Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Blaðsíða 87

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Blaðsíða 87
Erlend samskipti Skúli Þ. Skúlason, forseti bœjarstjórnar Reykjanesbœjar: Breyttar áherslur - árangurstengt samstarf í vinabæjasamstarfi Reykjanesbæjar Vinabæir Reykjanesbæjar er- lendis eru nokkrir. Sterkustu tengslin hafa myndast við frænd- ur okkar á Norðurlöndum en einnig eru vinabæjasamningar við bæi í Frakklandi, Bretlandi og Bandaríkjunum. Vinabæja- tengslin hafa þróast í áranna rás, áhugasamir forystumenn hafa í gegnum persónuleg tengsl komið á samskiptum og í gegnum skóla- og æskulýðsstarf hefur þróast farsælt vinabæjasamstarf. í sum- um tilvikum, eins og gengur, eru þó lítil samskipti og formlegur vinabæjasamningur eina vitnið um tengslin. Samstarf okkar sveitarstjórnarmanna við aðrar þjóðir getur verið okkur afar dýrmætt. Við erum ætíð að leita nýrra leiða til þess að þjóna betur Skúli Þ. Skúlason lauk kennaraprófi firá KHI1981 og stundaði nám i rekstr- ar- og við- skiptafrœði í Endurmenntunardeild HI 1993-1994. Hann hefiur verið bœjarfulltrúi jyrir Framsóknar- flokkinn í Reykjanesbœ frá 1998, formaður í félagsmála- ráði og húsnœðisnefnd Kefia- vikurbœjar, formaður í stjórn Sjúkrahúss Suðurnesja og er nú formaður SSS. Hann var formaður stýrihóps um einsetn- ingu grunnskólanna í Reykja- nesbœ 1998-2000. umbjóðendum okkar og því gagnlegt að hafa aðgang að því hvernig sveitarstjórnir í öðrum löndum leysa sín mál. Reykjanesbær á eins og áður greinir nokkra vinabæi á Norður- löndum. Farsælasta samstarfið er vinabæjakeðja fimm sveitar- félaga, Reykjanesbæjar, Kristian- sand í Noregi,Trollhattan í Sví- þjóð, Hjorring í Danmörku og Kerava í Finnlandi. Þetta sam- starf á sér áratuga óslitið sam- band. Vinabæjamót hafa verið haldin til skiptis annað hvert ár þar sem sveitarstjórnarmenn, embættismenn og fulltrúar nor- rænu félaganna hafa hist og skipst á skoðunum. Þar fýrir utan hafa forystumenn skólamála í sveitarfélögunum fimm hist reglulega og kynnt hverjir fyrir öðrum áherslur og nýjungar og íþróttamót unglinga eru fastur liður. Vinabæjakeðjan hefur hist ann- að hvert ár til margra ára. í Reykjanesbæ 1998 var umræð- an í hópnum sú að ástæða væri til þess að þróa samstarfið enn frek- ar og gefinn tónninn að nýjum á- herslum í samstarfi bæjanna. Akveðið var að leggja meiri áherslu á að sveitarfélögin reyndu að læra meira af hvert öðru og gera betur í stjórnsýslu hvert um sig. Ákveðið var að fara í samanburðarverkefni (benchmarking) og láta mæla sveitarfélögin samkvæmt staðli Bertelsmanns. Til liðs við okkur kom Harald Baldersheim, prófessor við Óslóarháskóla, og hefúr hann tekið að sér að mæla sveitarfélögin milli vinabæja- móta og eru niðurstöðurnar kynntar sem „áttaviti" sveitar- félaganna. Á vinabæjamóti í Trollhattan sumarið 2000 var siðan fyrsta mæling kynnt. Síðan höfum við verið að leita til hver annars um hvernig málefnin eru leyst og þeir sem skoruðu hæst í hverjum málaflokki verða leið- togar þess málefnis. Það sem við ákváðum að ein- beita okkur að í fyrstu voru sjö atriði úr stjórnsýslunni: • Starfsmannastjórnun • Aðgengi og neytendafræðsla • Samspil milli stjórnmála- og embættismanna • Forysta og valddreifing • Eftirlit og upplýsingaflæði • Nýsköpunarpólitík • Opinbert og lýðræðislegt eftirlit Hver málaflokkur er síðan brotinn niður og leitað svara við sömu spurningum hjá öllum. T.d. varðandi starfsmannastjórn- un voru snertifletirnir: Er árang- urstengt launakerfi notað? Fara fram starfsmannaviðtöl? Hversu miklu fé er varið til starfsmanna- stjórnunar? Eru gerðar rannsókn- ir á starfsumhverfi og hversu mikil áhersla er lögð á aðgerðir sem bæta starfsmannastjórnun? 1 hverjum málaflokki er síðan hægt að skora 100 stig eða sam- tals 700 stig sem síðan mynda L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.