Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Blaðsíða 26
Menningarmál
börnum á Vestijörðum í flutningi
Egils Ólafssonar og tríós Björns
Thoroddsens og Jass-kvartett
Reykjavíkur mun flytja dag-
skrána „Ég hef taktinn" skóla-
börnum á Austurlandi.
Dagskrár Tónlistar
fyrir alla
Dagskrár Tónlistar fyrir alla
eru jafn ólíkar og þær eru marg-
ar, en eiga þó allar sameiginlegt
að vera metnaðarfullar og sniðn-
ar að þörfum skólabarna. Allar
tegundir tónlistar eiga þar heima
og hefur klassísk tónlist, nútíma-
tónlist, óperutónlist, djass, tangó,
vísnatónlist, heimstónlist og
barnalög verið flutt fyrir skóla-
börn við góðar undirtektir.
Oft koma hugmyndir að dag-
skrám frá tónlistarmönnunum
sjálfum. Þær eru síðan þróaðar í
samstarfi við umsjónarmann sem
er sérmenntaður í tónlistarstarfi
með börnum. Tónleikarnir eru
haldnir í skólum, vara í eina
kennslustund og falla eðlilega að
skólastarfi. Leikið er fyrir litla
hópa í einu til að nemendur séu í
nánum tengslum við listamenn-
ina. Allt kapp er lagt á að ná til
barnanna og að halda athygli
þeirra, bæði með tónum og töl-
uðu máli, stundum einnig með
leikrænum tilburðum.
Undirbúningsefni er sent skól-
um fyrirfram, t.d. nótur eða
hljóðupptökur sem tónmennta-
kennari fer yfir með nemendun-
um, eða ljóð og fræðsluefni sem
móðurmálskennari les með þeim.
Undirbúningur í skólanum er
afar mikilvægur; börnin njóta
tónlistarinnar betur, fræðslan
verður markvissari og áhrifin
vara lengur þar sem unnið er með
tónlistarefnið fyrir tónleikana og
stundum einnig í kjölfar þeirra.
Tónlist fyrir alla
í alþjóðlegu samhengi
Tónlist fyrir alla á aðild að
Norrænu neti fyrir skólatónleika
(NNS). Auk Tónlistar fyrir alla
eru fúlltrúar frá sérhverju hinna
Norðurlandanna í samtökunum;
Rikskonserter í Sviþjóð, Levende
musik i skolen í Danmörku,
Konserttikeskus í Finnlandi og
Rikskonsertene í Noregi. Þessi
fern samtök hófu að skipuleggja
tónleikastarf í skólum á sjöunda
áratugnum. NNS hefúr að mark-
miði að efla skólatónleika á
Norðurlöndum og í nálægum
löndum. MeðlimirNNS deila
með sér reynslu, svo sem um
skipulag tónleika, efni dagskráa
og kynningarstarf. Þeir hafa sam-
vinnu um ákveðin verkefni, halda
ráðstefnur og fagnámskeið,
skiptast á hugmyndum, efni og
flytjendum.
Samtök sambærileg við Tónlist
fyrir alla starfa víða um heim.
Nægir að nefna fjölþjóðlegu
samtökin Jeunesse Musicales
sem stofnuð voru árið 1945.
í þeim eru fúlltrúar frá 47 lönd-
um og eru þau stærstu menning-
arsamtök innan UNESCO.
Þessi mikla þátttaka fjölda
þjóða sýnir mikilvægi tónlistar-
uppeldis í skólum.
Tónlist fyrir alla
Verkefnisstjóri:
Áshildur Flaraldsdóttir
Túngötu44 101 Reykjavík
Sími 551 8232
Farsími 899 0857
Netfang tfa@listir.is
Veffang www.listir.is/tfa