Morgunblaðið - 10.12.2011, Síða 55

Morgunblaðið - 10.12.2011, Síða 55
DAGBÓK 55 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand EKKI LEYFA HONUM AÐ HITTA BOLTANN, KALLI! ÞÚ LEYFÐIR HONUM AÐ HITTA! ÞJÓNUSTUSTÚLKAN Á VEITINGA- STAÐNUM SAGÐI AÐ ÉG OG LÍSA VÆRUM SVO FALLEGT PAR ENNNN.... ÞAÐ ER ALLTAF „ENNNN...” EN SVO STEIG ÉG Á FÓTINN Á HENNI OG HÚN ÖSKRAÐI SVO HARKALEGA AÐ FÖLSKUTENNURNAR HENNAR FLUGU ÚT ÚR HENNI OG FESTUST Í HÁLSINUM Á GESTINUM Á NÆSTA BORÐI HELGA, HERRA ÞINN OG HÚSBÓNDI ER MÆTTUR! ÉG VIL FÁ DRYKK OG HEITAN MAT EINS OG SKOT! HÉRNA ER VATNIÐ ÞITT... ...OG HAFRA- GRAUTURINN ÞINN ER Á ELDHÚSBORÐINU ÉG VEIT AÐ ÞAÐ ER EKKI AUÐVELT AÐ VERA VÖRUMERKI ERU EINHVER YKKAR SEM HAFA GRIPIÐ TIL HJÁTRÚAR TIL ÞESS AÐ TAKAST Á VIÐ ÁLAGIÐ? ERTU AÐ GRÍNAST? KANNSKI ER ÞAÐ EKKI FYRIR MIG AÐ VINNA MEÐ HÖNDUNUM, EN ÉG ER SAMT BÚIN AÐ FÁ NÓG AF ÞVÍ AÐ HLUSTA Á VANDAMÁL FÓLKS ÁTTU EKKI VINKONU SEM REKUR KAFFIHÚS? KANNSKI VANTAR HANA AFGREIÐSLU- DÖMU EKKI TEFJA RÖÐINA ÞANNIG AÐ SONUR ÞINN ÆTLAR AÐ HÆTTA Í HÁSKÓLA, HVERNIG LÍÐUR ÞÉR MEÐ ÞAÐ? ÞÚ ERT AÐ BRENNA GAT Á FLUGVÉLINA! BARA NÓGU STÓRT... ...FYRIR IRON MAN TIL AÐ KOMAST ÚT UM ÞAÐ TÓKST! PUPPET MASTER HEFUR NÚ ALGJÖRA STJÓRN Á IRON MAN! Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Ég mætti karlinum á Laugaveg-inum, þar sem hann gekk upp Bakarabrekkuna og sagðist hafa skroppið upp á þingpalla til að fylgjast með, – hann var með lamb- húshettu yfir höfuðið og glórði í augun á honum. „Þetta er ljóti fimbulkuldinn,“ sagði hann. „Minn- ir mig á frostakaflann á lönguföstu árið 1927. Þú manst eftir Jóni Krukki, hann gekk í stúku, var í Einingunni: 14° er frostið og fölur máninn skín. Í kveld skulum við drekka kaffi og brennivín. Í kveld skulum við drekka kaffi og hundaskammt; enginn má í Einingunni um það vita samt. Við skulum sitja að sumbli því sála mín er þreytt. Sumir eiga sorgir og segja ekki neitt. Sumir eiga sorgir og sumir eiga konur. Einum fæðist dóttir og öðrum fæðist sonur. Sumir þjóra í Reykjavík og sumir þjóra í Höfn. Sumir fara í hundana og sumir fara í Dröfn. Í kveld skulum við drekka kaffi og brennivín. 14° er frostið og fullur máninn skín.“ Þegar lokið var kvæðinu Jóns Krukks skaut ég inn þessari spurn- ingu, hvað væri að frétta af þinginu. „Er búið að leggja við- skiptaráðuneytið niður og gera það að deild í fjármálaráðuneytinu?“ spurði ég. Þá hnykkti karlinn aftur höfðinu og sagði: Árni Páll var enn á skjön enga bauð fram kosti. Fjármálaráðherrann fýldi grön, forsætisráðherrann brosti. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Forsætisráðherrann brosti Útprjónuð lopa- húfa tapaðist Hvít og mórauð út- prjónuð lopahúfa með böndum tapaðist á leið frá Freyjugötu niður að Brynju á Laugavegi hinn 6. des. Finnandi vinsamlega hafi sam- band í síma 694-7899. Kirkjan og hornsteinar Enn hefur verið vegið að þegnum íslenskrar þjóðkirkju. Í þetta skiptið skal vegið að gildismati kirkjunnar á íslensku jólahaldi og siðvenjum sem verið hafa í áratugi. Ekki á að leyfa þegnunum að hafa drottinn sinn og frelsara