Morgunblaðið - 10.12.2011, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 10.12.2011, Qupperneq 45
nauðsynlegur hluti af hverri heim- sókn. Þar voru til dæmis kjörað- stæður fyrir heimsins skemmti- legasta feluleik, það var ekki leiðinlegt að skjóta sér á milli fata- slánna eða inn í mátunarklefann. Svo fannst okkur eldri systkinun- um líka mjög sniðugt að fela Ingv- ar litla bróður í hillunni undir af- greiðsluborðinu. Í þessum ferðum í búðina fengum við líka að fara „á bakvið“ þar sem við lékum okkur með gamla afgreiðslukassann, teiknuðum á pappa undan efnis- ströngum og eyddum tíma með afa. Stundum var kveikt á pínu- litla sjónvarpinu ef það var fót- boltaleikur í gangi. Við fengum líka að prófa töluvélina hennar ömmu og skoða allt fína dótið sem afi og amma áttu. Machintoshdós- in var heldur aldrei langt undan. Þegar viðskiptavinir komu í búðina fengum við líka að aðstoða afa við kassann. Það var svo mikið sport að fá að vera á bakvið af- greiðsluborðið og jafnvel sitja uppi á borði á meðan afi afgreiddi af sinni einstöku snilld. Hann var alltaf svo glaður og hjálpsamur og það sást langar leiðir af hverju svo margir lögðu leið sína í Múla. Eftir heimsóknir á Selfoss fór- um við nánast undantekningar- laust heim með föt úr búðinni eða þá gjafir úr utanlandsferðum. Afi var með eindæmum gjafmildur og sýndi það alveg fram á síðasta dag. Ótrúlegur hann afi Geiri! Honum fannst ekki leiðinlegt að gera vel við sína nánustu. Árlegu grillveislurnar og jóla- boðin á Eyrarveginum eru okkur mjög minnisstæð. Þar kom öll fjöl- skyldan saman og mikið ofsalega var það gaman. Afi var alltaf í góðu stuði, partýljónið sjálft. Í síð- ustu grillveislunni, kvöldið sem Múla var lokað, var mikið fjör og mikið gaman. Afi sat í sólstólnum sínum í sólskýlinu sínu (örugglega að reyna að ná smá brúnku) á meðan við krakkarnir skipulögð- um tískusýningu með fötum úr Múlamagasíni. Afar eftirminni- legt kvöld. Svo vorum við svo heppin að eftir grillveislurnar fengum við oft að gista hjá ömmu og afa. Yfirleitt var núggatísinn dreginn fram fyr- ir svefninn og risastóra ristaða brauðið tilbúið í morgunmat. Þeg- ar við læddumst á fætur eld- snemma var afi alltaf kominn á fætur og byrjaður að borða morg- unmatinn og drekka teið sitt. Þar fengum við nokkrar af þeim ótal- mörgu gæðastundum sem við átt- um með afa Geira. Elsku besti afi okkar, við minn- umst þín ávallt. Við biðjum að heilsa ömmu Gauju. Sigurður, Sigríður og Ingvar. Nú ertu farinn, Geiri minn. Ég hef lengi búið mig undir að þú færir, en samt er maður aldrei al- veg viðbúinn. Í tæplega 76 ár hafa leiðir okkar legið saman í gleði og sorg, allar þær minningar sem við eigum saman væri efni í heila bók. Tæplega níu ára gömul, þegar þið Gauja systir hófuð búskap, kom ég á heimili ykkar ásamt mömmu og dvaldi til fimmtán ára aldurs að ég flutti til Reykjavíkur. En alltaf stóð ykkar heimili mér opið og mínu fólki. Börnin ykkar voru alla tíð velkomin á mitt heimili, mér fannst ég eiga svo mikið í þeim, enda tvö þau elstu fædd meðan ég var heima og tengdist ég þeim mikið. Geiri var mikill heimilisfaðir og hugsaði vel um sitt fólk. Ég fann líka að til mín var hugsað. Gauja mín hringdi oft og ef á bjátaði fann ég hennar stuðning. Þegar hún var farin tók Geiri við og hringdi og vildi fylgjast með, óskaði mér velfarnaðar og bað að heilsa mínu fólki, þetta var mér mikils virði. Sá siður var á milli okkar systra að hringja á jóladag og nýársdag. Sú sem var fyrri til á jóladag beið eftir að heyra í hinni á nýjársdag. Þennan sið tók Geiri upp eftir lát Gauju sem ég saknaði sárt. Geiri var vandaður maður á all- an