Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Blaðsíða 78

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Blaðsíða 78
Fró landshlutasamtökunum Frá undirritun samstarfssamnings um þróunarverkefni á sviði heilbrigðismála. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Pétur Þór Jón- asson, framkvæmdastjóri Eyþings, Ólafur H. Oddsson héraðs- læknir, Torfi Rafn Halldórsson, hugbúnaðarfyrirtækinu doc.is, Stefán Haraldsson, stjórnarformaður Heilbrigðisstofnunar Þing- eyinga, og Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. Ruslahaugar varnarliðsins á Heiðarfjalli á Langa- nesi höfðu verið mikið til umfjöllunar á starfsár- inu. Þá gerði hann grein fyrir stofnun Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða sem stofnuð voru á árinu 1999 og er ætlað að vera samráðsvettvangur m.a. til að samræma aðgerðir. Greinargerð stjórnar um aðgerðaáætlun Eyþings Pétur Þór Jónasson, framkvæmdastjóri Eyþings, kynnti svör sveitarstjórna og samantekt á niður- stöðum vinnuhópa í framhaldi af aðgerðaáætlun fyrir Eyþing sem samþykkt var á síðasta aðalfundi. Auk þess að leita eftir sjónarmiðum frá sveitar- stjórnum ákvað stjórnin að fá til liðs við sig vinnu- hópa í einstökum málaflokkum aðgerðaáætlunar- innar. í hvern vinnuhóp voru tilnefndir nokkrir ein- staklingar sem starfa innan viðkomandi mála- flokks. Með þessu móti var leitað sjónarmiða fleiri aðila en sveitarstjórnarmanna til þeirra verkefna sem um ræðir. Hóparnir komu allir með sínar hug- myndir að forgangsröðun verkefna og var mjög ánægjulegt hvað þeir voru virkir. Niðurstöðum vinnuhópanna var vísað til starfsnefnda, sem störf- uðu síðari dag aðalfundarins. Hjá samtökum eins og Eyþingi hlýtur raunar alltaf að þurfa að vera fyrir hendi eins konar gagnabrunnur yfir helstu viðfangsefni landshlutans. A aðgerðaáætlunina ber hins vegar að líta sem forgangsraðaðan lista yfir sameiginleg hagsmunamál svæðisins og sá listi verður að koma reglulega til endurskoðunar og vera veganesti stjórnar milli aðalfunda. Ályktanir aðalfundarins Starf nefnda var mjög öflugt á fundinum og höfðu þær m.a. til umfjöllunar álit vinnuhópanna sem áður er getið. Frá aðalfundinum kom því mik- ill fjöldi ályktana. Allt of langt mál yrði að gera hér grein fyrir þeim öllum og því stiklað á stóru. Mennta- og menningarmál Tillögur voru samþykktar um nokkur forgangs- verkefni á sviði menntamála í landshlutanum. Nefna má tæknimenntun á háskólastigi, verk- og tæknimenntun á framhaldsskólastigi og jöfnun námskostnaðar. Þá var samþykkt að kanna sérstak- lega hvort stofnun sjálfseignarstofnunar um rekstur framhaldsskólanna sé líkleg til að efla starfsemi þeirra á svæðinu. Þá ályktaði aðalfundurinn að höfuðstöðvum menntunar í skipstjórn, vélstjórn og öðrum grein- um tengdum sjávarútvegi yrði komið fyrir á Norð- urlandi eystra. Einnig hvatti fúndurinn til að unnið yrði að uppbyggingu iðn- og verkmenntunar við Verkmenntaskólann á Akureyri jafnframt því að auka samstarf framhaldsskólanna á Norður- og Austurlandi. Á sviði menningarmála var m.a. samþykkt að vinna að því að reist verði menningarhús á Akur- eyri sem þjóni öllu svæðinu, að opinber stuðningur fáist til rekstrar og viðhalds félagsheimila í fámennari sveitarfélögum og að komið yrði á fót menningarhátíðum. Samgöngumál Fjölmörg áhersluatriði voru samþykkt í sam- göngumálum. Þannig varð alger samstaða um að það væri ótvírætt forgangsatriði að ráðast í lagn- ingu vegar á svokallaðri Hófaskarðsleið um Öxar- fjarðarheiði. Þá lagði fundurinn áherslu á að staðið yrði við fyrirliggjandi áætlun um uppbyggingu annarra vega í kjördæminu, þ.m.t. að farið yrði eft- ir áætlun um jarðgangagerð um Héðinsijörð. Þá lagði fundurinn áherslu á að gerðir verði arðsemis- útreikningar vegna jarðganga undir Vaðlaheiði og kannaðar mögulegar ijármögnunarleiðir. Varðandi flugsamgöngur var minnt á mikilvægi flugsam- gangna fyrir norðausturhorn landsins. Atvinnu- og orkumál Frá nefnd um atvinnumál var m.a. samþykkt ályktun þar sem stjórn samtakanna var falið að hafa forgöngu um gerð heildarúttektar á svæðinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.