í fyrirrúmi á þessu skipi vonar og kærleika. Að sjá mannkynið fara á haugana er sárt öllu sjáandi auga. Þeim sem ekki þekkja muninn á manni og dýri er ekki treystandi til þessa að greina hér til frá góðu. Ég hefði haldið að „Faðir vor“ sé sann- leikur og sá eini sann- leikur sem hald er í. Ef umbjóðendur horn- steina kirkjunnar svifta þegnanana þess- um sannleika að þá er ekki fitjað fyrir öðrum betri. Ég hvet því alla til þess að álykta af sannfæringu hver muni þá vera endalok þessa talaða orðs í röð- um þeirra mátt- arstólpa kirkjunnar sem eiga að leiðbeina. Björn Sölvi Valagils. Belti tapaðist Ég tapaði belti af minkapelsinum mínum 8. desember milli kl. 12.30 og 13 á Laugaveginum. Beltið er úr mink og ég heiti góðum fund- arlaunum, síminn er 864-1880. Velvakandi Ást er… … þegar hann stjanar við þig. Orðið „seinheppni“ hefur aðramerkingu í íslensku en orðin „afglöp“ eða „fávísi“. Það er notað um mistök, sem verða vandræðaleg fyrir rás viðburða, þótt stundum komi óskhyggja við sögu. Gunnar Knudsen, þá forsætisráð- herra Noregs, sagði til dæmis í stór- þinginu 17. febrúar 1914: „Núna horfir svo við að á himni al- þjóðastjórnmálanna er hvergi ský að sjá miðað við það, sem verið hefur í mörg ár.“ Nokkrum mánuðum síðar logaði álfan. Ekki þótti heldur spámannlega mælt er Jón Trausti skrifaði um jafnaðarstefnu að Þorsteini Erlings- syni látnum í Skírni 1915: „Nú er fremur að dofna yfir henni úti um heiminn og forkólfar hennar farnir að fara sér hægar. Hvernig sem menn líta á hana verður því ekki neitað að hún hefir haft geysiáhrif, einnig á kirkjuna, og mörgu hrundið til verulegra bóta. Hér á landi hefir henni líklega að mestu lokið með Þorsteini.“ Seinheppni stafar stundum af því að menn eru of vissir í sinni sök. Til dæmis birti bandaríska stórblaðið Chicago Daily Tribune risafyrirsögn á forsíðu 3. nóvember 1948: „Dewey sigrar Truman.“ Skoðanakannanir höfðu bent til sigurs Tómasar De- weys ríkisstjóra í forsetakjöri í Bandaríkjunum og blaðið studdi hann eindregið en Truman sigraði. Sama ár skrifaði kanadísk-banda- ríski hagfræðingurinn John Ken- neth Galbraith um viðskiptahöft í Vestur-Þýskalandi: „Það hefur aldr- ei verið minnsti möguleiki á end- urreisn í Þýskalandi með afnámi þeirra.“ Ludwig Erhard, þá við- skiptaráðherra, afnam höftin um þær mundir og í hönd fór „þýska efnahagsundrið“. Og Þorvaldur Gylfason hagfræ- ðiprófessor sagði í Lesbók Morgun- blaðsins 23. nóvember 1996: „Taí- lendingar hafa á skömmum tíma náð aðdáunarverðum árangri af eigin rammleik og heilbrigðu hyggjuviti. Sjálf berum við Íslendingar með sama hætti einir ábyrgð á því, hversu kjörum okkar hefur hrakað síðustu ár miðað við margar aðrar þjóðir nær og fjær.“ Þorvaldur hafði varla sleppt orðinu, þegar stórkost- leg kreppa skall á í Taílandi, og dróst hagkerfið saman um 10,2% ár- ið 1997. Hagvöxtur (án teljandi skuldasöfnunar) reyndist hins vegar ör næstu átta ár á Íslandi. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Seinheppni og óskhyggja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.