Morgunblaðið - 10.12.2011, Síða 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011
Þegar talað er um
hrunið mikla á Íslandi, er
fyrst og fremst minnst á
bankana frægu, sem
þöndu sig út um allan
heim, soguðu í sig fjár-
magn mikið, spýttu því
aftur út, oft í vasa gæð-
inga, og sprungu svo á
limminu og settu efna-
hag og þjóðlíf allt á hvolf.
En það voru ekki ein-
göngu bankarnir, sem urðu fyrir
barðinu á þeim her ungra, sjálfskip-
aðra fjármálagreifa, sem sköpuðu all-
an þennan glundroða. Gömul og gró-
in atvinnufyrirtæki og stofnanir urðu
líka leikföng þessara snillinga.
Mörg þeirra lifðu ekki af þennan
darraðardans. Sum voru keypt með
lánsfé, veðsett, mergsogin, klofin
sundur, látin renna saman við önnur
fyrirtæki og stundum tízkuorðinu
„group“ skeytt aftan við. Það þótti
mjög fínt, en reyndist oft dauðadóm-
ur. Blessunarlega skrimtu þau sum,
eins og það, sem einu sinni var óska-
barn þjóðarinnar, en varð svo oln-
bogabarn, Eimskip. Það er krafta-
verk, að það skyldi lifa þetta af eftir
allar misþyrmingarnar.
Mikið af þessu rifjast upp við að
heyra þau tíðindi, að Icelandic USA
hafi verið selt til stærsta keppinautar
Íslendinga á fiskmörkuðum Am-
eríku, High Liner Foods. Það er að
mörgu leyti merkilegt, hve lítið hefir
verið fjallað um þessa sölu. Segja má
náttúrulega, að fólkið hafi um önnur
mikilvægari mál að hugsa, eins og
fimmstjörnu Kínamanninn, sem
kaupa vildi jarðarspildu og svo auð-
vitað þjóðariðjuna, að býsnast yfir
stjórninni.
Það eru liðin rúm
65 ár síðan hafið var
að selja frystan fisk til
Bandaríkjanna. Sölu-
miðstöð Hraðfrysti-
húsanna stofnaði
Coldwater Seafood og
nokkru seinna setti
SÍS heitinn í gang sitt
eigið útibú þar í landi.
Bæði fyrirtækin ráku
fiskréttaverksmiðjur
og hægt og sígandi
náðu þau góðri mark-
aðaðstöðu. Árið 2005
voru þessir keppinautar í Amerík-
unni sameinaðir undir núverandi
nafni, Icelandic USA. Móðurfyr-
irtækin á Íslandi, Sölumiðstöðin og
Íslenzkar sjávarafurðir voru einnig
sameinuð undir heitinu Icelandic
Group.
Einhvern veginn tókst stjórn-
endum íslenzku „Grúppunnar“ að
vefja sig skuldum, sem reyndar var
tímanna tákn. Og hvað er þá til
bragðs að taka til að bjarga skinn-
inu? Selja börnin sín, dótturfyr-
irtækin. Selja framleiðslu- og mark-
aðsfyrirtækin, sem malað hafa gullið
í áratugi. Selja stofnanirnar, sem
unnið hafa markað fyrir íslenzkar
sjávarafurðir og fært þjóðarbúinu
dýrmætan gjaldeyri í gegnum tíðina.
Búið er að farga hluta félaganna í
Evrópu og nú hefir verið fórnað
stærsta djásninu, Icelandic USA.
Kanadamenn hafa verið stærstu
keppinautar Íslendinga vestan hafs.
Hæst bar High Liner og Fishery
Products. Svo gleypti það fyrr-
greinda Fishery og nú er það búið að
gera út af við aðalkeppinautinn ís-
lenzka líka. Söluverðið fyrir starf-
semi Icelandic USA í Bandaríkj-
unum og innkaupastarfsemi í Asíu
var 230 milljónir dollara. Obama-
menn hafa um stærri hluti að hugsa,
en samt hlýtur einhver í samkeppn-
iseftirlitinu þar að taka eftir því, að
fákeppni muni nú ríkja á þessum
mörkuðum.
Í tilkynningunni um söluna segir,
að High Liner hafi rétt á að nota
vörumerkið Icelandic í 7 ár. Líka
ætla þeir góðu menn náðarsamlegast
að sjá um kaup og dreifingu á ís-
lenzkum sjávarafurðum til að
tryggja, „að markaðsaðgangur ís-
lenzkra framleiðenda verði sá sami
og verið hefir“. Í leit að góðri samlík-
ingu kemur upp í hugann, að það sé
svipað og að Palestína bæði Ísrael að
gæta hagsmuna sinna úti í heimi.