hátt. Vildi engum skulda, allt var í röð og reglu og illt umtal var ekki í boði, en svipurinn sagði oft meira en mörg orð. Glettnin var sjaldan langt undan og minnist ég þess þegar ég vann með honum tvö sumur fyrir fjörutíu árum að margt varð að hlátursefni. Hann lifði lengi og var ham- ingjusamur, heilsan lengst af góð og stundaði sína vinnu fram á ní- ræðisaldur. Sorgin gleymdi hon- um ekki en æðruleysi hans hjálp- aði okkur öllum. Nú er enginn eftir sem ég get rifjað upp bernskuárin með. Geira mínum óska ég til hamingju með að hafa nú hitt þau sem farin eru og hann saknaði. Það er örugglega gleði og hamingja í fyrirheitna landinu, ég þakka fyrir mig og bið að heilsa. Halldóra Guðmundsdóttir (Dóra.) Nú hefur langafi Geiri fengið hvíldina sem var langþráð, enda 97 ár hár aldur. Hann var ekkert skyldur mér, heldur afi hans Trausta míns og langafi strákanna okkar, þeirra Ragnars og Elmars. Mér fannst samt alltaf eins og hann væri pínulítið afi minn líka, og eini „afinn“ sem ég fékk að kynnast þar sem ég var ekki svo lánsöm að kynnast líffræðilegum öfum mínum. Geira kynntist ég árið 1996 og tók hann mér strax opnum örm- um. Síðan höfum við hist reglu- lega, kannske ekki nógu oft, en alltaf átt notalegar stundir saman og oftar en ekki með stórfjöl- skyldunni. Ég ferðaðist meira að- segja með honum þegar hann fór í eina sína síðustu utanlandsferð fyrir 8 árum, og er það dýrmæt minning. Geiri var duglegur að ferðast, sérstaklega með henni Gauju sinni, en hún lést árið 1996 og kynntist ég henni því miður aldrei. Geiri sagði mér oft hversu einstök manneskja hún hefði verið og augu hans skinu ávallt skært þegar hún barst í tal og ljóst að hann hafði elskað eiginkonu sína mikið. Mér fannst gaman að tala við Geira, enda margt sem hann upp- lifað á langri ævi, bæði í gleði og sorg. Við ræddum sorgina stundum en samt oftar um gleðina. Geira fannst mikið lán í hverju barni og gladdist mikið þegar fjölgunarvon var í fjölskyldunni. Hann prýddi heimili sitt með myndum af öllum þessum börnum og var stoltur af. Sorginni mætti Geiri með sama æðruleysinu og einkenndi hann í daglegu lífi. Það efast samt enginn um að það var mjög þungbært fyrir hann þegar dóttursonur hans, Þorvaldur og sonardóttir hans, hún Guðríður, létust bæði fyrir aldur fram. Einkadóttur sína, hana Sigrúnu, missti Geiri árið 2007. En hann fann alltaf kraft til að halda áfram, enda ekk- ert annað í boði, og það skildi Geiri e.t.v. betur en nokkur annar. Æðruleysið var líka til staðar þó Geiri vissi að hverju stefndi þessa síðustu daga í nóvember. Mér þótti mjög vænt um Geira, og óska honum góðrar ferðar til nýrra heimkynna. Ég þakka hon- um hlýjuna sem hann sýndi mér alltaf. Elmar sendir líka ástar- kveðjur til langafa. Bidda og Pálmari, svo og þeim bræðrum Sigurgeiri og Valgeiri, og fjölskyldum þeirra allra, sendi ég samúðarkveðjur mínar og fjöl- skyldu minnar. Megi langafi hvíla í friði. Ingibjörg Aradóttir. koma og kynslóðir fara. Anna var borinn og barnfædd- ur Ólafsfirðingur – hún Anna í Díönu, en svo hét æskuheimili hennar. Ung að árum giftist hún ungum og myndarlegum manni, Þorsteini Mikael Einarssyni, sjó- manni og eru börn þeirra sex, tveir synir og fjórar dætur, sem öll hafa stofnað sín heimili og eiga uppkomin börn og barnabörn. Það var með Önnu eins og aðr- ar sjómannskonur hér fyrr á ár- um að barnauppeldið og heimilis- reksturinn hvíldi nær alfarið á herðum þeirra þar sem eigin- mennirnir voru á vertíð svo mán- uðum skipti og samgöngur ekki eins greiðar þá og nú. Anna var hagsýn húsmóðir og myndarleg til allra verka. Allt lék í höndum hennar hvort heldur var