Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Qupperneq 40

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Qupperneq 40
UMHVERFISMAL Umhverfismál og sveitarfélög - hver er ávinningurinn? Stefán Gunnar Thors og Halldóra Hreggviðsdóttir, ráðgjafar á umhverfis- og byggðatæknisviði hjá VSÓ RAÐGJÖF Umhverfismál og náttúruvernd eru málaflokkar sem hafa vaxið ört síðustu áratugi og er orsök þess meðal annars gífurlegar breytingar á náttúrlegu umhverfi á tiltölulega skömmum tíma. A íslandi hefur þróunin verið hröð; íbúum landsins hefur fjölgað úr um 79.000 árið 1901 í 270.000 árið 1996. Á sama tíma hefur landsframleiðsla að magni til rúmlega 30-faldast og urnfang iðnaðar stór- aukist. Ör vöxtur mannfjölda, framleiðslu og notkun aðfanga hefur aukið álagið á náttúrlegar auðlindir bæði hérlendis sem og annars staðar í heintinum. Hugmyndin um sjálf- bæra þróun er meðal annars byggð á því að tekið sé tillit til náttúrlegs umhverfis og velferðar framtíðarkynslóða við efnahagslegar ákvarðanir og reynt að samræma efnahagsleg, samfélagsleg og umhverfxsleg markmið. Á undanförnunr árum hafa mörg fyrirtæki á heims- markaði tekið upp svokölluð umhverfisstjómunarkerfi. Helstu ástæður þess eru breytt viðhorf almennings til umhverfismála, kröfur neytenda, birgja og hagsmunaað- ila og tilkoma laga og reglugerða um umhverfismál. Fyrsta skrefið í uppsetningu umhverfisstjórnunarkerfis er að rýna í stöðu umhverfismála hjá fyrirtæki og semja umhverfismálastefnu þess. Byggt á þessum grunnþátt- um setur fyrirtækið síðan fram stefnumið og markmið í umhverfismálum1’ og gerir framkvæmdaáætlun til að ná settum markmiðum. Sveitarfélög og umhverfismál Ábyrgð sveitarstjórna er engu minni en fyrirtækja varðandi bætta umgengni og nýtingu náttúruauðlinda og í ljósi mikillar umræðu um þessar mundir um mat á um- hverfisáhrifum hefur komið í ljós að sveitarstjórnir hafa 1) Stefnumið í umhverfismálum: Heildartakmark í umhvetfismálum, grund- vallað á umhverfismálastefnunni, sem aðili einsetur sér að uppfylla. Markmið í umhverfismálum: Nák\wmlega tilgreindar kröfur um frammistöðu, töluleg- ar þegar því verður við komið.fyrir aðila í heild sinni eða að hluta. Kröfurn- ar grundvallast á stefnumiðum fyrirtœkisins í umhverfismálum og þœr verður að uppfylla ef stefnumiðin eiga að nást. mikilvægu hlutverki að gegna í um- hverfismálum. Matið er hins vegar einungis hluti af þessum mikilvæga málaflokki. Með tilliti til þess að mikilvægi umhverfismála eykst stöðugt þurfa sveitarfélögin, jafnt sem fyrirtækin, að marka sér skýra stefnu í umhverfismálum, setja sér markmið, semja framkvæmdaáætl- anir til að ná settum markmiðum og hrinda þeim í framkvæmd. Líkt og stjóm fyrirtækja ber ábyrgð á afkomu þess, hefur sveitarstjórn skyldum að gegna gagnvart íbúum sveitarfélaganna. Atvinnumál, menntamál, heilbrigðis- mál, skipulagsmál og nú umhverfismál eru eflaust mikil- vægustu málaflokkar sveitarfélaga og nauðsynlegt að taka tillit til þeirra allra við alhliða stefnumótun sveitar- félaga. Umhverfismálastefna sveitarfélaga Sveitarfélögin eru mismunandi eins og þau em mörg og því ólíklegt að hægt sé að yfirfæra stefnumið eins sveitarfélags á annað. Sveitarstjómir þurfa hver fyrir sig að móta sér stefnu í umhverfismálum, setja sér markmið og gera framkvæmdaáætlanir. Til þess að sveitarstjóm geti markað sér raunhæfa stefnu og áætlun er ákjósanlegt að rýna í stöðu umhverfismála og kynna sér skoðun íbúa sveitarfélagsins. Þrátt fyrir að stefnumið sveitarfélaga verði mismunandi em grundvallarþrepin að mótun um- hverfisstefnu þau sömu. Helstu grunnþrepin að mótun stefnumiða í umhverfismálum eru: 1. Umhverfisrýni Til þess að sveitarstjómir geti markað skýra stefnu í umhverfismálum, og eru skipulagsmálin mikilvægur hluti þeirra, er nauðsynlegt að ástand og einkenni um- hverfisins séu þeim ljós. Á þeim grunni byggir síðan ákvörðunartaka um forgangsröðun í umhverfismálum. Til þess að best sé að málum staðið er mikilvægt að framkvæma umhverfisrýni á landsvæði sveitarfélags. Slík rýni er úttekt á umhverfinu og væri meðal annars fólgin í því að: 1 66
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.