Sölusamtök frystihúsanna, SH og
Sjávarafurðadeild SÍS unnu mikið
starf við að samrýma gæði, skipu-
leggja framleiðslu og útbreiða aðal
vörumerkin, Icelandic og Samband.
Fjöldi manna vann að því að tryggja
markaðshluta í útlandinu og sann-
færa kaupendur um yfirburði ís-
lenzka fisksins. En þetta er nú að
mestu gleymt og frystiiðnaðurinn
ekki í hávegum hafður, enda erfitt að
fá íslenzkt fólk til að vinna í frysti-
húsunum.
Vel má vera, að bréfritari sé ekki
samstiga þeirri kynslóð yngra fólks,
sem ræður fyrir þjóðinni. Áherzl-
urnar nú á dögum eru aðrar en áður
og einblínt er á aðra atvinnuvegi,
sem þetta fólk telur mikilvægari fyr-
ir landið. Í stað þess að flytja út fisk
er talið happasælla að flytja inn
ferðamenn. Ekki skal gert lítið úr
mikilvægi þess að styrkja ferða-
starfsemina, en svo virðist sem engar
hömlur séu þar á. Mörg útlenzk flug-
félög ætla að hjálpa til að flytja múg-
inn og margmennið til Íslands og nýtt
íslenzkt félag hefir slegist í hópinn,
Vá Er (fyrir dyrum). Talað er um, að
stækka verði flugstöðina í Keflavík.
Icelandic USA er almennt talið vel
rekið fyrirtæki og var andvirði söl-
unnar um 270 milljónir dollara síð-
ustu 12 mánuði. Hagnaðurinn fyrir
afskriftir og fjármagnsliði var um $
25 milljónir. Nokkrir Íslendingar eru
þar við stjórnvölinn og svo vinna um
500 manns hjá fyrirtækinu. Þar fyrir
utan er fjöldi umboðsmanna vítt og
breitt um landið. Innan skamms
verður allt þetta horfið, eða að
minnsta kosti kemur það Íslandi ekki
við. Þessum afdankaða fisksala finnst
þetta sorgardagur í sögu þjóð-
arinnar. Vonandi eru einhverjir aðrir
sama sinnis á Fróni, en eflaust eru
fleiri, sem yppa öxlum og segja
„Þetta er nú bara sona“.
Kanada 1, Ísland 0
Eftir Þóri S.
Gröndal »High Liner ætlar að
sjá um að markaðs-
aðgangur Íslands verði
sami og áður. Líkja má
því við það, að Ísrael
ætli að gæta hagsmuna
Palestínu úti í heimi.
Þórir S. Gröndal
Höfundur er fyrrverandi fisksali í
Flórída.
6
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Heimilistæki, ljós og
símar í miklu úrvali.
Komdu í heimsókn
til okkar á aðventunni
og gerðu góð kaup.
Fjöldi tækja á
sérstöku jólaverði.
Sjón er sögu ríkari.
Símtæki Gigaset
AS180
Langur taltími, mikil hljómgæði.
Jólaverð: 5.930 kr. stgr.
Vendela borðlampar
Jólaverð: 8.500 kr. stgr.
Þvottavél
WM 10A163DN
Tekur mest 5,5 kg, vindur upp í
1000 sn./mín.
Jólaverð: 84.900 kr. stgr.
Þurrkari
WT 44E103DN
Tekur mest 7 kg. Gufuþétting,
enginn barki.
Jólaverð: 119.900 kr. stgr.
Skaftryksuga
MOVE 4
Ein sú allra öflugasta, 18 V.
Jólaverð: 23.900 kr. stgr.
Eldhúsvogir
AD3138W / AD3138B
Vigta allt að 5 kg með
1 g nákvæmni.
Jólaverð: 2.200 kr. stgr.
Expressó-kaffivél
TK 52001
Sjálfvirk kaffivél, 15 bara þrýstingur.
Jólaverð: 79.900 kr. stgr.
1
2
3
4
5
6
7
7
5
1
4
3
2011
2
Turninum 12. hæð - 201 Kópavogur - www.donusnova.is
Fjárfestingatækifæri - verslunarhúsnæði
Axel Axelsson
Löggiltur fasteignasali
Heimir Bergmann
Sími 822 3600
heimir@domusnova.is
heimir.domusnova.is
Til sölu verslunar-
húsnæði að
Fjarðargötu 11
Hafnarfirði.
Húsnæðinu fylgir
góður langtíma
leigusamningur
með öruggum
leigutekjum.
Gott áhvílandi lán.
Tilboð óskast.
Nánari uppl. veitir Heimir Bergmann eða Axel Axelsson.