Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Blaðsíða 95
Vísur
221
Kratarnir höfð'ann í kosningum fyrstann
en kraftur með árunum sífellt vex.
Kyntröllið skipar nú Kópavogslistann
og Kappinn er auðvitað númer sex.
Á þessum sama bæjarstjómarfundi flutti Helga
Sigurjónsdóttir ræðu um skólamál. Bæjarfulltrúar
sátu andaktugir undir þessari ræðu, og kannski var
hver okkar að hugsa eitthvað sérstakt, en trúlega
hefur Sigga fundist ég vera eitthvað skáldlegur á
svipinn, því hann sendi mér þessa vísu:
Það er vinsælt þetta sport
þótt við njótum einir.
Ég veit þú getur alveg ort
ef þú bara reynir.
Á bæjarstjórnarfundi í september 1999 sá ég í
fundargerð jafnréttisnefndar að umræður hefðu
orðið í nefndinni um að í Þinghólsskóla (þar sem
Guðmundur er skólastjóri - innskot ritstj.) væri
mismunun gerð á kynjunum í handavinnu, þ.e. að
t.d. fengju stelpur ekki að smíða o.s.frv. Ég fór að
sjálfsögðu í pontu og spurði hvort nokkur væri hér
inni sem ekki væri sannfærður um jafnréttisást
mína og hvort mönnum fyndist líklegt að ég væri
að brjóta jafnréttislögin. í framhaldi af þessari
ræðu minni kom þessi vísa frá Sigurði Geirdal:
Sannfærður er ég og svara
um sanngimi þessa manns
jafnréttisforkólfar fara
fráleitt í sporin hans.
Ég var formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks
árin 1995-1998 og þá var fjárfest í pylsuvagni sem
kostaði 400 þús. kr., en hafði ekki gefið deildinni
miklar tekjur. Við reyndum því að selja bænum
vagninn og að hann yrði staðsettur innan vallar-
svæðisins. Þetta var ekki síst gert vegna þess að
vagninn var stöðugt að sökkva dýpra og dýpra nið-
ur í jörðina þar sem hann stóð utan girðingar.
I tilefni þessa sendi bæjarstjóri mér þessa vísu:
Sá ægifagri eðalvagn
sem áður prýddi vora fold,
engum framar gerir gagn
grafinn niður í drullu og mold.
Deilt var um byggingu Listasafns og vildi bæjar-
stjóri að menn bæru hátt merki lista og menningar í
Kópavogi og sagði að þegar byggingunni yrði lok-
ið og safnið tekið til starfa yrðu allir ánægðir. Ann-
ar bæjarfulltrúi var sammála bæjarstjóra og sagði
að hann væri sannfærður um að þetta væri rétt hjá
bæjarstjóra og færi hér eins og svo oft áður að
þegar verkinu væri lokið „þá vildu allir Lilju kveð-
ið haft.“ Bæjarstjóri var fljótur að notfæra sér þessi
mismæli og sagði næst þegar hann kom í ræðustól:
Óþarft er með öllu að fella merkið,
að endingu við munum lofa verkið.
því löngum vildu Lilju kveðið haft,
langflestir sem áður rifú kjaft.
Einhver kvenbæjarfúlltrúinn sat beint á móti Sig-
urði og var í óvenju stuttu pilsi og er hann leit upp
datt út úr honum þessi limra:
Það situr á móti mér meyja,
margt væri gaman að segja.
En hvað hjartað um dreymir
og hugurinn geymir
er þannig að best er að þegja.
Byggðarmerki
Byggðarmerki
Borgarfjarðarsveitar
Hreppsnefnd Borgarfjarðarsveitar hefur
samþykkt merki fyrir hreppinn og Einkaleyfastofa
staðfest það hinn 15. mars sl.
Byggðarmerkið er í
þremur litum. Grunn-
flöturinn er grænn og
skírskotar til gróðurs
og sveitarinnar, blái
flöturinn minnir á ár og
vötn og þrjú hvít strik
eru tákn jarðhitans.
Sigríður Kristins-
dóttir í vinnustofunni
Byggðarmerki Handbragði í Reykholti
Borgarfjarðarsveitar hannaði merkið.