matargerð eða saumaskapur enda var ekki hægt að kaupa tilbúinn fatnað þá eins og nú er. Eftir að Þorsteinn fór að stunda sjóinn á sínum eigin bát var hann meira heima við og gladdi það bæði Önnu og börnin. Margar ferðir áttum við hjónin til Ólafs- fjarðar og alltaf var jafn gott að sækja þessi góðu hjón heim og þiggja hjá þeim veitingar sem ekki voru af verri endanum. Þorsteinn andaðist 31. desem- ber 2006 og veit ég að Anna treg- aði hann alltaf. Síðustu ár dvaldi Anna á Hornbrekku og lét vel af sér þar. Gaman var að sjá alla þá handavinnu sem hún gerði þar – allt jafn fallegt og vel unnið. Á síðasta ári fór heilsu hennar að hraka. Síðastliðið sumar heim- sóttum við hjónin hana og sat hún þá í hjólastól og sagðist ekki geta unnið neitt í höndunum. Þessi kona sem aldrei féll verk úr hendi – alltaf jafn fórnfús og gefandi. Farsæl vegferð er að baki sem nú vefst saman við sjóð minning- anna. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Börnum og aðstandendum öll- um sendum við hjónin okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Jóhanna María Pálmadóttir. Anna Gunnlaugsdóttir var mikil heiðurskona. Heilsteypt kona með hlýja og gefandi nær- veru. Það voru sannarlega for- réttindi að mega koma á Gunn- ólfsgötuna og njóta nærveru hennar og umhyggju. Hún var hógvær í orðum og hafði alla tíð áhuga á því sem hver og einn var að fást við. Hún gaf hvort tveggja í senn hið andlega og hið líkam- lega. Það var aldrei tómt borð á Gunnólfsgötunni. Anna gerði vel við alla sína gesti og ég er örugg- lega ekki einn um það að hafa helst viljað sitja í eldhúsinu og eiga spjallið þar. Anna átti góða samleið í lífinu með föðurbróður mínum, Þor- steini Mikael Einarssyni. Þau tókust á við lífið í gleði og sorg og studdu hvort annað. Mér fannst þau á stundum eins og dansa gegnum lífið og þá ekki síst þegar þau tóku snúning á eldhúsgólfinu. Doddi frændi kom frá Grenivík sem ungur drengur í Ólafsfjörð. Hann hafði þá misst föður sinn og föðursystir hans, Ella, og Siggi skó tóku hann að sér og urðu hon- um elskandi foreldrar. Þau Anna og Doddi skó voru ung þegar leið- ir þeirra lágu saman og saman og voru samhent í því að leiða börnin sín sex til framtíðar. Heimili þeirra varð fljótt að miðstöð fjöl- skyldu og vina og ég hafði alla tíð á tilfinningunni að þeim þætti betra að vera gestgjafar og taka á móti fólki heldur en að vera sjálf gestir. Það varð okkur öllum í stórfjölskyldunni svo eðlilegt og sjálfsagt að ganga inn á heimili þeirra. Þar var aldrei læst og ef enginn var heima vorum við hvött til þess að bjarga okkur sjálf. Allt var svo velkomið og sjálfsagt. Í huga mínum hljómar enn hljómfalleg rödd hennar Önnu. Hún talaði einstaklega fallegt mál og íslenskan og allt hennar starfróf varð svo skemmtilega lif- andi í orðum hennar. Brosið hennar var heillandi og það var bjart sindur í augum hennar. Ég veit að hún kvaddi með þetta sama sindur í augum. Hún vissi að hverju dró. Veikindi höfðu ekki gengið hjá hennar garði en alltaf var hún æðrulaus og sterk. Trúuð kona, sem átti hlýjar og máttugar bænir. Kona sem trúði og vissi að frændi myndi taka í móti henni, þegar yfir kæmi. Þó ekki sé nú lengur komið við á Gunnólfsgötunni eins og áður, þá verða áfram áningarstaðir hjá frændfólkinu í Ólafsfirði, því Anna og Doddi höfðu kennt okk- ur öllum að það væri vináttan og samveran sem tæki öllum salar- kynnum fram. Með þakklæti í huga minnist ég Önnu Gunnlaugsdóttur. Þakka henni að hafa leyft mér ungum að koma í ævintýraferðir í Ólafsfjörð og hafa alla tíð hvatt mig áfram og látið sig varða af- komu mína og minnar fjölskyldu. Guð blessi minningu