Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Blaðsíða 79
Frá landshlutasamtökunum
hvað varðar virkjun orkuauðlinda og nýtingu
orkunnar til atvinnuuppbyggingar í landshlutanum.
Einnig lýsti fundurinn yfir fullum stuðningi við
áform um nýtingu orkuauðlinda á Austurlandi.
í því sambandi tók aðalfundurinn sérstaklega undir
ályktun aðalfundar SSA sem haldinn var skömmu
áður.
Fjarvinnsla og fjarskipti
í ályktunum um ljarvinnslu og fjarskipti kemur
fram að fundurinn telur það algert skilyrði fyrir
þróun ijarvinnslu í landshlutanum að svæðið búi
við sömu gæði og afköst eins og best gerist í land-
inu og að allir landsmenn fái sömu þjónustu fyrir
sama verð.
Heilbrigðismál
í ályktun um heilbrigðismál var heilbrigðismála-
hópur Eyþings hvattur til áframhaldandi starfa, en
hópurinn er samráðs- og samstarfsvettvangur heil-
brigðisstofnana á svæðinu og hefúr unnið að fram-
gangi ýmissa verkefna á sviði heilbrigðismála.
Samþykkt var ályktun þar sem lögð var þung
áhersla á að staðið yrði við yfirlýsingar stjórnvalda
um að miðstöð sjúkraflugs í landinu, með sérútbú-
inni vél, verði á Akureyri.
Þá samþykkti fúndurinn ýmis forgangsverkefni
á sviði heilbrigðismála, s.s. varðandi nýbyggingu
og sjúkrahótel við FSA, menntunarmál og um
verkefni á sviði heilbrigðistækni.
Félagslega íbúðakerfið og fleira
Þá voru á fundinum samþykktar ályktanir varð-
andi félagslega íbúðakerfið, endurskoðun laga um
félagsþjónustu sveitarfélaga og málefni fatlaðra,
um framhald samstarfs Eyþings og SSA, endur-
skoðun á tekjustofnum sveitarfélaga og varðandi
Iífeyrisskuldbindingar fyrrum starfsmanna skóla-
þjónustu Eyþings.
Samningur um bókasafnsþjónustu
Fundurinn samþykkti samning sem Eyþing gerði
fyrir hönd aðildarsveitarfélaga sinna við Háskól-
ann á Akureyri (HA) en samningurinn tryggir að
starfandi grunn- og leikskólakennarar á starfssvæði
Eyþings hafi aðgang að kennslugagna- og sér-
fræðibókasafni ásamt annarri þjónustu bókasafns
HA. Samningurinn var gerður í framhaldi af lokun
skólaþjónustu Eyþings.
Hluti þingfulltrúa á aðalfundinum. Myndirnar frá fundinum tók
Ólafur H. Oddsson héraðslæknir nema myndina á bls. 204.
Þróunarverkefni í heilbrigðismálum
A fúndinum var undirrituð samstarfsyfirlýsing
um vinnu að þróunarverkefnum í heilbrigðismálum
á Norðurlandi eystra milli hugbúnaðarfyrirtækisins
doc.is, Eyþings, Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri, Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga og Héraðs-
læknisins á Norðurlandi eystra. Fyrsta samstarfs-
verkefnið er þróun á rafrænum lyfseðli og mun
doc.is koma upp starfsstöð á Norðurlandi eystra til
að þróa kerfið og önnur kerfi sem samningar verða
gerðir um.
Stjórn Eyþings
Á fúndinum var stjórn samtakanna kosin til
tveggja ára. Formaður var kosinn Kristján Þór Júli-
usson, bæjarstjóri Akureyrar. Aðrir í stjórn voru
kosnir Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri í Grýtu-
bakkahreppi, Guðný H. Björnsdóttir, oddviti
Kelduneshrepps, Reinhard Reynisson, bæjarstjóri
á Húsavík, og Ásgeir Logi Ásgeirsson, bæjarstjóri
í Ólafsfirði.
Næsti aðalfundur í Hrísey 31. ágúst
og 1. september
Pétur Bolli Jóhannesson, sveitarstjóri í Hrísey,
bauð til næsta aðalfundar í Hrísey og var boðinu
fagnað með lófataki. Verður fundurinn haldinn
föstudaginn 31. ágúst og laugardaginn 1. septem-
ber.
Að svo búnu þakkaði Kristján Þór Júlíusson
heimamönnum móttökurnar og gestrisnina, fundar-
mönnum og starfsmönnum góð störf og sleit fundi.