Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Blaðsíða 76

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Blaðsíða 76
Frá landshlutasamtökunum Pétur Þór Jónasson framkvœmdastjóri: Aðalfiindur Eyþings Höfuðstöðvar menntunar í sjávarútvegi verði á Norðurlandi eystra Aðalfundur Eyþings var haldinn í Stórutjarna- skóla dagana 8. og 9. september árið 2000 og var þetta 8. aðalfundur samtakanna. Ýmis mál sem brenna á sveitarstjórnum voru tekin til umíjöllunar auk venjulegra aðalfundarstarfa. Þá var haldið áfram umQöllun og vinnu við aðgerðaáætlun fyrir Eyþing sem var meginviðfangsefni aðalfundar árið áður. Óvenju rnargir gestir fylgdust með störfum fundarins að þessu sinni. Ástæða er til að nefna góða fyrirgreiðslu staðarhaldara og þá einstaklega góðu aðstöðu sem er fyrir fundi af þessu tagi í Stórutjarnaskóla. Fundarstjórar voru þau Sigbjörn Gunnarsson, sveitarstjóri í Mývatnssveit, og Helga A. Erlings- dóttir, oddviti Ljósavatnshrepps. Formaður Eyþings, Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri Akureyrar, bauð fulltrúa og gesti velkomna. Erindi Sveitarfélögin og félagslega íbúðakerfið Guðríður Friðriksdóttir, forstöðumaður Húsnæð- isskrifstofu Akureyrarbæjar, dró í erindi sínu m.a. fram þær breytingar sem urðu á félagslega íbúða- kerfinu með nýjum lögum um húsnæðismál 1. jan- úar 1999 og áhrif þeirra á fjárhag sveitarfélaga. Gerði hún einnig grein fyrir þætti ríkisins og þeim aukna kostnaði sem lendir á sveitarfélögunum. Áhrif frumvarps til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga Gunnlaugur A. Júlíusson, deildarstjóri hagdeild- ar Sambands íslenskra sveitarfélaga, fór m.a. yfir helstu þætti frumvarpsins sem leiða af sér auknar kröfur í starfsmannahaldi og ræddi þann kostnaðar- auka sem i frumvarpinu felst fyrir sveitarfélögin. Greining kostnaðar við rekstur grunnskóla Ólafur Darri Andrason ráðgjafi fjallaði um mat á kostnaði sveitarfélaga við yfirtöku á rekstri alls grunnskólans og hugsanleg kostnaðaráhrif nýrrar aðalnámsskrár í samræmi við samkomlag ríkis og sveitarfélaga frá 4. mars 1996. Meðal annars gerði hann grein fyrir könnun á kostnaði og tekjum níu sveitarfélaga. Kynning á verkefninu Norðurlandsskógar Sigrún Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurlandsskóga, fór yfir forsögu verkefnisins, hugmyndafræði og skipulag. Verkefninu eru ætluð 40 ár og felst það í ræktun skóga og skjól- belta og er byggt á lögum frá 1999 um landshluta- bundin skógræktarverkefni. Starfssvæðið er allt Norðurland. Kynning á símenntunar- og fræðslumiðstöðvum Iðunn Antonsdóttir, framkvæmdastjóri Fræþings, og Katrín Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri SIMEYjar, kynntu starfsemi Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga (Fræþing) og Símenntunarmiðstöðvar Eyjatjarðar (Símey). Markmið þeirra og þjónusta var kynnt en fram kom að þær starfa með nokkuð misjöfnum hætti. Pétur Þór Jónasson lauk M.Sc.-prófi í landbúnaðar- verkfrœói frá Búnaðarhá- skólanum í Uppsölum í Sviþjóð 1983, starfaði um hríð sem ráðunautur á Austurlandi ogsem kennari við búvísindadeild Bœnda- skólans á Hvanneyri og var forstöðumaður tölvudeildar Búnaðarfélags íslands. Hann var ráðinn fyrsti sveitarstjóri Eyjajjarðarsveitar 1. inaí 1991 ogframkvœmdastjóri EYÞINGS 1. maí 1998.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.