Morgunblaðið - 10.12.2011, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 10.12.2011, Qupperneq 27
Virðing Réttlæti VR krefst aðgerða gegn atvinnuleysi FRÉTTIR 27Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011 gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Kimmidoll á Íslandi Ármúla 38 | Sími 588 5011 KONOKA „Sensuality“ My spirit embraces and savors Baldur Arnarson baldura@mbl.is „EES-samningurinn tekur ekki til efnahags- eða peningastefnu. Þannig að ég tel að áhrifin á það samstarf séu minniháttar. Ég á því ekki von á því að breytingarnar hafi nein laga- leg áhrif á EES-samstarfið,“ segir Stefán Már Stef- ánsson, prófessor í lögfræði við Há- skóla Íslands, spurður um áhrif- in af aukinni sam- þættingu efna- hagsstefnunnar í Evrópusamband- inu á EES-aðild- arríkið Ísland. „Breytingar þær sem nú er leitað samkomulags um innan ESB munu ekki ná til Íslands. Það eru ákvæði um efnahagssamvinnu í EES-samningnum en þau eru ekki lagalega bindandi. Þar er gert ráð fyrir því að menn ræði málin.“ Breyta þyrfti samningnum Stefán Már heldur áfram: „Auðvitað verður það tilefni til þess að menn koma saman og ræða málin og kynna ný sjónarmið en hugsanlegar nýjar reglur innan ESB eru ekki bindandi fyrir Evrópska efnahagssvæðið. Þar eru engin bind- andi ákvæði um þetta efni sem fyrr sagði. Núgildandi ákvæðum EES- samningsins um efnahagssamvinn- una verður ekki breytt nema með breytingum á EES-samningnum sjálfum. Þannig má segja að hin nýju ákvæði sem nú eru í hámæli hafi í grundvallaratriðum engin lagaleg áhrif fyrir Ísland.“ Álfa í sitthvorum gírnum Stefán Már víkur að umskiptunum sem séu að verða á samvinnu evr- ópskra ríkja, eftir því hvort þau eiga aðild að ESB og evrunni eða ekki. „Þetta er orðið tveggja hraða Evr- ópa. Að vísu hafa ekki öll aðildarríki ESB tekið upp evru. Aukin samþætt- ing efnahagsstefnunnar myndi þó dýpka verulega á þeim mun sem er á milli ríkja innan Evrópusambands- ins. Auknar skyldur sem sum ríkin gengust undir í tengslum við efna- hags- og peningastefnuna gæti þýtt að ESB sem slíkt gæti bundið hend- ur ríkisstjórna aðildarríkjanna í meira mæli en nú er. Þá kemur það meira í ljós að Evrópa er með tveim- ur hraðastillum, ef svo má að orði komast,“ segir Stefán Már lagapró- fessor. Efnahagsstefnan óháð EES-samningnum  Lagaprófessor telur óróann í Brussel ekki snerta Ísland Stefán Már Stefánsson Reuters Höfuðstöðvarnar Evrumerkið við Evrópska seðlabankann í Frankfurt. Samkvæmt hinu nýja sam- komulagi Evrópusambands- ríkjanna, sem Bretar kjósa að standa utan við, mun það „sjálfkrafa hafa afleiðingar“ fyrir aðildarríki evruríkjanna ef fjárlagahallinn fer yfir 3% af þjóðarframleiðslunni „nema tilskilinn meirihluti aðildarríkja evrusvæðisins sé því andvíg- ur“. Til að setja þennan halla í ís- lenskt samhengi var hallinn á rekstri ríkissjóðs 14-15% árið 2008, 10% árið 2009 og verð- ur 1,16% á fjárlögum næsta árs, að því er fram kom í sam- tali Morgunblaðsins við Stein- grím J. Sigfússon í vikunni. Ef til vill er ekki rétt að miða við hrunárin og er því fróðlegt að skyggnast lengra aftur. Samkvæmt vef Hagstofu Ís- lands var til dæmis 4,4% halli af ríkissjóði 1989, 3,3% árið 1990, 4,5% árið 1993, 4,7% ár- ið 1994 og 3% árið 1995. Þessi ár uppfylla nýju refsiákvæðin. Hallinn ekki einkamál REFSAÐ FYRIR ÓHLÝÐNI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.