Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Page 85

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Page 85
Frá landshlutasamtökunum 21 1 Álit fjárhagsnefndar Að tillögu fjárhagsnefndar var ársreikningur SSA fyrir 1999 samþykktur svo og endurskoðuð tjárhagsáætlun 2000 og fjárhagsáætlun fyrir árið 2001. Nefndin gerði ekki athugasemdir við skýrslu stjórnar Gjaldheimtu Austurlands. Stjórn SSA Eyþór Elíasson, bæjarfulltrúi í Austur-Héraði og formaður kjörnefndar, gerði grein fyrir tillögum hennar, sem samþykktar voru samhljóða. í stjórn SSA voru kosnir bæjarfulltrúarnir Halldóra B. Jónsdóttir og Hermann Hansson í Hornafirði, Ragnhildur Steingrímsdóttir, hrepps- nefndarfulltrúi í Djúpavogshreppi, Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð, Magni Kristjánsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, Líneik A. Sævarsdóttir, hreppsnefndarfulltrúi á Fáskrúðs- firði, Hafþór Róbertsson, hreppsnefndarfúlltrúi í Vopnafirði, og bæjarfulltrúarnir Vigdís Svein- björnsdóttir á Austur-Héraði og Gunnþór fngvason á Seyðisfirði. Sem skoðunarmenn ársreikninga voru kosnir Sigurjón Bjarnason og Sigurjón Jónas- son, Austur-Héraði. Skoðunarferð Að fúndi loknum á fyrri deginum bauð Horna- fjarðarbær fúndargestum til Gestastofú í þjóðgarðinum í Skaftafelli og var þaðan gengið í lundinn „Lambhaga“ í þjóðgarðinum. Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður var leið- sögumaður i ferðinni. Heiðursgestur og menningarverðlaun Að lokinni skoðunarferðinni hófst hátíðarkvöld- verður í Hótel Skaftafelli í Freysnesi. Þar var sérstaklega heiðraður heiðursgestur aðalfúndar SSA, Egill Jónsson, fyrrverandi alþingismaður á Seljavöllum. Menningarverðlaun SSA 2000 hlaut „Bláa kirkjan tónleikaröð“ og tók Muff Worden, tónlist- arkennari á Seyðisfirði, við viðurkenningu úr hendi formanns SSA. Dagskrá var í höndum heimamanna svo og hátíðargesta. Fundarslit Þorvaldur Jóhannsson þakkaði fundarmönnum góða þátttöku, góðan aðalfund og frábæra kvöldvöku. Auk þess færði hann starfsmönnum þingsins og heimamönnum sem komu að starfi þingsins þakkir og vonaðist til að sjá sem flesta fundarmenn að ári. Að því búnu sleit Þorvaldur aðalfúndinum. Næsti aðalfundur á Vopnafirði Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri á Vopnafirði, bauð til næsta aðalfundar SSA 2001 á Vopnafirði fimmtudaginn 23. og föstudaginn 24. ágúst. Námskeið Námskeið um framkvæmd sveitarstjórnarmála í Danmörku I kjölfar norrænu sveitarstjórnarráðstefnunnar sem haldin var í Horsens á Jótlandi i byrjun maí á síðasta ári heimsóttu nokkrir íslensku þátttakend- anna danska sveitarfélagaskólann (Den Kommunale Hojskole) í Grená á Jótlandi. Mark- mið heimsóknarinnar var að kynna sér starfsemi skólans og kanna hvort hægt væri að auka tengsl íslenskra sveitarstjórnarmanna við hann. í framhaldi heimsóknarinnar var rætt við for- svarsmenn skólans um möguleika á því að setja upp námskeið fyrir íslenska sveitarstjórnarmenn, kjörna fulltrúa og ráðna stjórnendur, sem gæti gef- ið þeirn góða innsýn í dönsk sveitarstjórnarmál. Tilgangur þess er að gefa þeim sem áhuga hafa kost á að kynna sér hvernig staðið er að fram- kvæmd sveitarstjórnarmála í Danmörku í því skyni að efla umræðu um stöðu og þróun sveitarstjórnar- stigsins hér á landi. Námskeiðið verður haldið dagana 19.-21. nóv- ember nk. Lágmarksþátttaka er 20 manns. Kostn- aður við námskeiðið er á bilinu 4.080^1.830 danskar krónur og fer verðið eftir fjölda þátttak- enda. Innifalið i verðinu er fæði, húsnæði og kennslukostnaður á námskeiðinu. Þar til viðbótar er ferðakostnaður til Grená. Reiknað er með að koma til Grená sunnudagskvöldið 18. nóvember. Geta má þess að þriðjudaginn 20. nóvember verður kosið til sveitarstjórna í Danmörku. Nánari upplýsingar gefúr Gunnlaugur Júlíusson, deildarstjóri hagdeildar sambandsins, í síma 581 3711, eða í tölvupósti, gunnlaugur@samband.is.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.