hennar og blessi börn hennar og þeirra fjöl- skyldur. Pálmi Matthíasson. Standið ekki við gröf mína og tárfellið, ég er ekki þar, ég sef ekki. Ég er þúsund vindar sem blása, ég er glitrandi demantur á snjó, ég er sólskinið á þroskuðu korni, ég er haustregnið. Þegar þú vaknar í morgunkyrrðinni er ég hinn frái þytur hljóðlátra fugla á ferli sem lauk þar sem hann hófst, ég er dauft stjörnuskin næturinnar. Standið ekki við gröf mína og grátið, ég er ekki þar, ég dó ekki, ég lifi áfram einhversstaðar, ég lifi í hjörtum ykkar allra. (Þýtt af sr. Halldóri Reynissyni.) Blessuð sé minning þín. Innilegar samúðarkveðjur til Gulla, Himma, Guðbjargar, Ingu, Tótu, Ellu og fjölskyldna. Gunnhildur og Harpa María Gunnlaugsdætur. MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011 ✝ Bróðir okkar, GUÐNI MARINÓ GUÐNASON, fæddur á Ísafirði 25.07.1956, lést í Danmörku þriðjudaginn 8. nóvember. Útförin fór fram í Viborg mánudaginn 14. nóvember. Sólveig Guðnadóttir, Veturliði Guðnason, Bjarnfríður Andrea Guðnadóttir. ✝ Elskuleg frænka okkar, KLARA KLÆNGSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Lágafellskirkju þriðjudaginn 13. desember kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Gunnar K. Gunnarsson. ✝ Elsku hjartans maðurinn minn, pabbi, tengdapabbi, afi og langafi, ALFREÐ SIGURLAUGUR KONRÁÐSSON, Silli, frá Hrísey, Kirkjuvegi 14, Dalvík, sem lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 4. desember, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 17. desember kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á heimsforeldra Unicef. Valdís Þorsteinsdóttir, Þórdís Alfreðsdóttir, Steingrímur Sigurðsson, Konráð Alfreðsson, Agnes Guðnadóttir, Sigurður Alfreðsson, Sólborg Friðbjörnsdóttir, Sigurjón Alfreðsson, Margrét Kristmannsdóttir, Blængur Alfreðsson, Þórdís Þorvaldsdóttir, Kristín Alfreðsdóttir, Ásgeir Stefánsson, afabörn og langafabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGI SIGURÐUR ERLENDSSON mælingamaður, Hrauntungu 30, Kópavogi, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 30. nóvember, verður jarðsunginn frá Kópavogs- kirkju mánudaginn 12. desember kl. 15.00. Rannveig Gísladóttir, Guðmundur Ingason, Gyða Jónsdóttir, Örn Erlendur Ingason, Guðbjörg Sigurðardóttir, Haukur Ingason, Katrín Þórarinsdóttir, Sólborg Erla Ingadóttir, Kristinn Harðarson, Þórdís Ingadóttir, Snorri Ingvarsson, barnabörn og langafabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR HAFSTEIN HALLDÓRSSON húsasmiður, Kirkjuvegi 1, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, mánudaginn 5. desember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 13. desember kl. 13.00. Hrefna Sigurðardóttir, Rúnar Benediktsson, Svava Sigurðardóttir, Ævar Ingi Guðbergsson, Erna Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Unnusti minn, faðir, afi, bróðir okkar og mágur, HALLUR BERGSSON húsasmiður, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 7. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Tcvetanka Peeva, Lína Peeva, Sunna Björg Sigfríðardóttir, Vaka Agnarsdóttir, Þorkell Bergsson, Ásta Ingólfsdóttir, Birna Bergsdóttir, Björgvin Bergsson, Hafdís Sigurðardóttir. ✝ Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, ÁLFHEIÐUR JÓNASDÓTTIR, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 5. desember. Hún verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 17. desember kl. 14.00. Jakob Ágústsson, Sigurbjörn Jakobsson, Regína Vilhjálmsdóttir, Hafsteinn Jakobsson, Birgitta Guðjónsdóttir, Ruth Jakobsdóttir, Rúnar Helgi Kristinsson og barnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.