tveim
samsíða byggingarálmum, austur- og vesturálmu. Bygg-
ingamar tengjast innbyrðis um „götu“, eins konar lífæð
skólans, milli álmanna tveggja.
Eins og áður sagði þá er það eitt af höfuðmarkmiðum
höfunda að umhverfi nemenda utan kennslustunda til fé-
lagsstarfa og almennrar viðveru í skólanum verði líflegt og
hvetjandi í heilsdagsnámi. „Gatan“ er sköpuð sem um-
gjörð um þetta markmið sem höfuðrými skólans. Um hana
fara öll helstu umferðarrými byggingarinnar. Þar em jafn-
framt aðlinngangar skólans, en við hana og sem hluti
hennar fer hið eiginlega félagslíf og almenna viðvera fram.
Byggingamar tvær ásamt götunni mynda eigið samfé-
lag smárra og stórra rýma. Við „götuna" standa einstaka
„íbúðarhús" (kennslustofumar) og „stofnanir" (bókasafn
og stjórnun), „verslunar- og atvinnuhúsnæði" (sér-
kennslustofur og eldhús) og þar er jafnframt aðaltorg
(hátíðarsalur). Umhverfið og skipulagið verður þannig til
þess að glæða samskipti nemenda innan skólans og virk-
ar sem hvati á þau. Þá eru góðir möguleikar til inniveru
utan kennslu, t.a.m. í frímínútum sem oftar en ekki er
nauðsynlegt þegar veður gerast válynd.
Hugmyndin byggir á línulaga byggingu sem gerir
mögulegan mun meiri sveigjanleika við niðurröðun ár-
ganga í stofur milli ára, þar sem byggingunni er ekki
skipt í fastmótaðar árgangaálmur. Auk þess verður allt
eftirlit og yfirsýn með nemendum mun einfaldara og því
auðveldara að koma í veg fyrir hugsanlega árekstra milli
einstaklinga innan skólans.
1 6 1